Læknablaðið - 15.02.2009, Qupperneq 70
HUGLEIÐING HOFUNDAR
Ólafur Haukur
Símonarson
Ólafur Haukur Símonarson
(1947) lærði arkitektúr
og bókmenntir í
Kaupmannahöfn og
Strasbourg. Hann hefur
að mestu helgað sig
bókmenntaskrifum og
þýðingum frá 1976 og gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum
á því sviði. Ólafur Haukur
hefur samið fjölda leikrita:
Blómarósir, Bílaverkstæði
Badda, Hafið, Gauragang
og Þrek og tár. Myndin
Ryð (1990) og Hafið
(2002) voru gerðar eftir
verkum hans. Auk Ijóða
og smásagna hefur Ólafur
sent frá sér skáldsögur. Árið
1997 fékk sakamálasagan
Líkið í rauða bílnum
frönsk bókmenntaverðlaun
fyrir bestu norrænu
glæpasöguna. Ólafur
Haukur hefur þýtt fjölda
bóka, leikrita og kvikmynda,
og hefur samið og gefið út
fjölda sívinsælla sönglaga
og texta.
Af ærulausum unglingum
Nú eru höfð um það mörg orð að íslenska þjóðin hafi
glatað æru sinni. Ekki bara einn og einn maður, held-
ur þjóðin öll eins og hún leggur sig. Þetta æruleysi er
einkum talið koma sér illa erlendis, þegar menn þurfa
að kaupa gistingu eða mat á veitingahúsum. I fjöl-
miðlum eru rakin átakanleg dæmi um það að erlend-
ir veitingaþjónar hafi vísað íslenskum mönnum á dyr,
og að móttökustjórar góðra gistihúsa hafi, þegar þeir
sáu glitta í íslenskt vegabréf, æpt á þreytta ferðalanga
að ekki einu sinni kústaskápurinn væri laus. Algengt
mun líka að erlendir hraðbankar skelli í lás um leið
og fram er rétt íslenskt greiðslukort. Þannig kemur
æruleysið niður á ferðalangnum á erlendri grundu.
Fá dæmi munu hins vegar um að æruleysi hafi skap-
að mönnum vanda hér innanlands.
Nú vill þannig til að ég hef dálitla reynslu af því
að vera ærulaus í útlöndum. Sautján ára gamall flutti
ég til Danmerkur með 50 kg þunga ferðatösku, og raf-
magnsgítar og magnara sem lögðu sig á önnur 50 kg.
í boði danskra leigumiðlara gekk ég síðan um götur
Kaupmannahafnar í viku með þessi 100 kíló í leit
að herbergi til að leigja. Þá höfðu handleggir mínir
lengst um 10 sm en fæturnir styst um tíu. Mér varð til
lífs að gefast upp á réttum stað á réttum tíma: þar sat
þessi ærulausi íslenski unglingur úttaugaður á gít-
armagnara sínum á gangstéttinni á Vesturbrúargötu
rétt í þann mund að ungfrúin Nielsen, sem rak Frk.
Nielsens Pensionat, átti erindi út í konfektbúð.
Ekki að orðlengja það: þessi yndislega stúlka
á níræðisaldri sá aumur á piltinum og munstraði
hann inn í lítið kvistherbergi með frábæru útsýni yfir
skítakamrana í portinu og með yndislegan kattakór
sem byrjaði konserta sína á þökunum stundvíslega
við sólarlag og söng til morguns. Þarna fór vel um
íslendinginn sem ennþá hafði ekki hugmynd um að
hann væri ærulaus.
Það var ekki fyrr í kvöldmatnum, sem borinn
var á borð í fallegum matsal, að hinir alvarlegu
siðferðislegu brestir undirritaðs urðu opinberir. Rétt
er að taka það fram að á pensiónati ungfrúarinnar
Nielsen var ég einn undir fimmtugu - meðaldur
fastbúandi gesta hefur líklega verið um 60 ár. En nú
vísaði ungfrúin mér til borðs þar sem fyrir sátu tveir
herramenn á virðulegum aldri, báðir með mikil arn-
arnef og sópskegg og grimmdarlegir á svip. Ungfrúin
kynnti mig sem "en meget sömmelig ung herre fra
Island". Og mennirnir með arnarnefin voru bræður.
"Nogle meget tapre danske officerer", sagði ungfrúin
Nielsen og lagaði á sér hárkolluna. Það var sem sé
hinn voldugi danski her sem hvessti á mig augun,
sautján ára gemling ofan af Islandi.
Eg var ekki búinn að setja upp í mig marga bita
af schnittselinu þegar annað arnarnefið mælti: Illa
brugðust íslendingar sínum hernumda danska kóngi
þegar þeir skildu við hann árið 1944. Islendingar
eru ærulausir menn, hafandi ekki biðlund til að sjá
sinn kóng lausan og frjálsan undan oki hemámsins.
Aldrei munum við, danskir liðsforingjar og danska
þjóðin, fyrirgefa þá löðurmannlegu framkomu ykkar
Islendinga.
Þarna var ég nokkurn veginn búinn að missa alla
matarlyst, enda skyndilega orðinn ærulaus. Sat með
tár í augum og skeifu á munninum, hafandi fram að
þessu ekki haft nokkra hugmynd um æruleysi mitt og
þjóðar minnar. Langaði mig mest að taka eitthundrað
kílógramma farangur minn og hlaupa til Þýskalands
í einum spretti eða til Svíþjóðar, en var ekki eins víst
að æruleysið mundi fylgja mér þangað? Mundi ég
ekki alls staðar stimplaður ærulaus íslendingur sem
hefði svikið danska kónginn þegar hann engdist
bjargarlaus undir járnhæli nasista?
Það kom í ljós að flestir íbúanna á pensiónati
ungfrúarinnar Nielsen voru sömu skoðunar og arn-
arnefsbræður: íslendingar væru ærulausir menn.
En - hér kemur það furðulega - arnarnefsbræður
létu mig aldrei með neinum hætti gjalda fyrir þá
miklu meintu ótryggð íslendinga við kóng hinnar
dönsku þjóðar. Þvert á móti báru þessi öldruðu val-
menni mig íslenska æruleysingjann á höndum sér, og
ungfrúin Nielsen lét ekki líða þann dag að hún ekki
teldi í mér rifbeinin og lýsti því síðan yfir í heyranda
hljóði að með illu eða góðu skyldi hún koma mér í
viðunandi hold fyrir vorið.
Og þegar þessi æruleysingi álpaði því út úr sér
við arnarnefsbræður að hann ætlaði að verða rithöf-
undur, þá hlógu þeir ekki, reyndu ekki einu sinni að
telja vitleysingnum hughvarf. Fyrst þú vilt þetta,
sögðu hinir öldnu stríðsmenn með áherslu á orðinu
þetta, þá er eins gott að þú farir að lesa eitthvað upp-
byggúegt
Þannig æxlaðist það að fyrstu ritin sem und-
irritaður braust í gegnum með heiftarlegu átaki á
pensiónati ungfrúarinnar Nielsen voru hin alræmdu
rit Ríkið eftir Platon og Furstinn eftir Machiavelli.
Því miður tókst mér aldrei að gera mér mat úr
ráðleggingum Machiavellis til uppvaxandi stjórnvitr-
inga, enn síður að á mig biti fyrirlitning Platons á
skáldskapargrillum. Vísast hef ég verið of ærulaus til
að skilja hvernig slæg viska og grimmd getur gagnast
mönnum í hversdeginum. Hvað þá ég næði að fatta
hættuna sem Platon kvað samfélaginu stafa af skáld-
skap. Mér sýndist þvert á móti að skáldskaparruglið,
eins og Platon kallaði það, gerði lífið ögn skiljanlegra,
og af lestri yrði maður ekki heimskari heldur jafnvel
ofurlítið vitrari.
Það væri rangt af mér að halda því fram að nú-
verandi vandræði Islendinga varðandi hraðbanka í
útlöndum, fullbókuð hótel og ókurteisa þjóna skiptu
engu máli. Vonandi greiðist úr þeim snurðum. Á end-
anum er það hins vegar þannig að einstaklingurinn
mun verða veginn og metinn á eigin forsendum;
hafi hann einhverra hluta vegna misst æruna, en hafi
góðan vilja til að bæta sig, þá eru allir boðnir og búnir.
Arnarnefsbræðrum tókst að mennta mig, æruleys-
ingjann, ofurlítið. Þökk sé þeim. Og ungfrúnni góðu
Nielsen tókst að fita mig um þrjú kílógrömm þennan
vetur. Hún dansar í Paradís!
Fortíðin fylgir þér inn í framtíð sem þú sjálfur
mótar. Eigum við ekki að trúa því?
166 LÆKNAblaðið 2009/95