Læknablaðið - 15.03.2009, Blaðsíða 59
U M R Æ Ð
LÆKNISLIST O
U R
G
0 G FRÉTTIR
FAGMENNSKA
starfsmenn í læknastétt sem tekið hafa eigið líf,
báðir einstakir hæfileikamenn á sínu sviði og
framúrskarandi læknar. Átakanlegt er til þess að
vita að báðir voru með læknanlegan sjúkdóm sem
varð þeim að aldurtila. Það er brýnt að læknar
verði sér meðvitaðir um geðheilsu sína eins og
annan heilsufarsvanda. Þunglyndi er algeng orsök
veikinda, oft til staðar samhliða öðrum veikindum
og stundum lífshættulegt ástand. Ég vona að með
betri fræðilegri þekkingu og minni fordómum
lækna gagnvart þunglyndi geti orðið tvöfaldur
ávinningur fyrir þá sjálfa og samfélagið; um leið
og læknar læra að sinna eigin geðheilsu verða þeir
betur í stakk búnir til að aðstoða á faglegan hátt
þá fjölmörgu sjúklinga sem eiga við geðraskanir
að stríða.
Heimildir
1. Bucknill JC, Tuke DH. A Manual of Psychological Medicine,
1858.
2. Center C et al. Confronting depression and suicide in
physicians: a consensus statement. JAMA 2003; 289: 3161-6.
3. American Psychiatric Association and Council on Scientific
Affairs, Physicians mortality and suicide: results and
implications of the AMA-APA pilot study, Conn Med.
1986,50;37-43
4. Rafnsson V, Gunnarsdóttir H. Dánarmein og krabbamein
lækna og lögfræðinga. Læknablaðið 1998; 84; 107-15.
5. Hem E, Haldorsen T, Aasland OG, Tyssen R, Vaglum P,
Ekeberg O. Suicide rates according to education with a
particular focus on physicians in Norway 1960-2000, Psychol
Med 2005; 35: 873-80.
6. Agerbo E, Gunnell D, Bonde JP, Mortensen PB, Nordentoft
M. Suicide and occupation: the impact of socio-economic,
demographic and psychiatric differences. Psychol Med 2007;
37:1131-40.
7. Miller MN. The Painful Truth: Physicians Are Not Invincible.
S Med J 2000; 93: 966-73.
8. Rosenthal JM, Okie S. White Coat, Mood Indigo-Depression
in Medical School. N Engl J Med 2005; 353:1085-8.
9. Voltmer E, Kieschke U, Schwappach DL, Wirsching M, Spahn
C. Psychosocial health risk factors and resources of medical
students and physicians: a cross-sectional study. BMC Med
Educ 2008; 8; 46.
10. Tyssen R, Dolatowski FC, Rovik JO, et al. Personality
traits and types predict medical school stress: a six-year
longitudinal and nationwide study. Med Educ 2007; 41; 781-
7.
11. Schwenk TL, Gorenflo DW, Leja LM. A survey on the impact
of being depressed on the professional status and mental
health care of physicians. J Clin Psychiatry 2008; 69: 617-20.
Hávar
Sigurjónsson
Læknar á
krepputímum
Það urðu líflegar umræður í kjölfar þriggja
framsöguerinda á fundi LR og Félafs ungra
lækna 24. febrúar sl. Framsögumenn voru Andrés
Magnússon geðlæknir, Gerður Aagot Ámadóttir
heimilislæknir og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir
stjórnsýslufræðingur. Yfirskrift fundarins var:
Hvernig tryggjum við heilbrigði landsmanna í
kreppunni?
Andrés fjallaði um fjármálahrunið og þöggun
um ýmis mál meðan á góðærinu stóð. Hann sagði
að öflugir aðilar í viðskiptalífinu hefðu hótað nið-
urfellingu styrkja til vísindastarfsemi ef ákveðnir
einstaklingar létu ekki af gagnrýni eða væru látnir
halda áfram störfum sínum.
Gerður velti upp ýmsum spumingum varðandi
samfélagslega ábyrgð lækna sem væri ótvíræð
og vísaði til læknaeiðsins. Þar skrifuðu læknar
undir að hafa velferð sjúklings og samfélags að
leiðarljósi. Hún nefndi einnig gagnrýna hugsun
og fagmennsku sem leiðarstef í vinnu lækna og
spurði hvort ekki mætti beita henni víðar; hvort
læknar gætu ekki spurt sig hvort ákveðin verk
væru ávallt nauðsynleg og hvort ekki mætti spara
með því staldra við og meta þörfina hverju sinni.
Sigurbjörg ræddi vanda opinberrar stjómsýslu
og svaraði spurningu þaraðlútandi með þeim
orðum að í íslenskri stjómsýslu væri vald stjórn-
Gerður Aagot Árnadóttir heimilislæknir.
málamannanna slíkt að faglegar forsendur væru
lagaðar að pólitískum ákvörðunum. Hún sagði
þetta eflaust koma læknum spánskt fyrir sjónir
sem væru vanari því að taka faglegar ákvarðanir
útfrá fyrirliggjandi forsendum. Sigurbjörg sagði
ennfremur að læknar mættu búast við því að verða
þolendur efnahagskreppunnar ekki síður en aðrir
þjóðfélagshópar.
LÆKNAblaðið 2009/95 227