Læknablaðið - 15.02.2009, Side 35
Sigurður
Böðvarsson
sigurdbo@landspitali.is
Stjórn LÍ
Birna Jónsdóttir,
formaður
Þórarinn Guðnason,
varaformaður
Sigurveig Pétursdóttir,
gjaldkeri
Sigríður Ó. Haraldsdóttir,
ritari
Elínborg Bárðardóttir
Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir
Kristján G. Guðmundsson
Sigurður Böðvarsson
Valgerður Rúnarsdóttir
I pistlunum Úrpenna
stjórnarmanna Ll birta
þeir sínar eigin skoðanir
en ekki félagsins.
Ú R
UMRÆÐUR 0 G
PENNA STJÓRNARM
F R É T T I R
A N N A L í
Læknafélag
Reykjavíkur 100 ára
Læknafélag Reykjavíkur var stofnað 18. október
1909. Þetta fyrsta félag íslenskra lækna var gagngert
stofnað til að koma að samningagerð félagsmanna
við, þá nýstofnað, Sjúkrasamlag Reykjavíkur.
Stofnfélagar í Læknafélagi Reykjavíkur voru níu
og fyrsti formaður félagsins var Guðmundur
Magnússon. Fljótlega þróaðist starfsemi félagsins
til fleiri átta en samningagerðar og voru haldnir
ýmsir fræðslufundir um sjúkdóma og önnur
læknisfræðileg efni, - svo sem hvort læknar mættu
ávísa lyfjum sem innihéldu vínanda! Jafnframt er
Ijóst að læknar stofnuðu félagið ekki eingöngu til
að slá skjaldborg um hagsmuni sína, heldur var
þeim og mjög umhugað um hagsmuni sjúklinga
sinna og að sem flestir nytu læknishjálpar.
Læknafélag Reykjavíkur hóf útgáfu Lækna-
blaðsins árið 1915 og tókst með því að halda úti
fræðilegri umræðu og birta annan fróðleik.
A fundi félagsins í nóvember 1916 var kosin
nefnd til að huga að stofnun heildarsamtaka lækna
á íslandi og loks var Læknafélag íslands stofnað á
fundi í Læknafélagi Reykjavíkur 14. janúar 1918.
Sá félagsskapur þótti nauðsynlegur til að koma að
kjaramálum lækna, læknisbústöðum, utanferðum,
bókum og tímaritum og sumarfríum!
Aldarafmæli Læknafélags Reykjavíkur verður
fagnað með ýmsum hætti á þessu ári. Segja má
að afmælishátíðin hafi hafist 19. janúar síðast-
liðinn þegar félagið, í góðri samvinnu við félag
áhugamanna um sögu læknisfræðinnar, hélt há-
degisverðarfund á Læknadögum. Jón Ólafur
ísberg sagnfræðingur flutti þar erindi um félagið
og störf félagsmanna undanfarin 100 ár.
Á næstu mánuðum verða ýmsir atburðir til að
fagna þessum merku tímamótum og má raunar
segja að skipulögð hafi verið afmælishátíð sem
hefur þegar hafist og mun standa allt til afmælis-
dagsins 18. október, þegar hún nær hámarki með
fræðslu- og listaþingi lækna og síðar afmælis-
veislu.
Á afmælisárinu verður lögð áhersla á fræðslu
fyrir almenning varðandi líf og störf lækna og
framlegð þeirra til samfélagsins.
Á næstu mánuðum verður fjallað um sögu
félagsins í Læknablaðinu. Jafnframt munu birtast
þar viðtöl við ýmsa valinkunna eldri kollega. Þá
hefur fyrmefndur Jón Ólafur ísberg sagnfræð-
ingur tekið að sér að skrifa yfirlitsgreinar um
fjögur sögufræg hús í Reykjavík sem tengjast
sögu félagsins og þar með læknisfræðinnar á
Islandi. Fyrirhugað er einnig að reisa skildi fyrir
utan hvert þessara húsa og verða þar tekin saman
helstu atriði úr sögu þess.
Allar góðar hugmyndir og tillögur að verkefn-
um eða atburðum á afmælisárinu eru vel þegnar.
Þess má geta að í tilefni afmælisins gaf
Læknafélag Reykjavíkur á síðasta ári 25 milljónir
króna til stofnunar Lækningaminjasafns íslands
við Nesstofu á Seltjamamesi.
Ég vil þakka sérstaklega Ólafi Þór Ævarssyni,
formanni 100 ára afmælisnefndar Læknafélags
Reykjavíkur, og Atla Þór Ólasyni, formanni Félags
áhugamanna um sögu læknisfræðinnar, fyrir
þeirra aðkomu að skipulagningu afmælisársins.
Ég vil að lokum óska öllum félagsmönnum í
Læknafélagi Reykjavíkur til hamingju með afmælið.
ísberg JÓ. Líf og lækningar. íslensk heilbrigðissaga. Hið íslenska bók-
menntafélag, Reykjavík 2005.
Nýráðinn hagfræðingur til LÍ
Um áramótin hóf störf á hagdeild Læknafélagsins
Sólveig Fríða Jóhannsdóttir. Sólveig útskrifaðist
með C.Sc. í verkfræði frá Háskóla íslands árið 1997
og M.Sc gráðu í hagfræði frá sama skóla árið 2001.
Lengst af hefur hún starfað hjá Hagfræðistofnun
HÍ sem sérfræðingur. Þar vann hún meðal annars
úttektir og skýrslur um heilbrigðismál eins og spá
um þörf fyrir vinnuafl í heilbrigðiskerfinu, kostn-
aðargreiningu á heilbrigðisþjónustu, fjármögnun
og rekstur heilbrigðisþjónustu og ýmsa framreikn-
inga á heilbrigðisútgjöldum.
Verkefnum Sólveigar hjá Læknafélaginu má
skipta í femt. í fyrsta lagi er forvinna við kjaramál
lækna en þau hafa orðið æ flóknari í seinni tíð, ekki
síst vegna fjölbreyttara starfsumhverfis en áður var.
I öðru lagi mun hiin vinna hagtölur heilbrigðismála
og kostnaðargreiningu læknisverka. Það er áríðandi
að samtök lækna beri gott skynbragð á eðli slíkra
talna og samhengi þeirra hér innanlands og í sam-
anburði við erlendar hagtölur. í þriðja lagi mun hún
koma að forvinnu við stefnumótun samtaka lækna
varðandi mótun hins íslenska heilbrigðiskerfis og
í fjórða lagi mun hún veita ráðgjöf til fyrirtækja
lækna og hópa lækna á sama starfsvettvangi.
LÆKNAblaðið 2009/95 131