Læknablaðið - 15.02.2009, Page 43
UMRÆÐUR 0 G FRÉTTI
HJARTAVERN
„Konur á íslandi í dag eru í svipuðum áhættu-
flokki gagnvart kransæðasjúkdómum og konur í
Suður-Evrópu. Það er frábær niðurstaða en samt
eru margar íslenskar konur sem fá sjúkdóminn þó
þær séu færri en karlarnir og það gerist síðar á ævi
kvennanna."
Áhættuþættirnir eru teknir fyrir sérstaklega
í handbókinni og reykingar eru þar einn helsti
skaðvaldurinn.
„Þessar upplýsingar liggja hér og við erum að
vona að fólk muni nýta sér þær við störf, kennslu
og upplýsingagjöf. Ef einhver þarf að halda fyrir-
lestur um skaðsemi reykinga þá er einfalt að sækja
línurit og töflur í handbókina okkar og það sparar
vissulega tíma og upplýsingar héðan eru trygging
fyrir því að þær séu sem réttastar og nákvæmastar.
Það versta sem hægt er að gera í allri fræðslu er að
vera með rangar eða ónákvæmar upplýsingar. Þá
glatast traust almennings og það er erfitt að vinna
það til baka."
Af tölum um tíðni dauðsfalla af völdum reyk-
inga sést að þeim hefur fækkað um 100 á ári frá því
1981. „Á þessum sama tíma hefur dregið úr reyk-
ingum um 10%. Ef okkur tækist að minnka reyk- „Allir geta nýtt sér upp-
ingar um önnur 10% þá myndi dauðsföllunum lýsmgar úr Handbók
° r J Hjartaverndar, segir
fækka um 50 í viðbót. Það er því eftir heilmiklu að vilmundur Guðnasonfor-
slægjast, sérstaklega þegar haft er í huga að þetta stöðulæknir.
eru nær allt ótímabær dauðsföll."
Vilmundur segir skýringu á lækkun kólest-
eróls í blóði hjá þjóðinni stafa af breyttu mataræði
nær eingöngu. „Þetta er gríðarlega gott dæmi um
áhrif fræðslu og áróðurs og segir kannski meira en
mörg orð um hvernig ná má árangri með miðlun
upplýsinga til heillar þjóðar. Þessi breyting stafar
fyrst og síðast af því að þjóðin hefur dregið veru-
lega úr neyslu harðrar fitu. Hvort við eigum eftir
að sjá bakslag núna þegar kreppir að og fólk fer
aftur að borða hefðbundinn íslenskan mat á eftir
að koma ljós. Kannski verður þetta til góðs, neysla
fituríks skyndibita minnkar en fólk gætir sín samt
á hörðu fitunni í hefðbundna matnum."
Offitutengdir sjúkdómar
Þjóðin er að þyngjast, því verður ekki á móti mælt.
Tölur Hjartaverndar sýna svart á hvítu að 60%
LÆKNAblaðið 2009/95 139