Læknablaðið - 15.01.2007, Qupperneq 91
HUGLEIÐING HÖFUNDAR / ÚR RÆÐU TIL FÉLAGS KVENNA í LÆKNASTÉTT
Brot úr ræðu til félags
kvenna í læknastétt
Þar sem ég hef nýlega farið í gegnum útgáfuferli
ævisögu Matthíasar Jochumssonar eru brot úr
þeirri bók mér ofarlega í sinni. Utskriftarár hans
úr prestaskólanum 1865 bar það til tíðinda á
Jónsmessunni að fyrsti keisaraskurður var gerður
á Islandi. Yfirsetukonan kallaði á Jón Hjaltalín
landlækni þegar hún sá hún gat ekkert gert fyrir
Margréti Arnljótsdóttur, ógiftan kvenmann sem
var dvergur að skapnaði. Hjaltalín lagði ekki í að
rista hana á kvið hjálparlaust svo hann fékk Gísla
Hjálmarsson lækni með sér og báða læknana af
herskipinu Pandora, auk fjögurra læknisfræði-
stúdenta. Þeir vissu að aðeins sjötta hver móðir
lifði svona holskurð af. Notað var klóróform og
barninu bjargað, en Margrét dó næstu nótt. Elín
hans Matthíasar var smávaxin og þau á leið í
hjónaband, svo að þessi tíðindi skekja hana örugg-
lega eins og fleiri. Þótt prestshlutverk væri skelfi-
legt á tímum barnadauða, holdsveiki, sullaveiki
og hungurs var þó frumstætt læknishlutverkið á
þessum tímum einhvernveginn í mínum huga enn
voðalegra.
Meira um Matthías. Páll Baldvin sagði í
ritdómi sínum að ég hefði mátt meta geðheilsu
Matthíasar með nútímahugtökum geðlæknisfræð-
innar. Ritstjóri minn vildi þetta líka og auðvitað
velti ég þessu fyrir mér. Ég sá í anda kynningu
æsifregnar, Matthías haldinn geðhvarfasýki rétl
eins og Jón Sigurðsson með sýfilis. Astæðan fyrir
því að ég gerði þetta ekki er sú að það var við
extreme erfiðleika sem Matthíasi leið illa í sálinni,
aðstæður sem hefðu gert mig sjálfa og flesta menn
sjúka á sálinni. Ellefu ára barn ástríkra hjóna
kvelst við að vera sent að heiman og eiga ekki aft-
urkvæmt. Sá sem missir tvær ungar konur á tveim-
ur árum úr umgangspest - þá fyrri ólétta - og hefur
áður ögrað trúkerfi sem taldi guð hafa fingurinn á
útfærslu mannlegra örlaga - honum líður auðvitað
skelfilega í sálinni. Ekki batnaði það þegar hann
gerði dóttur kirkjueigendans í Saurbæ ólétta og
hvarf úr hempunni og af landi brott. Rétti sá upp
hönd sem ekki yrði sálsjúkur af þessu - verandi
prestur um 1870. Seinna lýsir hann sálrænni angisl
sinni eftir að landið sem hann hafði lofsungið sneri
harðindahliðinni svo harkalega að fólki að árum
saman gróf hann hungurdautt fólk í haugum.
Matthías lýsir líðan sinni hreinskilnislega í
minningum sínum og gaf því tilefni til að menn
smjöttuðu á geðsveiflum hans. Enda las hann
og þekkti ævisögu Rousseaus sem er dásamlega
teprulaus. Geðheilsa Matthíasar varð góð og
stöðug þegar kvennamálin komust í lag og
aftur þegar hungursneyðinni lauk. Maður sem
skilar jafn stóru ævistarfi og Matthías við svo
erfiðar aðstæður er ekki haldinn alvarlegri geð-
hvarfasýki? Geðhvarfasveiflur hans voru stórar
en ég kunni ekki við að setja á hann stimpil
maníunnar því bæði sjúkdómavæðingin og æsi-
fréttastíll sölumennskunnar fara í taugarnar á mér.
Sérfræðingum í læknastétt er aftur á móti frjálst að
skoða ævisöguna og rannsaka dýpra þar sem vísað
er til heimilda um efnið.
Jón Sigurðsson forseti fékk sýfilis og ævisaga
hans nýleg var kynnt með þeirri frétt í æsifregna-
stíl. Það sem gerði fréttina heita var auðvitað það
að hún kveikti í fornum glæðum kynlífsbæling-
arinnar. Ég hafði látið kynsjúkdóminn koma afar
fínlega fram í leikinni heimildarmynd um Jón sem
ég gerði handrit að og leikin var á fimmtíu ára
lýðveldisafmælinu 1994 og mér þótti merkilegt að
Jón sinnti pólitík ekki neitt fyrr en eftir sjúkdóm-
inn - hann gat átt von á seinna stigi sjúkdómsins er
leiddi marga til dauða og hafði því engu að tapa en
allt að vinna. Fólk í þessu sálarástandi er oft afar
skapandi.
Það hefur lengi legið í landi að eiginkonur mik-
ilmenna voru ekki taldar nógu góðar fyrir þá. Sá
tónn litaði afstöðuna til Guðrúnar Runólfsdóttur
konu Matthíasar Jochumssonar. Ást á okkar
stærstu hetjum jaðrar við ofdýrkun sem gerir
hvaða konu sem er smáa, hvað þá ef aldursmun-
urinn er „öfugur“ eins og í tilfelli Ingibjargar
Einarsdóttur og Jóns Sigurðssonar. Ingibjörg
hans Jóns var afar góð að hætta ekki við karlinn
sem hún var trúlofuð þrátt fyrir sýfilisinn. Hún
lenti í að vera enn lengur í festum því hann vildi
vera öruggur um að sjúkdómurinn væri genginn
yfir og hún var því vel yfir þrítugt er þau gengu
í hjónaband. Við hana loddi að hún væri gömul
óbyrja þótt hann hefði fengið kvikasilfursmeðferð
við sjúkdómi sínum og þess vegna líklega orðið
ófrjór. í Jónshúsi hékk enn uppi síðast þegar ég
vissi mynd af Jóni ungum og Ingibjörgu gamalli
hlið við hlið. Teprulaus afstaða sagnfræðinnar til
kynsjúkdómsins hefði í þessu tilfelli komið í veg
fyrir að hallaði svo mikið á veslings frúna.
Enn eigum við langt í land með að frelsast
neðan þindar, eitt merki þess er hve léleg upplýs-
ingin er varðandi þvagleka kvenna. Rödd lækna
þyrfti að skila sér betur til almennings varðandi
heilsu þeirra líkamshluta sem þótt hafa dónalegir.
Þórunn
Valdimarsdóttir
Þórunn Valdimarsdóttir fædd-
ist 1954 í Hafnarfirði. Hún
tók cand.mag.-próf í sagnfræði
frá HÍ 1983 og hefur síðan
að mestu fengist við ritstörf,
bæði sagnfræði, ævisögur og
skáldsögur. Meðal bóka henn-
ar eru: Snorri á Húsafelli.
Saga frá 18. öld (1989), Sól
í Norðurmýri. Píslarsaga úr
Austurbæ (ásamt Megasi,
1990), Leikfclag Reykjavíkur.
Aldarsaga (ásamt Eggerti
Þór Bernharðssyni, 1997),
Stúlka meö fingur (1999),
Engin venjuleg kona. Litríkt
líf Sigrúnar Jónsdóttur kirkju-
listakonu (2000), Kristni á
Islandi. Til móts við nútímann.
IV. bindi, fyrri hluti (2000).
- Nýjasta bók hennar, Upp á
Sigurhæðir - saga Matthíasar
Jochumssonar, var tilnefnd til
Hinna íslensku bókmennta-
verðlauna 2006.
Læknablaðið 2007/93 91