Læknablaðið - 15.02.2009, Qupperneq 51
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
MINNINGARORÐ
fljótt spor. Hún kom eins og stormsveipur inn í
íslenska læknisfræði og íslenska heilbrigðisþjón-
ustu. Kraftur hennar, snerpa og áhugi varð okkur
öllum ljós. Hún var frumkvöðull að kviðar-
holsspeglunum sem, eins og menn þekkja, er beitt
í sívaxandi mæli við flóknar aðgerðir í kvið, m.a.
fyrir atbeina Margrétar. Síðasta greinin frá henni
og félögum birtist í Surgical Endoscopy í mars sl.
Þar lýsti hún reynslu sinni af adrenalectomium
gegnum kviðsjá.
Margrét var ekki aðeins frumkvöðull á þessu
sviði. Hún braut líka ákveðinn ís, stundum mjög
þykkan, með því að vera kona og skurðlæknir. Sem
slík var hún og er fyrirmynd margra ungra kvenna
í stéttinni og reyndar er hún fyrirmynd beggja
kynja í Ijósi þekkingar sinnar og lækniskúnstar.
Slíkar fyrirmyndir eru miklvægar og aldrei nógu
margar. Ég held reyndar að Margrét hafi ekki séð
sig sem neinn sérstakan talsmann stöðu kvenna,
veit ekki hvort hún var í neinni kvennahreyfingu,
en með geðhöfn sinni, framkomu og framgangi
öllum var hún það. Margrét var nefnilega klár án
þess að vita af því, sjaldgæfur eiginleiki.
Við sem áttum þess kost að vinna með henni
að erfiðum klínískum vandamálum erum þakklát
fyrir þá reynslu, þar kom íhygli hennar, skerpa,
natni, innsæi og mannskilningur glögglega í ljós.
Margrét átti mikinn þátt í þróun Læknadaga
eins og þeir eru núna, var í mörg ár í undir-
búningsnefnd þeirra með nokkrum nytsömum
sakleysingjum. Birna Jónsdóttir, formaður okkar,
segir að Margrét sé guðmóðir Læknadaga, það er
titill sem Margrét ber með rentu.
Margrét varð dósent í almennum skurðlækning-
um við læknadeild 1985 og prófessor 2002. í því
hlutverki sómdi hún sér vel. Hún hafði mikinn
áhuga á kennslu og þróun hennar, og vann þar
ötullega. Þar nutu ályktunarhæfni, kraftur og
greind hennar sín mjög vel. Það voru forréttindi
að vinna með henni að þessum málum, ég minnist
samstarfsins með eftirsjá og þakklæti, þetta voru
góðar stundir.
Margrét setti ekki einungis spor á umhverfi sitt
sín hér á landi, kollegar hennar á Yale hafa stofnað
til fyrirlestraraðar við sjúkrahúsið þar henni til
heiðurs. Þannig verður hennar ætíð minnst fyrir
frábært framlag til skurðlækninga á Yale og í
heiminum öllum, eins og Eugenia Vining, kollegi
Margrétar á Yale, kemst að orði í minningargrein
í Morgunblaðinu. Kannski er erfitt að sýna henni
meiri heiður, en hann á hún skilið, margfaldlega.
Eins og ég sagði, mörgum okkar er orðs vant á
svona stundu.
Að lokum vottum við kollegar Margrétar
ungum sonum hennar og Jóns Ásgeirs, foreldrum
hennar og fjölskyldu allri djúpa samúð, okkar
missir er mikill, þeirra missir er mestur. Ég vil biðja
ykkur að rísa úr sætum og votta Margréti virðingu
okkar og lýsa söknuði okkar með stuttri þögn.
Þakka ykkur fyrir.
Vísindasjóður Félags
íslenskra heimilislækna
- vorúthlutun 2009
Vísindasjóður Félags íslenskra heimilislækna úthlutar styrkjum
til vísindarannsókna tvisvar á ári.
Umsóknir fyrir vorúthlutun 2009 þurfa að berast sjóðnum fyrir
20. febrúar næstkomandi og ber að skila rafrænt til magga@lis.is á
þartilgerðum eyðublöðum ásamt rannsóknar- og fjárhagsáætlunum,
eða framgangsskýrslu ef um endurumsókn sama verkefnis er að
ræða.
Lög vísindasjóðs og eyðublöð er að finna á heimasíðu FÍH. Nánari
upplýsingar veitir Jóhann Ágúst Sigurðsson johsig@hi.is
Stjórn Vísindasjóðs FÍH
J HELCELANDSSYKEHUSET
HELCELAANTEN SKIEMT)E-CAETIE
P/O-avdelingen, Boks 568, 8651 Mosjoen.
• ••
Helgeland Hospital Mosjoen has a vacancy
for the following position:
The surgical section
Chief physician urology
(NR id no. 814).
The surgical section has a vacancy for the permanent position of
Urologist. Due to normal attrition from the position, appointment may
take place by agreement.
More information is available upon enquiry to head of surgical section
Bjorg Rossvoll (+47) 75 11 52 04.
We request that you apply electronically via www.jobbnorge.no
or www.Helgelandssykehuset.no, where the complete job
announcement is also available.
Deadline for application: 19 February 2009.
o
LÆKNAblaöiö 2009/95 147