Læknablaðið - 15.03.2009, Blaðsíða 49
UMRÆÐUR 0 G
F R É T T I R
J A N U S
Kristín Siggeirsdóttir fram-
kvæmdastjóri Janusar end-
urhæfingar ehf.
okkur í því að halda þessu starfi ótrauð áfram/'
segir Guðmundur.
Þrjár meginleiðir endurhæfingar
Endurhæfingunni hjá Janusi er skipt í þrjár meg-
inleiðir en þó er lögð megináhersla á að sníða
endurhæfinguna að persónulegum þörfum hvers
og eins.
„Við líkjum leiðunum þremur við umferða er
ljósin, það er að segja Rauð leið, en í henni felst
endurhæfingarmat og vandagreining, þegar ekki
er ljóst hvaða úrræði hentar einstaklingnum,
Gul leið sem er umfangsmikil endurhæfing
með eða án aðkomu kennara Tækniskólans
- skóla at\'innulífsins, og Græn leið en þar er
um að ræða eftirfylgni og/eða endurhæfingu
sem ekki er eins umfangsmikil og í gulu leiðinni.
Þá er einnig í boði Snemmtæk endurhæfing þar
sem gripið er snemma inn í, í veikindaferli og
einstaklingum gefst kostur á að koma til greining-
ar og meðferðar, jafnvel áður en sjúkdómsgreining
liggur fyrir. Stuðningur eftir endurhæfingarmat
býðst þátttakendum meðan þeir bíða eftir því að
komast í þau endurhæfingarúrræði sem lögð hafa
Verið til í endurhæfingarmati. Annars má sjá nánar
um þetta á heimasíðu okkar, www.janus.is," segir
Kristín.
Að sögn Kristínar hafa 538 einstaklingar notið
einhvers konar þjónustu Janusar endurhæfingar
frá upphafi og fram að síðustu áramótum. „Þar af
eru 158 sem lokið hafa atvinnuendurhæfingunni
fram að áramótum 2007/2008. Þriðjungur þátt-
fakenda í atvinnuendurhæfingunni eru konur og
er meðaltalsaldur þeirra 37 ár, eða frá 17-59 ára.
Verið er að taka saman tölfræði fyrir 2008 en tölur
frá upphafi og fram að áramótum 2007/2008 sýna
að þátttakendur hafa verið 2,3 ár að meðaltali frá
vinnu eða allt að 23 árum. Árangur starfseminnar
er mjög góður en árangur telst vera þegar einstak-
lingurinn fer í vinnu, nám, atvinnuleit eða vinnu á
vernduðum vinnustað. Alls hafa 118 náð þessum
árangri eða 62%, sjá mynd 1. Árangurinn er þeim
mun betri sem þátttakendur hafa verið styttri tíma
frá vinnu."
„I mínum huga er það besti hugsanlegur árang-
ur að hitta einhvern úti í atvinnulífinu, glaðbeittan
og jákvæðan, eftir að hafa komið niðurbrotinn til
endurhæfingar, rúinn sjálfstrausti og sannfærður
um að eiga ekki afturkvæmt út á vinnumarkaðinn
eða í nám. Þetta veitir manni sérstaka ánægju-
tilfinningu og sannfærir mann um að starfið hér
skilar áþreifanlegum árangri," segir Guðmundur
að lokum og undir það taka þau Ómar og Kristín.
IVIynd 1. Heildarárangur atvinnuendurhæfingarinnar árin 2000-2007.
LÆKNAblaðið 2009/95 217