Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.02.2009, Side 27

Læknablaðið - 15.02.2009, Side 27
FRÆÐIGREINAR SJÚKRATILFELLI (e. stereognosis) og dofi sem ertn er til staðar, þrem- ur árum síðar, þegar þessi grein er skrifuð. Hann getur til dæmis enn ekki greint hlut í vinstri hendi með því að þreifa á honum og finnur því ekki heldur hluti sem hann er með í vasanum. Hann verður að sjá hlutina til að greina þá. Mat á málgetu Við fyrsta mat/skimun talmeinafræðings innan 24 klukkustunda frá innlögn á Landspítala svaraði AA eingöngu með já/nei en tjáði sig að öðru leyti ekki neitt í tali. Hann virtist skilja það sem sagt var við hann. Við komu á Talmeinaþjónustu spítalans, rúmri viku síðar, voru eftirtalin málstolspróf lögð fyrir: (1) a. Boston Diagnostic Aphasia Examination - BDAE14 - ítarlegt málstolspróf sem kannar málskiln- ing, máltjáningu, lestur, skrift og reikning b. Boston Naming Test - BNT15 - sem kannar orð- minni c. Setningafræðipróf6 - það prófar skilning á mál- fræðilega flóknum setningum d. Reading Comprehension Battery for Aphasia - RCBA17 - prófið metur hagnýtan lesskilning Niðurstöður þessara ítarlegu prófana fylgja hér að neðan, en prófunin teygði sig yfir rúmlega tvær vikur. Sjúklingur kom daglega í klukkutíma í senn til talmeinafræðinga. Til viðbótar við þessi próf var rétthenda prófuð sérstaklega á svokölluðu Edinburgh Handedness lnventory.18,19 Málskilningur á BDAE AA skildi daglegt mál vel og hann fylgdi tveggja og þriggja þrepa fyrirmælum rétt. Grunngreining orða var góð, hann benti réttilega á myndir af hlut- um, líkamshlutum, litum, bókstöfum og tölustöf- um. Orðskilningur eftir flokkum var sömuleiðis góður (verkfæri, matur, dýr) og hann átti ekki í neinum erfiðleikum með að benda á mismunandi staðsetningar á landakorti. Sömuleiðis reyndist honum auðvelt að svara merkingarfræðilegum spumingum um ýmsa hluti. Skilningur á hug- tökum og alllöngum frásögnum þar sem spurt var út í efnið með já/nei-spurningum reyndist góður að undanskildu einu atriði. Sjúklingi gekk vel að skilja málfræðilega flóknar setningar, bæði setn- ingar þar sem fram kom ópersónuleg þolmynd, framvinduhorf og forsetningaliðir (a) og dæmi þar sem röð eiganda og eignar er mismunandi (b). Þessar setningagerðir eru sýndar í dæmi: (2) (2) a. Bentu á myndina þar sem: verið er að snerta gaff- alinn með skeiðinni b. Á þessari mynd: Hver er hundur þjálfarans og Hver er þjálfari hundsins Og þegar aðalsetningar með aukasetningum eins og (3) voru lagðar fyrir AA var hann ekki í neinum vandræðum: (3) a. Strákurinn sem er í stígvélum eltir stelpuna b. Mamma kallar á stelpuna sína sem er með ljóst hár Sérstakt próf sem ber heitið Setningafræðipróf var einnig lagt fyrir til að kanna málfræðigetuna enn frekar en sjúklingurinn svaraði öllu rétt nema tveimur atriðum (43/45). Annars vegar var um að ræða skilning á andlagsklofningssetningu (a) og hins vegar kjarnafærslusetningu (b), eins og sjá má í dæmi (4): (4) a. Það er stelpan sem strákurinn myndar b. Stelpuna er strákurinn að mynda Þetta þykja hvort tveggja flóknar og erfiðar setningagerðir fyrst og fremst vegna þess að ger- andinn, í þessu tilfelli strákurinn, er aftar en þol- andinn í setningunni en í venjulegum germynd- arsetningum er því öfugt farið. Þá er gerandinn fremst í setningunni. Málstolssjúklingar ruglast oft á þessu og túlka þessar flóknu setningar allar þannig að gerandinn sé fyrr í röðinni en það þýðir að þar sem röðinni hefur verið breytt, túlka þeir setningarnar rangt.20'21 Máltjáning Máltjáning var nánast engin til að byrja með nema já og nei. Þremur vikum eftir áfallið fór AA að geta tjáð sig með stökum orðum og stuttum setningum, en hann talaði afar hægt. I sjálf- sprottnu tali átti hann erfitt með að bera fram sam- hljóðaklasa og einfaldaði þá flesta: (5) a. f/fj (ber fram f í stað fj) fólublátt/fjólublátt b. t/tv, teir/tveir c. f/lf, tóf/tólf, o.s.frv. Þegar hann byrjaði að tala kom í ljós að hann vantaði alveg svokallaðan aðblástur á undan tvöföldu samhljóðunum /pp/, /tt/ og /kk/ og líka á undan /pl/ og /pn/. Dæmi um orð með slíkum aðblæstri eru hoppa, fletta, flikki, epli og opna LÆKNAblaðið 2009/95 1

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.