Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.2009, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.03.2009, Blaðsíða 7
Ólafur Ó. Guðmundsson olafurogiSlandspitali. is Höfundur er geðlæknir, barna- og unglingageðlækningum Landspítala RITSTJÓRNARGREINAR Geðheilsa og fjármálakreppa Við mat á afleiðingum fjármálakreppunnar á geð- heilbrigði bama og unglinga þarf að taka mið af stöðunni fyrir kreppu. Þótt nýir áhættuþættir hafi komið til má ekki horfa fram hjá því að vægi annarra þátta gæti minnkað. Velta má fyrir sér hvort breyttar aðstæður foreldra, meðal annars styttri vinnutími og atvinnuleysi, leiði til þess að foreldrar hafi meiri tíma til að sinna sínum nánustu. Þannig gæti orðið jákvæð breyting á verðmætamati og aukin samkennd skapast innan fjölskyldna. UNICEF, Bamahjálp Sameinuðu þjóð- anna, skilgreinir hina réttu mælingu á stöðu þjóðar með hliðsjón af því hversu vel hún sinnir bömum sínum, ekki síst heilsu þeirra. Árið 2007, á toppi íslensku hagsveiflunnar, gerði UNICEF könnun meðal 15 ára nema á Norðurlöndunum þar sem þeir íslensku skáru sig úr, til dæmis upplifðu 9,8% þeirra sig utanveltu í samfélaginu (meðaltal 6,4%) og 10,3% þeirra sögðu sig einmana (meðaltal 7,3%).’ Vitað er að uppeldi er viðkvæmt fyrir ytra álagi, svo sem efnahagsþrengingum, atvinnuleysi og vinnuálagi, en jafnframt að félagsleg stuðn- ingsúrræði geta vegið að nokkru upp á móti. Efnahagsþrengingar framkalla margskonar til- finningaviðbrögð, svo sem sinnuleysi, þunglyndi, reiði og ótta, sem ýta undir árekstra foreldra sín á milli og við börn sín. Tengsl geðrænna vandamála foreldra og slakra uppeldishátta eru vel rann- sökuð. Þunglyndum mæðrum mistekst frekar að hafa stjóm á bömum sínum og þunglyndir feður eru síður styðjandi og frekar refsandi. Þannig getur fjandsamleg ósamkvæm refsandi hegðun foreldra aukist og styðjandi hegðun minnkað sem getur framkallað bæði vanlíðan (kvíða, depurð) og andfélagslega hegðun. Samspili þessa hefur verið lýst með Fjölskyldu-Efnahags-Streitu-Líkani, FESL, sem lýsir því hvernig fjárhagsstaða, geðheilsa og samskipti foreldra sín á miili og við börnin verða áhættuþáttur fyrir geðheilsu þeirra.2 I finnsku kreppunni á fyrri hluta tíunda áratugarins fór atvinnuleysi úr 3,4% í 18%, þjóð- arskuldir sexfölduðust, skattar, verðlag og vextir hækkuðu. í Finnlandi er félagslega öryggisnetið svipað og á öðrum Norðurlöndum. I rannsókn frá 1994 var FES-líkanið notað til að meta áhrif finnsku kreppunnar á geðheilsu bama hjá 527 fjölskyldum (móðir-faðir-barn) þar sem meðal- aldur barnanna var 12,6 ár. Markmiðið var að auka skilning á áhrifum efnahagserfiðleika á geð- heilsu barna og þeim fjölskylduferlum sem þeir tengjast. Niðurstöður hennar staðfestu að kreppan jók virkni þeirra neikvæðu ferla sem líkanið lýsir og að geðheilsa bamanna versnaði. Ályktað var að efnahagsþrengingar væru áhættuþáttur fyrir geðheilsu barna í gegnum fjárhagsálag, geðheilsu foreldra, breytt samskipti foreldra og uppeldi.3 Niðurskurður félagslegs stuðnings og geðheil- brigðisþjónustu er því sérstaklega varhugaverður á krepputímum. Læknar og aðrir þurfa að hafa í huga að hægt er að sporna við neikvæðum afleiðingum fjár- málakreppunnar svo sem með því að ýta undir bætt tengsl barna og foreldra með hvatningu um aukna samveru, með umræðum og útskýringum á stöðunni í samræmi við aldur og þroska barnanna og með því að brýna fyrir foreldrum að vera sam- kvæmir sjálfum sér við að framfylgja þeim mörk- um sem þeir setja börnum sínum. Þannig geta foreldrar dregið úr líkum á að tengsl þeirra við börn sín raskist. Þá er hægt að draga úr sinnuleysi, depurð, reiði og ótta foreldra með því að tryggja það að félagslega öryggisnetið verði ekki skert og benda fólki á leiðir innan þess. Þótt bjargráð sem þessi séu mikilvæg og þótt ekki verði dregið úr félagslegum stuðnings- úrræðum sveitarfélaga er óvissan um stærð hinna nýtilkomnu áhættuþátta það mikil að gera þarf ráð fyrir auknu álagi, þegar fram í sækir, á þá geðheilbrigðisþjónustu sem veitt er í heilsugæslu, með sérfræðiþjónustu og á sjúkrahúsum. Hætt er við að tímabundinn sparnaður hér geti leitt til aukins kostnaðar síðar, til dæmis með hærra hlut- falli örorku hjá ungu fólki eins og Finnar telja að hafi orðið raunin hjá sér. Það má því búast við að sérstaklega reyni á forvamargildi æskulýðsstarfs, félagsþjónustu og geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga á næstu misserum. Heimildir 1. UNICEF. Progress for Children: A World Fit for Children. Stat Rev 2007; 6. 2. Conger RD, Ge X, Elder GH Jr, Lorenz FO, Simons RL. Economic stress, coercive family process, and developmental problems of adolescents. Child Dev 1994; 65: 541-61. 3. Solanteus T, Leinonen J, Punamáki RL. Children's mental health in times of economic recession: replication and extension of the family economic stress model in Finland. Dev Psychology 2004; 40: 412-29. LÆKNAblaðið 2009/95 1 75
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.