Læknablaðið - 15.03.2009, Blaðsíða 3
Niðurskurður vofir yfir
Stjóm Landspítalans hefur tilkynnt að á árinu verði skorið niður á ýmsum póstum stofnunarinnar.
Starfsfólki verður fækkað og starfshlutfall í einhverjum tilfellum minnkað. Þá verða deildir samein-
aðar, meðal annars bráðadeildir í Fossvogi og við Hringbraut. Hafa læknar haft ýmsar athugasemdir
við þessa fyrirætlan og til dæmis bent á að með aukinni fjarlægð milli hjartadeildar á Hringbraut og
sameinaðrar bráðamóttöku í Fossvogi aukist hætta á því að ekki takist að bjarga öllum sem lenda í
nauðum vegna hjartastopps. Nánar verður fjallað um þetta í Læknablaðinu á næstunni.
LISTAMAÐUR MÁNAÐARINS
Hrafnkell Sigurðsson (f. 1963) hefur á ferli sínum fengist
við ólíkar seríur Ijósmynda sem byggja á afmörkuðu
viðfangsefni í ýmsum tilbrigðum. Þá hefur hann fengist
við aðra miðla, svo sem myndbandsverk, grafíkverk
og innsetningar. Verk hans
endurspegla sérstakan áhuga á
yfirborði þar sem samanburður
á því lífræna og ólífræna á
sér stað, mannslíkaminn og
samsett form kallast á, náttúran
og hið manngerða. I nýjustu
Ijósmyndaverkum sínum,
Uplift (2009), stillir hann upp
samþjöppuðum ruslaböggum á
leið í urðun. Hver og einn virðist
svífa frammi fyrir óræðum,
myrkum bakgrunni og form
þeirra er ýkt með sérstakri
Ijósmyndatækni listamannsins.
Verkin eru flennistór og sett
þannig fram að þau endurspegla
hlutföll manneskjunnar og
háglansandi yfirborðið virkar
um leið eins og spegill sem
áhorfandinn sér sig í. Hvert
smáartiði í ruslaböggunum verður
greinilegt, ekki aðeins hin ólífrænu
úrgangsefni, litríkir plastpokar
og þess háttar, heldur einnig hin
lífrænu sem vella úldnandi fram
inn á milli. Þrátt fyrir sóðaskapinn
er yfir verkunum lotningarfull kyrrð, sem vísar í allar
áttir í tíma. Þau myndgera samtímann í skrásetningu
á umbúðahönnun dagsins í dag og þau sækja í
fagurfræði visindaskáldskapar þar sem þau minna á
geimfar á sveimi í framtíðinni. Þá svipar þeim ekki síst til
kyrralífsmálverka fyrri alda, þar sem andstæður lita, Ijóss,
efnis og skugga móta dramatíska uppstillingu, gjarnan
ætlað að virka sem áminning um hverfulleika tilverunnar.
í ruslaböggum Hrafnkels er ekki
aðeins vísað í neyslusamfélagið
sem þau spretta úr, heldur einnig
hringrás og framvindu mannlegrar
tilveru. Það er forvitnilegt að beina
sjónum að þáttum daglegs lífs
sem við viljum sem minnst af vita
og skoða út frá fagurfræðilegum
forsendum. Hrafnkell hefur
skapað ýmis ólík verk tengd rusli
undanfarin ár. Hann hefur sett
fram verk þar sem ruslið fyllir
allan myndflötinn og þar sem það
speglast í samhverfu í miðjunni
og mótar mynstur. Þá hefur
nærmynd af rusli verið framhlið
verka sem opna má eins og hlera
á altaristöflu og á bak við leynist
mýnd allt annars eðlis, eyðilegt
vetrarlandslag uppi á heiði. Loks
er að minnast Ijósmynda frá
því fyrir fimm árum sem teknar
voru af ruslapokum á götum
Lundúnaborgar - ein þeirra rataði
á forsíðu Læknablaðsins eins og
sumir lesendur muna ef til vill. Til
frekari glöggvunar má benda á
heimasíðu listamannsins: www.hrafnkellsigurdsson.com
Markús Þór Andrésson
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Jóhannes Björnsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Bryndís Benediktsdóttir
Engilbert Sigurðsson
Gunnar Guðmundsson
Inga S. Þráinsdóttir
Tómas Guðbjartsson
Þóra Steingrímsdóttir
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður og Ijósmyndari
Hávar Sigurjónsson
havar@lis.is
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1800
Áskrift
9.500,- m. vsk.
Lausasala
950,- m. vsk.
Prentun, bókband
og pökkun
Prentsmiðjan Oddi
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt
til að birta og geyma efni
blaðsins á rafrænu formi,
svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita
með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch) og Journal Citation
Reports/Science Edition.
The scientific contents of the
lcelandic Medical Journal are
indexed and abstracted in
Medline (National Ubrary of
Medicine), Science Citation Index
(SciSearch) and Journal Citation
Reports/Science Edition.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2009/95 171