Læknablaðið - 15.02.2009, Blaðsíða 53
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA
Ólafur Ólafsson
fyrrum landlæknir
Gunnar A.
Ólafsson
MPA, MPH
Jón G.
Jónasson
meinafræöingur
Friðbert
Jónasson
augnlæknir
Árangur í heilbrigðisþjónustu á íslandi
Þegar rætt er um árangur í heilbrigðisþjónustu á
Islandi hefur lengst af verið vitnað til þess að við
búum við lengstar ævilíkur og lægsta burðarmáls-
dauða í heimi. Fleira en góð heilbrigðisþjónusta
hefur þó áhrif á þessar breytur, svo sem lífskjör
og fleira. En lítum á árangur okkar til dæmis gegn
kransæðasjúkdómum, krabbameini, gigt, sykur-
sýki og blindu. í baráttu gegn þessum sjúkdóm-
um hefur aðgengi að læknisþjónustu, tækni og
hjúkrun afgerandi þýðingu við líðan og meðferð
sjúklinga.
Kransæðasjúkdómar: íslendingar hafa tekið
þátt í alþjóðlegu „Monica" kransæðarannsókninni
frá árinu 1982 sem nær til 27 þjóða. Þar er spurt
um aðgengi kransæðasjúklinga að sjúkrahúsum
og árangur meðferðar 28 dögum eftir sjúkrahús-
dvöl, það er hversu margir lifa af kransæðaáfall.
ísland, Svíþjóð og Noregur ná bestum árangri í
þessari rannsókn og eru í 1.-3. sæti.1 Ekki kemur
þar fram mismunur milli kynja.
Bandaríkjamenn ná ekki samsvarandi árangri
og Norðurlöndin í viðureigninni við krans-
æðasjúkdóma samkvæmt rannsókninni og þar
kemur fram munur á afdrifum kvenna og karla.
Bandaríkjamenn virðast veita konum síðri þjón-
ustu á sviði kransæðasjúkdóma en körlum, konur
þar eru margar verr tryggðar og búa við lélegri
efnahag en karlar og þess vegna leita færri konur
til bráðaþjónustu og til dæmis í kransæðaþræð-
ingu en karlar.1'3
í tilvitnaðri grein1 kemur fram að kostnaður
vegna heilbrigðisþjónustu á Norðurlöndum fell-
ur 80-85% undir samfélagslegan kostnað og er
í heild 2400-3400 dollarar á íbúa á ári (2003). í
Bandaríkjunum fellur um 70% af kostnaði undir
einkatryggingar og nemur í heild um 5200 doll-
urum á ári.
Krabbamein: í allmörg ár hefur verið gerður
samanburður á horfum sjúklinga sem greinst
hafa með krabbamein í þeim Evrópulöndum sem
halda krabbameinsskrár. Þessi vinna ber heitið
EUROCARE. Samanburður á horfum þeirra sem
greindust 1990-94 hefur birst sem EUROCARE-3,4
en nú er byrjað að birta tölfræðilegan samanburð
undir heitinu EUROCARE-4 fyrir þá sem greind-
ust á tímabilinu 1995-99.5 íslendingar koma afar
vel út þegar skoðað er hversu margir sjúklingar eru
lifandi fimm árum eftir greiningu. Við erum þar
einna fremst ásamt Svíum. Norðurlandaþjóðimar
koma almennt vel út en Danir síst þeirra.
í þessum samanburðarrannsóknum er byggt á
upplýsingum úr krabbameinsskrám Evrópulanda.
Slíkar skrár á Norðurlöndum og hjá fimm
öðrum Vestur-Evrópuþjóðum ná til nánast allra
íbúa landanna sem greinast með krabbamein.
(Krabbameinsskrá fslands hefur verið starfrækt
síðan 1954 og rekin af KÍ. Einkum ber að þakka pró-
fessorunum Níelsi Dungal og Ólafi Bjarnasyni að
hún tók til starfa svo snemma.) Krabbameinsskrár
annarra Evrópuþjóða en ofangreindra ná aðeins
til 8-63% íbúa og gefa því ekki eins raunsanna
mynd. Austurríkismenn virðast ná aðeins betri
árangri í lifun en Norðurlandaþjóðirnar, en skrár
í Austurríki taka aðeins til um 8% þjóðarinnar.
Algengustu krabbamein íslendinga eru brjósta-
krabbamein og blöðruhálskirtilskrabbamein, en
fimm ára lifun sjúklinga með þessi mein hér á
landi er meðal þess allra besta sem gerist í heim-
inum. Athyglisvert er að hlutfallslega voru fleiri
með skjaldkirtils-, brjósta-, eitla(non-Hodgkins)-,
maga-, þvagblöðru-, blöðruháls-, eggjastokka- og
leghálskrabbamein á íslandi lifandi fimm árum
eftir greiningu en í hinum Norðurlöndunum og í
Vestur-Evrópu.4-5
Fimm ára lifun krabbameinssjúklinga í
Bandaríkjunum virðist í heild heldur betri en í
Norður- og Vestur-Evrópu.6 Þó eru undantekn-
ingar á því, til dæmis er fimm ára lifun sjúklinga
með maga-, legháls-, eggjastokka- og eitlakrabba-
mein betri á íslandi og meðal sumra annarra
Evrópuþjóða en í Bandaríkjunum. Þegar horfur
krabbameinssjúklinga í Bandaríkjunum eru skoð-
aðar ber þó að hafa í huga að þar er erfitt að fylgja
fólki eftir og staðreyna afdrif. Sjúklingar eru í
uppgjörum krabbameinsskráa taldir lifandi nema
upplýsingar um andlát hafi borist skránni. Því
má búast við að lifunartölur séu óraunhæft háar
í Bandaríkjunum miðað við samsvarandi tölur frá
Evrópu.
Augnsjúkdómar: Fyrir hálfri öld var helming-
ur allrar blindu á íslandi vegna gláku og ísland
með hæsta blindutíðni í Evrópu vegna gláku.7
Á níunda áratug síðustu aldar var glákublinda
komin niður í um 18% og um aldamótin 2000 var
gláka blinduorsök í um 5% tilfella og hvergi lægri í
Evrópu.8-9 Hverju má þakka þennan árangur? Fólk
er vel upplýst um glákusjúkdóminn, veit hvort
nánir ættingjar hafa gláku og sinnir eftirliti. Þetta
og bætt aðgengi að augnlæknum, stuttar boðleiðir
og bætt meðferðarúrræði hafa skilað þessum ár-
angri.
Tekist hefur að halda blindu vegna sykursýki
lágri. Um 1980 var blinda vegna sykursýki ástæða
lögblindu í 2,4% tilvika en um 1% í nýrri rann-
sóknum.9'11 Blinda meðal sykursjúkra á íslandi er
talin vera sú lægsta í heiminum.11 Aflimanir vegna
LÆKNAblaðið 2009/95 1 49