Læknablaðið - 15.03.2009, Blaðsíða 27
FRÆÐIGREINAR
Y F I R L I T
Geta heilsufullyrðingar á mat-
vælaumbúðum byggt á vísinda-
lega staðreyndum grunni?
Yfirlit um seddu og þyngdarstjórnun
Ingibjörg
Gunnarsdóttir1
næringarfræðingur
Annette Due2
næringarfræðingur
Leila Karhunen3
næringarfræðingur
Marika Lyly4
næringarfræðingur
Lykilorð: sedda, saðning, offita,
þyngdarstjórnun, matur.
’Rannsóknastofu í
næringarfræði við
HÍ og Landspítala,
2Faculty of Life Science,
Kaupmannahafnarháskóla,
3Food and Health Research
Centre, University of
Kuopio, Finlandi, 4VTT
Technical Research Centre
of Finlandi.
Fyrirspurnir og bréfaskipti:
Ingibjörg Gunnarsdóttir,
rannsóknastofu í
næringarfræði, Eiríksgötu
29,101 Reykjavík.
ingigun@landspitali.is
Ágrip
Ný evrópsk reglugerð leyfir heilsufullyrðingar á
umbúðir matvæla um áhrif innihaldsefna á seddu-
tilfinningu og þátt þeirra við þyngdarstjórnun,
að því gefnu að fullyrðingin standist kröfur um
vísindalegar sannanir. Rökin fyrir reglugerðinni
eru meðal annars að seddutilfinning eftir neyslu
matar minnki líkur á að orkuinntaka verði meiri
heldur en orkunotkun og gegni þannig hlutverki
í þyngdarstjórnun. Á þann hátt er reiknað með
því að geta minnkað líkur á offitu sem er vax-
andi heilsufarsvandi. í þessari yfirlitsgrein er gerð
grein fyrir stöðu þekkingar á því hvemig ýmsir
fæðuþættir tengjast mælikvörðum fyrir seddu og/
eða orkujafnvægi. Samantektin byggist á vinnu
norrænna sérfræðinga verkefnis (Substantiation of
weight regulation and satiety related health claims
on foods) sem styrkt var af Norrænu nýsköpunar-
miðstöðinni. Nú virðast vísindalegar sannanir á
skammtímaáhrifum trefja og próteina á seddu
vera mest sannfærandi og gætu þar af leiðandi
reynst góður kostur við þyngdarstjómun. Hins
vegar má draga í efa að unnt sé að nota fullyrðing-
ar varðandi seddu og þyngdarstjómun á umbúðir
einstakra matvæla þar sem skammtaáhrif eru
ennþá illa skilgreind á þessu sviði. Styðjast mætti
við tveggja þrepa fullyrðingar á borð við trefjaríkt
- trefjar auka seddu eða próteinríkt - prótein auka
seddu.
Inngangur
Auglýsingar um matvæli innihalda í sívaxandi
mæli næringar- og heilsufullyrðingar. Það sama
má segja um merkimiða á umbúðum matvæla.
Heilsufnllyrðing er sérhver fullyrðing þar sem er
fullyrt eða gefið í skyn að tenging sé milli tiltek-
ins matvælaflokks, matvæla, eða innihaldsefnis,
og hollustu.1 Til þess að tryggja vernd neytenda
og auðvelda val þeirra var nýlega endurskoðuð
reglugerð Evrópuþingsins og -ráðsins (EB) um
næringar- og heilsufullyrðingar við merkingar
matvæla.1 Reglugerðin verður tekin upp hér á
landi á næstu mánuðum og gildir um allar nær-
ingar- og heilsufullyrðingar í viðskiptaorðsend-
ingum, þar með talið almennar auglýsingar um
matvæli og kynningarátak. Þessi reglugerð gildir
einnig um vörumerki og vöruheiti sem líta má
á sem næringar- og heilsufullyrðingar.1 Nokkuð
hefur borið á því að margs konar fullyrðingar
séu notaðar á merkimiðum og í auglýsingum
fyrir matvæli sem varða efni sem ekki er búið
að færa sönnur á að hafi jákvæð áhrif eða ekki er
nægileg vísindaleg samstaða um. Nauðsynlegt
er að tryggja að búið sé að sýna fram á að efnin
sem fullyrðingin á við hafi í reynd jákvæð nær-
ingar- og lífeðlisfræðileg áhrif.1 Mælikvarðinn
sem Evrópusambandið mun nota við mat á vís-
indalegum rökum um heilsu verður meðal annars
byggður á niðurstöðum PASSCLAIM (Process for
the Assessment on Scientific Support for Claims
on Foods) og FUFOSE (Functional Food Science
in Europe). í þessum sérfræðihópum hafa verið
myndaðir almennir mælikvarðar, reglur sem hægt
er að leggja til grundvallar við mat á vísindalegum
sönnunum heilsufullyrðinga. Hins vegar eru ekki
gefnar greinargóðar leiðbeiningar um hvernig
þessar reglur færa sönnur á flókin viðfangsefni,
til dæmis þeim sem tengjast þyngdarstjórnun,
seddutilfinningu eða saðningu. Ekki er heldur
tekið fram hvers konar sartnanir eru fullnægjandi
og hvernig niðurstöður sem fengnar eru með
mismunandi aðferðum verði túlkaðar. Tilgangur
þessarar greinar er að gefa yfirlit um stjórn orku-
jafnvægis og hugsanlegan áhrifamátt eða tengsl
einstakra næringarefna við þyngdarstjórnun og
reynt að meta hvort fullyrðingar um innihaldsefni
á matvælaumbúðum séu réttmætar og byggi á vís-
indalegum grunni.
Notkun heilsufullyrðinga - þyngdarstjórnun,
seddutilfinning og saðning
Meðal þess sem nýja Evrópureglugerðin leyfir eru
heilsufullyrðingar sem snúa að megrun, þyngd-
arstjómun, hverfandi svengdartilfinningu eða
aukinni tilfinningu fyrir seddu og fullyrðingar um
LÆKNAblaðið 2009/95 195