Læknablaðið - 15.01.2007, Side 68
UMRÆÐA & FRÉTTIR /
Um Læknablaðið
Skilgreiningar - verklag
Skilgreining
Læknablaðið er vísinda- og félagsrit íslenskra
lækna. Eigendur blaðsins eru félagar í Læknafélagi
íslands og Læknafélagi Reykjavíkur. í útgáfustjórn
blaðsins sitja formenn Læknafélags íslands og
Reykjavíkur og sitjandi ritstjóri (ábyrgðarmaður)
Læknablaðsins. Læknablaðið birtir fræðigreinar
(vísindagreinar) um líf- og læknisfræði og fylgir
um meðferð þeirra alþjóðlegum stöðlum lækna-
rita. Læknablaðið birtir einnig efni um heilbrigð-
ismál í víðustu merkingu. Ritstjórn Læknablaðsins
tekur ein ákvarðanir um birtingu efnis og fylgir þá
sömuleiðis alþjóðlegum stöðlum alþjóðanefndar
ritstjóra læknablaða (ICMJE) og að auki codex
ethicus lækna. Ritstjórn Læknablaðsins freistar
þess að lúta ítrustu reglum um vísindaleg gæði
fræðigreina og gæði annars birts efnis þannig að
sé íslenskri læknisfræði og íslenskum læknum til
sóma.
1. Ritstjórn
a) Ritstjóri. Ritstjóri er jafnframt ábyrgðarmaður
Læknablaðsins og talsmaður þess. Útgáfustjórn
Læknablaðsins skipar ritstjóra til tveggja ára í
senn. Ráðningu ritstjóra lýkur sjálfkrafa nema
að útgáfustjórn endurnýi umboð hans. Ritstjóri
skal hafa yfirsýn um efni blaðsins, lesa allt efni
fyrir birtingu eða tilnefnir ritstjórnarmenn til
þess í sínu umboði. Ritstjóri getur einn sér
hafnað birtingu tiltekins efnis og þá í krafti
ábyrgðar hans á birtu efni í Læknablaðinu.
b) Ritstjórn. Útgáfustjórn skipar ritstjórnarmenn
til tveggja ára í senn. Útgáfustjórn ákveður
fjölda ritstjórnarmanna og leitast við að skipa
í ritstjórn Læknablaðsins lækna með mismun-
andi mennta- og starfsbakgrunn. Ráðningum
ritstjórnarmanna lýkur sjálfkrafa nema út-
gáfustjórn endurnýi umboð þeirra. Ritstjóri
og ritstjórnarmenn bera sameiginlega ábyrgð
á ákvörðunum ritstjórnar, þó með þeirri und-
antekningu, sem getur í síðustu setningu la.
Ritstjóra og ritstjórn Læknablaðsins ber að
kynna sér Helskinkisáttmála WHO uin rann-
sóknir á mönnum, alþjóðleg og siðfræðileg
viðmið í Good Clinical Practice (GCP) reglum,
gildandi lög nr. 74/1997 um réttindi sjúklinga,
reglugerð um rannsóknir á heilbrigðissviði,
viðmið Vísindasiðanefndar og lög nr. 77/200
um persónuvernd og meðferð persónuupplýs-
inga. Ritstjóri felur ritstjórnarmönnum umsjón
með umfjöllun allra aðsendra fræðigreina, jafn-
an einum ritstjórnarmanni til aðalábyrgðar og
öðrum til vara. Ábyrgir ritstjórnarmenn eru í
reynd ritrýnar innan ritstjórnar Læknablaðsins.
Ábyrgir ritstjórnarmenn skulu finna hæfa
ritrýna utan ritstjórnar, aldrei færri en tvo, fyrir
hverja aðsenda fræðigrein. Skulu ábyrgir rit-
stjórnarmenn gera ritstjórn stuttlega grein fyrir
niðurstöðu ritrýni á fundum ritstjórnar og taka
þar til umfjöllunar sérstök álitamál. Ábyrgir
ritstjórnarmenn geta þó lagt til við ritstjórn að
tiltekin fræðigrein skuli birt eða henni hafnað
án þess að leitað sé ritrýni utan ritstjórnar.
c) Ritstjórnarfulltrúi. Ritstjórn Læknablaðsins
ræður ritstjórnarfulltrúa með samþykki út-
gáfustjórnar. Ritstjórnarfulltrúi verkstýrir
skrifstofu blaðsins, þ.m.t. öðrum fastráðnum
starfsmönnum þess og annast dagleg mál-
efni þess í umboði ritstjóra og ritstjórnar.
Ritstjórnarfulltrúi ber ábyrgð á daglegum fjár-
hagslegum rekstri. Ritstjórnarfulltrúi starfar í
nánu samstarfi við ritstjóra og ritstjórnarmenn.
Ritstjórnarfulltrúi annast samskipti milli rit-
stjórnar og höfunda aðsends efnis.
d) Auglýsingastjóri/ritari. Ritstjórn Læknablaðsins
ræður, í samvinnu við ritstjórnarfulltrúa, aug-
lýsingastjóra/ritara, sem annast söfnun auglýs-
inga í Læknablaðið og gerir ritstjórn reglulega
grein fyrir stöðu þeirra mála. Auglýsingastjóri/
ritari starfar undir daglegri stjórn ritstjórn-
arfulltrúa. Öll vinna við heimasíðu blaðsins
er á hendi ritarans, sömuleiðis samskipti við
áskrifendur, auglýsendur, pökkunar- og dreif-
ingaraðila. Ritari sér einnig um símsvörun o.fl.
sem tengist Læknablaðinu.
e) Blaðamaður. Ritstjórn Læknablaðsins ræður
blaðantann með samþykki útgáfustjórnar.
Blaðamaður starfar undir daglegri stjórn rit-
stjórnarfulltrúa. Blaðamaður skrifar, í samráði
við ritstjórnarfulltrúa og ritstjórn, um heil-
brigðismál í víðustu merkingu og annað efni
sem ætla má að læknar telji áhugavert.
2. Vinnureglur Læknablaðsins
a) Vinnulag ritstjórnar: Almennar leikreglur lýð-
ræðis ráða vinnulagi ritstjórnar. Allar tillögur
og ályktanir sem ritstjórnarmenn óska eftir að
fái umfjöllun í ritnefnd skulu ræddar og urn
þær greidd atkvæði þar sem meirihluti ræður.
Pað er skylda ritstjóra að gefa öllum ritstjórn-
armönnum kost á að kynna sér, tjá sig um og
68 Læknablaðið 2007/93