Læknablaðið - 15.03.2009, Blaðsíða 47
UMRÆÐUR O G
F R É T T I R
J A N U S
Náið samstarfer á milli
Janusar endurhæfingar og
Tækniskólans, segja lækn-
arnir Ómar Hjaltason og
Guðmundur Björnsson.
greiningu á vanda hvers einstaklings og könnun
á möguleikum viðkomandi, námsgetu og fleira og
síðan ef við teljum að viðkomandi geti haft gagn
af endurhæfingu hjá okkur þá setjum við saman
endurhæfingaráætlun fyrir hann. í greiningar-
vinnunni er lagt mat á hvort viðkomandi sé
„tækur" til endurhæfingar hjá okkur og einnig
hvort önnur úrræði gætu ef til vill hentað betur/'
segir Guðmundur.
„Tryggingarstofnun ríkisins er með þjónustu-
samning við Janus endurhæfingu ehf. um
ákveðinn fjölda einstaklinga á ári og geta starfs-
menn heilbrigðisstofnana, Vinnumálastofnunar,
Velferðaþjónustu sveitarfélaganna og sjálfstætt
starfandi sérfræðilæknar sent umsókn sína hingað
beint," segir Kristín.
„Stundum er fólki vísað hingað til okkar en
á heima annars staðar," bætir Ómar við og segir
að sitt hlutverk sem geðlæknis sé m.a. að leggja
mat á andlegt ástand og getu viðkomandi. „Það
hefur aukist jafnt þétt að einstaklingar leiti hingað
sem eiga fyrst og fremst við andlega vanheilsu
að stríða. Við teljum að ástæða þess sé ekki af því
geðræn vandamál séu að aukast, heldur er skiln-
mgur að aukast og fólk leitar eftir bata og endur-
hæfingu alveg jafnt vegna geðrænna veikinda sem
hkamlegra. Þetta skiptist núorðið nokkurn veginn
til helminga að geðrænn vandi er aðalvandinn en
oft er það nú þannig að geðræn vandamál fylgja
í kjölfar þess að fólk hefur dottið út af vinnu-
markaði vegna líkamlegra veikinda. Þá þarf að
taka á hvorutveggja í endurhæfingunni."
Endurhæfingin er mjög fjölbreytt enda reynt
að laga hana að hverjum og einum. Hún getur
falið í sér margskonar viðtalsmeðferðir, iðju-
þjálfun, sjúkraþjálfun, slökun, jóga, líkamsrækt,
félagslega þjálftm auk beinna möguleika á námi
í tengslum við Tækniskólann þar sem skjólstæð-
ingum Janusar býðst að stunda nám með stuðn-
ingi, aðlagað sinni getu. „Stuðningur og aðhald
eru lykilatriði árangurs að okkar mati. Margir
hafa tilhneigingu til að heltast úr lestinni ef við
fylgjum þeim ekki fast eftir, og við tökum á
skemmri og lengri heilsuvanda. Það eru kennarar
Tækniskólans sem kenna okkar þátttakendum
og er kennslan aðskilin frá hinu almenna námi
Tækniskólans. Fólk getur einnig verið í almennu
námi í Tækniskólanum eða öðrum skólum og
með stuðning og eftirfylgd hjá okkur. Það gerist
hins vegar reglulega að eftir endurhæfingu skrá
margir sig í Tækniskólann til frekara náms eða
í aðra skóla, til dæmis háskóla, og ljúka margir
formlega námi sem hófst hjá okkur. Það er auð-
vitað mjög ánægjulegt þegar það gerist og styrkir
LÆKNAblaðið 2009/95 215