Læknablaðið - 15.01.2007, Side 65
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FLOKKUNARKERFI ICF
Líkamsvirkni (líffræðileg) Færni í athöfnum daglegs lífs Þátttaka (atvinna, félagslíf)
Meginmarkmið sjúklings Að ganga Að sjá um sig sjálfur Að verða vinnufær
Þverfaglegt mat Lömun í annarri hlið og jafnvægiskeröing. Kvíði og hræðsla. Getur ekki klætt sig, tjáning trufluð. Óvinnufær.
Markmiðssetning meðferðarteymis Að geta gengið hjálpartækjalaust >250m án þess að stoppa. Að geta gengiö stiga. Ráða við athafnir daglegs lífs. Tjáskipti verði án misskilnings heima sem að heiman. Auka sjálfstraust, minnka kvíöa, auka hreyfifærni og virkni til að fara t vinnu við hæfi.
Úrræði meöferðarteymis Styrktar/jafnvægis- og gönguæfingar. Leiðbeina með æfingaprógram. Þjálfa kleeðnað. Talþjálfun. Hjálpartækjaúttekt Lyfjameöferö, samtöl. Fræðsla til sjúklings og aðstandanda. Styðja með bjargráöum (coping) Meta vinnuaðstæður.
Árangursmæling 6 mín. göngupróf. Ganga í tröppum. Becks kvíöakvarði. FIM. Mat á málstoli. Vinnufærni %.
Mynd 3. Meðferðaráœtlun samkvœmt hugmyndafrœði ICF.
Samkvæmt ICF geta skilgreiningar verið eft-
irfarandi:
Líkamsvirkni:
Miðlungsslæm lömun í ganglim og kraftminnkun
um hægri ökkla og hné. Smávægileg lömun í hægri
hönd. Á dálítið erfitt með að tjá sig um annað en
það persónulega.Óstöðugleiki vegna lömunar og
slingurs. Sjónsviðsskerðing. Kvíði. Svefn í lagi.
Skilur vel. Styrkur góður í hægri hlið.
Líffœrastarfsemi:
Miðlungs slæm truflun á starfsemi í vinstra heila-
hveli.
Fœrni í athöfnum daglegs líf:
Getur ekki hlaupið. Þarf að nota staf við göngu
lengri vegalengdir og styðja sig við handrið við að
ganga stiga. Skert fingrafimi veldur erfiðleikum
við að hneppa, skrifa (á tölvu) eða vinna verk
sem krefjast beggja handa. Skilur eftir mat hægra
megin á diski sínum, sjálfbjarga að öðru leyti með
eigin umsjá.
Þátttaka:
Getur ekki tekið þátt í atvinnulífi ef það krefst
fullrar göngugetu, aksturs bifreiðar og skrifvinnslu.
Samskiptaörðugleikar valda hættu á félagslegri
einangrun og fötlun sjúklings veldur breyttu fjöl-
skyldumynstri.
Umhverfisþœttir (samhengisþœttir):
Býr í góðri íbúð. Fær stuðning við þrif. Innlit frá
heimahjúkrun. Hann óskar eftir að fara í vinnu.
Góður stuðningur í fjölskyldu. Fjölskylda hans
hræðist frekari einkenni.
Persónuþœttir (samhengisþœttir):
Var góður starfskraftur áður. Hann upplifir sig
fatlaðan, er óviss um getu sína til vinnu og hræðist
frekari einkenni.
Eins og sést á dæminu gefur sjúkdómsgreining
samkvæmt ICD sjúkdómnum nafn og upplýsing-
ar um orsök. Vitað er að tveir einstaklingar með
greininguna „heilablóðfall af völdum blóðtappa"
geta haft mjög breytileg einkenni og bataferlið
getur verið ólíkt. Þegar einkenni eru skilgreind
samkvæmt flokkun ICF fæst mun betri mynd af
fötlun einstaklingsins, einkennum, styrkleikum
hans og veikleikum. Af flokkun ICF sést einnig
hvaða þörf er fyrir meðferð og úrræði. Ofannefnd
lýsing getur verið sjúkrasaga eða læknabréf.
Upplýsingarnar er einnig hægt að gefa með tölu-
legum kóðum. Á meðfylgjandi mynd sést dæmi
um hvernig hægt er að nota ICF í daglegri vinnu
(mynd 3).
Lokaorð
I vinnu með sjúklingi er mikilvægt að hafa heild-
stæða sýn á vandamál og að úrlausnir séu sýnilegar
og skýrar og fylgi sjúklingi til næsta meðferðaraðila
eða á næsta þjónustustig. Þá er einnig mikilvægt að
tala mál sem allir skilja, sjúklingurinn meðtalinn.
Mikilvægt er að lýsing á vandamálum og mark-
miðum sé skýr, eins og hún er með því að nota ICF.
ICF einblínir ekki á orsök sjúkdóma eða greiningu
heldur á færni manna til að takast á við athafnir
daglegs lífs og taka virkan þátt í samfélaginu þrátt
fyrir ákveðnar skerðingar. Það hefur sýnt sig um
allan heim að hugmyndafræði ICF er komin til að
vera og notkun hennar hefur í för með sér mikla
Læknablaðið 2007/93 65