Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.03.2009, Qupperneq 39

Læknablaðið - 15.03.2009, Qupperneq 39
Ú R UMRÆÐUR O G FRÉTTIR PENNA STJÓRNARMANNA LÍ ) Sparnaður á kostnað hvers? Sigurveig Pétursdóttir sigurpet@landspitali.is Sigurveig er bæklunarskurð- læknir og gjaldkeri LÍ. Stjórn LÍ Bima Jónsdóttir, formaður Þórarinn Guðnason, varaformaður Sigurveig Pétursdóttir, gjaldkeri Sigríður Ó. Haraldsdóttir, ritari Elínborg Bárðardóttir Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir Kristján G. Guðmundsson Sigurður Böðvarsson Valgerður Rúnarsdóttir í pistlunum Úrpenna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Öllum er ljóst að nú ekki verður komist hjá að grípa til alvarlegra spamaðaraðgerða í heilbrigð- iskerfinu. Fæst okkar muna þó eftir öðru en að spamaðaráform hafi tröllriðið húsum þar árum saman þrátt fyrir „góðærið". Alltaf hefur það verið kallað hagræðing og alls engin þjónustuskerðing átt að felast í þeim aðgerðum. Reynslan hefur oft sýnt annað. Einu árin sem ég man ekki eftir spamaðartali stjórnenda voru fyrstu 2-3 árin sem ég vann eftir útskrift úr læknadeildinni 1984. Sennilegast er það vegna þess að ég, eins og svo margir aðrir nýút- skrifaðir læknar, var upptekin af læknastarfinu og fræðunum og með takmarkaða innsýn og áhuga á stjórnsýslu. Við tóku síðan ár í Svíþjóð við framhaldsnám. Þau ár áttu upphaflega að verða um það bil 5-6 en urðu 15 þegar upp var staðið. Allan þann tíma var meira og minna verið að spara í sænska heilbrigð- iskerfinu. Hagræðingar, sameiningar og ráðn- ingastopp vom daglegt brauð. Þar, líkt og hér, átti þetta aldrei að bitna á þjónustunni. Þessir dagar em löngu liðnir og nú síðustu mánuði hefur spamaðarkrafan verið meiri en nokkru sinni. Samt sem áður hefur heyrst hið „fornkveðna": engin þjónustuskerðing!! Nú er mikilvægara en nokkru sinni að sýna heiðarleika í orði og verki. Samstaða heilbrigðisstétta er mikilvæg á tímum sem þessum. Öllum er ljóst að um þjónustuskerðingu verður að ræða á flestum ef ekki öllum sviðum innan heilbrigðisgeirans, eins og útlitið er í dag. Skora ég því eindregið á stjórnendur í heilbrigðiskerfinu að sýna öllu starfsfólki og sjúklingum þann heiðarleika og virðingu að gera skýra grein fyrir því hver þjónustuskerðingin verður og ekki láta þá sem á gólfinu standa og sinna veiku fólki taka alfarið skellinn af óánægjunni sem af því hlýst ef misræmi er í orði og verki. Einnig er afar mikilvægt að við höfum heildarmyndina í huga við sparnaðaráformin, látum ekki niðurskurð á einum stað auka kostnað á öðum. Einfaldur spamaður á einum stað, með því að draga inn vaktalínu, getur auðveldlega leitt af sér að fjöldi sjúklinga leiti lausnar á öðmm stöðum sem neyðast til þess að leysa vandann, svo sem bráðamóttökum. Ef hreint er gengið til verks, niðurskurðurinn kallaður réttum nöfnum og alþjóð gerð grein fyrir þeirri þjónustuskerðingu sem ekki verður hjá því komist að sætta sig við, er auðveldara fyrir starfsfólk heilbrigðisgeirans og sjúklinga að sætta sig við orðinn hlut. Alla þyrstir í að sannleikurinn liggi uppi á borðum eftir holskeflur sem gengið hafa yfir þjóðfélagið. Enginn trúir því að með skipulagningu vakta og hagræðingu launakostnaðar megi spara það sem til þarf án þess að sjúklingar og starfsfólk finni verulega fyrir því. Eitthvað hlýtur að hafa verið gert í vinnutímanum fyrir spamaðaráformin! Skýr skilaboð takk, hvaða þjónusta verður ekki veitt? Læknadagar 2010 Undirbúningur er hafinn fyrir Læknadaga sem haldnir verða 18.-22. janúar 2010. Gengið verður frá stærstum hluta dagskrár í byrjun sumars og eru þeir sem vilja leggja til efni beðnir að senda hugmyndir að dagskráratriðum fyrir 15. maí nk. til Margrétar Aðalsteinsdóttur, Fræðslustofnun lækna, Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi, magga@lis.is Nauðsynlegt er að fram komi hvort óskað er eftir þátttöku Fræðslustofnunar við að greiða kostnað fyrir erlendan fyrirlesara. Undirbúningsnefnd LÆKNAblaðið 2009/95 207
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.