Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.2007, Side 41

Læknablaðið - 15.01.2007, Side 41
UMRÆÐA & FRÉTTIR / MINNINGAR HÉRAÐSLÆKNIS Síðan var ferðinni haldið áfram fet fyrir fet, Elín á undan, ég á eftir. Þóttist ég nú vita, að Merkigilið væri ekki langt undan og sá brátt móta óljóst fyrir því framundan. Ég hafði heyrt sögur af þessu gili. Guðmundur Hagalín hafði þá fyrir nokkru gefið út bók sína um Móníku og dætur hennar og lýst gilinu sem hrikalegum farartálma. Þar hafði að minnsta kosti einn maður hrapað til dauðs og talin mikil mildi að þeir skyldu ekki vera fleiri. Og svo nálguðumst við gilið. Elín stýrði ferðinni, beygði upp með gilinu og nálgaðist brúnina æ meir. Mér varð litið fram af og sá lítið annað en svart, botnlaust myrkur. Þó glampaði á eitthvað, vatn eða ís, óralangt fyrir neðan. Mér fannst ég vera staddur á barmi hengiflugs. Loks fór Elín alveg fram á brúnina og fór að þræða sig eftir örmjóum sneiðingi utaní snarbrattri skriðu. Það var hörsl í troðningnum. Ég minntist uppákomunnar með hrossið rétt áður og líðan mín fór heldur versnandi. Ég fór af baki og teymdi, en Elín sat uppi á sínu hrossi, eins og henni kæmi þetta ekkert við. Loks varð sneiðingurinn svo tæpur, að mig langaði mest til að fara á fjóra fætur og skríða. En Elín sat. Það er erfitt að lýsa þeim áhrifum, sem þessi augnablik höfðu á mig. Tröllslegt og geigvænlegt umhverfi, glottandi lífsháskinn í öllum áttum og leiðsögumanneskja, sem var svo ósnortin af þess- um háska, að það var nánast ómennskt. Rólegheit þessarar konu voru svo gjörsamlega úr öllu sam- hengi við aðstæður að það var með ólíkindum og vakti mér geig. Mér tókst þó að láta ekki á neinu bera og fetaði mig áfram einstigið hokinn í hnjánum og forðaðist að líta niður í gilið. Mér fannst ég svífa í lausu lofti. Loks fór Elín af baki og teymdi það yfir gilið. Það gekk allt slysalaust. Mér varð ekki eins mikið um að fara upp sunnan megin, þó að einstigið sé þar sýnu glæfralegra, liggur fram á klettasnösum. Það er alltaf skárra að fara upp en niður í svona tilvik- um. A einum stað bað Elín mig að fara varlega. Þar lá gatan tæpt á snös, en þverhnípt bjarg fyrir ofan. Þegar upp var komið, var stigið á bak og riðið heim að Merkigili, en það er ekki löng leið. Var þá áliðið nætur. Mér var vísað í allstórt herbergi, sem sennilega hefur verið borðstofa. Þar var langborð með öðrum vegg. Þar sat Mónika húsfreyja fyrir enda, en dætur hennar til beggja handa. Lýsing var fremur dauf í herberginu, og hefur það sennilega verið þess vegna að mér fannst þessar konur meiri um sig og hærri í sæti en þær konur, sem ég hafði áður séð. Það má og vera að þar hafi komið til áhrif frá ferðalaginu eins og það, að ég hafði heyrt mikið látið af afrekum þessara kvenna. Ég fékk höfðinglegar móttökur hjá Móniku húsfreyju. Ég skoðaði sjúklinginn, og reyndist sjúkdómur hennar ekki eins alvarlegur og óttast var. Ég gat leyst úr vandanum með lyfjum, sem ég hafði tekið með mér. Eftir að ég hafði þegið rausn- arlegar veitingar, var lagt af stað sömu leið til baka. Sú ferð gekk áfallalaust. Þá var farið að birta af degi og ég orðinn ögn öruggari með mig. Ég frétti síðar að sjúklingnum hefði reitt vel af. Þessi ferð hefur orðið mér minnisstæð. Ég kom að Gilsbakka 35 árum síðar og hitti þá fyrir Hjörleif Kristinsson sem bjó þar og var orðinn ein- setumaður. Við minntumst þá þessarar ferðar og sagði hann mér að hún hefði verið talsvert umtöl- uð þar í sveit árin á eftir. Kannske hefur það þótt nokkrum tíðindum sæta að fara yfir Merkigilið í hálku og náttmyrkri. r Viltu bæta heilsuna? Vertu hjartanlega velkomin(n) á fyrirlestra um tengsl mataræðis og blóðþrýstings, fyrsta fimmtu- dag hvers mánaðar (sjá bakhlið) kl.18 í sal World Class - Laugum, 2. hæð. Lagðar verða fram tillögur um matseðla og veitt aðstoð við val á mataræði. Næringarfræðingarnir og ráð- gjafarnir Helga Sigurðardóttir og Ólafur Sæmundsson sjá um fræðsluna. Fyrirlestrarnir eru í boði Novartis. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Læknablaðið 2007/93 41

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.