Læknablaðið - 15.01.2007, Side 47
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FJÖLSKYLDU- OG STYRKTARSJÓÐUR LÆKNA
Frétt frá stjórn Fjölskyldu- og styrktarsjóðs lækna
Á fundi stjórnar sjóðsins þann 6. desember sl. voru samþykktar nokkrar breytingar á reglum sjóðsins. Þær helstu eru:
1. Nafni sjóðsins var breytt til samræmis við nýjan kjarasamning
sem gerður var á árinu 2006. Þá var í fyrsta sinn gerður samn-
ingur sem nær til bæði sjúkrahúslækna og heilsugæslulækna.
Nokkrar lagfæringar eru gerðar vegna tilvitnana í nýjan samn-
ing.
2. Reglur sjóðsins hafa skv. 3. tl. 1. mgr. 3. gr. náð til lækna hverra
launagreiðendur greiða iðgjöld til sjóðsins. Sú heimild hefur
verið túlkuð þannig að sjálfstætt starfandi læknar geta átt aðiid
að sjóðnum ef þeir greiða sjálfir iðgjald launagreiðanda. Þessi
heimild er áréttuð sérstaklega með nýrri 2. mgr. í 1. gr. þar sem
segir berum orðurn að reglurnar taki til sjálfstætt starfandi
lækna sem hafa greitt iðgjald til sjóðsins. í 5. gr., b. lið, er komið
sérstakt ákvæði um hvernig iðgjald sjálfstætt starfandi lækna
reiknast. Eins og fram kemur í 3. tl. 1. mgr. 3. gr. kemur fram
að sjálfstætt starfandi læknar þurfa að sækja um aðild. Þær
umsóknir berist skrifstofu félagsins. Iðgjald verður innheimt
sérstaklega af skrifstofu félagsins.
3. í 3. tl. 2. gr. er tekið fram sérstaklega að fæðingarstyrkur sé
miðaður við að hann sé ætlaður til að mæta auknum kostnaði
fjölskyldu vegna fæðingar barns. Þess vegna er ekki hróflað við
því ákvæði að fjárhæð fæðingarstyrks breytist ekki þótt báðir
foreldrar séu sjóðfélagar.
4. í 4. tl. 2. gr. er komið nýtt ákvæði sem kveður á um að sjóðfélag-
ar sem taka foreldraorlof skv. I. og VII. kafla laga nr. 95/2000
(heimildin er til 13 vikna frarn að 8 ára aldri barns) fá styrk
sem nemur 80% af þeim dagvinnulaunum sem niður falla hjá
vinnuveitanda þann tíma sem foreldraorlof varir. Þessi styrkur
er bundinn við foreldri þannig að ef báðir foreldrar eru sjóð-
félagar eiga þeir báðir þennan rétt.
5. I 5. tl. 2. gr. er komið nýtt ákvæði um útfararstyrki.
6. í 1. tl. 1. mgr. 8. gr. er kveðið á um hvaða gögn þurfi að fylgja
umsóknum vegna nýrra styrkmöguleika.
7. I 2. tl. 1. mgr. 8. gr. kemur nýtt viðmið vegna dagpeninga-
greiðslna. I stað fastrar fjárhæðar fyrir hvern virkan dag er
nú komið viðmið sem nemur 80% af meðalmánaðarlaunum
(heildarlaun, dagvinna + yfirvinnugreiðslur/vaktagreiðslur
ofl.)
Athuga ber að í reglum þeim sem birtar eru með frétt þessari á
eftir að uppfæra fjárhæðir þar sem það á við í samræmi við breyt-
ingar á vísitölu neysluverðs, sbr. 2. mgr.8. gr.
Reglur Fjölskyldu- og styrktarsjóðs lækna
t.gf.
Fjölskyldu- og styrktarsjóöur lækna, hér eftir nefndur FOSL, er stofnaöur með annars
vegar kjarasamningi Læknafélags íslands v/ sjúkrahúslækna og fjármálaráðherra
f.h. rfkissjóös og St. Franciskusspítala dags. 2. júlí 2001 og hins vegar með úrskurði
kjaranefndar vegna heilsugæslulækna dags. 4. desember 2001. Núgildandi reglur
um fjölskyldu- og styrktarsjóð er að finna í kjarasamningi Læknafélags íslands og
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og St. Franciskusspítala dags. 5. mars 2006.
Ef sjóðfélagi á rétt skv. 2. tl. þessarar greinar sem er meiri en sem nemur
fæðingarstyrk fær sjóðfélagi ekki fæðingarstyrk. Ef sjóðfélagi á rétt skv.
2. tl. þessarar greinar sem er minni en sem nemur fæðingarstyrk fær
sjóðfélagi fæðingarstyrk sem nemur mismuninum á rétti skv. 2. tl. og fullum
fæðingarstyrk skv. þessum tl. Sjóðfélagi getur kosið að sækja eingöngu um
fæðingarstyrk skv. 3. tl.
Reglur þessar taka jafnframt til sjálfstætt starfandi lækna sem hafa greitt iðgjald til
sjóðsins, sbr. 3. og 5. gr.
Sjóðurinn lýtur sérstakri stjórn.
Heimili og varnarþing sjóðsins er á starfstöð Læknafélags íslands.
2. gr.
Hlutverk FOSL er skv. greindum kjarasamningi, sbr. 1., 2. og3.tl.gr. 11.1.1:
1. að taka við iðgjöldum launagreiðanda og ávaxta þau,
2. að taka við umsóknum, ákvarða og annast greiðslur til sjóðfélaga í
fæðingarorlofí, þegar fyrir liggur samkvæmt útreikningum að viðkomandi
hefði notið betri réttar skv. reglum kjarasamnings sjúkrahúslækna dags. 1.
desember 1997 eða reglugerð nr. 410/1989 um bamsburðarleyfi starfsmanna
ríkisins, er giltu um fæðingarorlof sjóðsfélaga fyrir gildistöku laga nr. 95/2000,
en sjóðsfélagi nýtur skv. lögum nr. 95/2000. Skilyrði réttinda til greiðslna úr
sjóðnum, er að læknir hafi á einhverjum tíma notið framangreindra réttinda
til fæðingarorlofs eins og þau voru fyrir gildistöku laga nr. 95/2000. Uppgjör
vegna barnsburðarleyfis getur eingöngu varðað lækni í starfi í samræmi við lög
um fæðingarorlof nr. 95/2000 og reglur kjarasamnings dags. 1. desember 1997 /
reglugerð nr. 410/1989 um barnsburðarleyfi starfsmanna ríkisins.
3. að veita sjóðfélögum sem eignast barn, taka barn til ættleiðingar eða í varanlegt
fóstur 1. janúar 2005 eða síðar sérstakan fæðingarstyrk að fjárhæð kr. 350.000.
Fjárhæðin er sú sama þótt báðir foreldrar séu sjóðfélagar enda er miðað við að
styrkurinn sé til að mæta auknum kostnaði fjölskyldu vegna fæðingar barnsins.
Ef um fjölbura er að ræða hækkar fjárhæðin um 50% fyrir hvert barn.
4. að veita sjóðfélögum sem taka foreldraorlof skv. I. og VII. kafla laga nr.
95/2000 styrk sem nemur 80% af þeim dagvinnulaunum sjóðfélaga sem niður
falla hjá vinnuveitanda, þann tíma sem foreldraorlof varir.
5. að veita útfararstyrk vegna andláts sjóðfélaga að fjárhæð kr. 500.000. Með
sjóðfélaga í þessu tilliti er einnig átt við starfsmenn sem voru sjóðfélagar er
þeir létu af störfum vegna aldurs eða örorku. Styrkurinn greiðist þeim aðila
er útförina annast.
6. Samkvæmt ákvörðun sjóðsstjórnar er hlutverk sjóðsins að öðru leyti, að veita
sjóðfélögum styrki, sjá. 8. gr., samkvæmt rökstuddri ákvörðun sjóðstjórnar
hverju sinni, þannig að komið sé til móts við:
a) tekjutap sjóðfélaga vegna ólaunaðrar fjarveru frá læknisstörfum vegna
veikinda sjóðfélaga eða náinna vandamanna hans eða vegna annarra
sérstakra persónulegra aðstæðna
b) óbætt áföll vegna óvæntra starfsloka eða annarra óvæntra áfalla
sjóðfélaga.
3. gr.
Sjóðsaðild eiga:
1. læknar sem starfa samkvæmt kjarasamningi frá 5. mars 2006.
2. læknar, sem starfa á sjálfseignarstofnunum eða öðrum stofnunum, hjá félögum
eða fyrirtækjum skv. starfskjarasamningum er taka mið af kjarasamningi
lækna á hverjum tíma og launagreiðandi þeirra greiðir iðgjöld til sjóðsins,
sbr. 5. gr.
3. aðrir læknar sem óska eftir aðild að sjóðnum og launagreiðandi þeirra greiðir
iðgjöld til sjóðsins, sbr. 5. gr.
Læknablaðið 2007/93 47