Læknablaðið - 15.03.2009, Síða 46
U M R Æ Ð
J A N U S
U R
O G
F R É T T I R
Endurhæfing fyrir atvinnuþátttöku
Janus endurhæfing ehf. hefur starfað I
frá árinu 2000. Eigendurnir eru þrír, þau I
Kristín Siggeirsdóttir iðjuþjálfi, sem er I
framkvæmdastjóri, Guðmundur Björnsson I
endurhæfingarlæknir og Ómar Hjaltason I
geðlæknir. Blaðamaður Læknablaðsins I
ræddi við þau Guðmund, Ómar og Kristínu I
á dögunum og kynnti sér starfsemina.
„Það er mjög ánægjulegt að takast á við þá áskor-
un sem fylgir því að vera með sjálfstæðan rekstur
í heilbrigðisþjónustu," segir Guðmundur. „Þar
spilar margt inn í. í fyrsta lagi að bera ábyrgð á
þeim fjármunum sem manni eru fengnir til að
sinna ákveðnu verkefni á sviði læknisfræði. I öðru
lagi er einnig mjög ánægjulegt að geta sýnt fram
á raunverulegan árangur og finna hvernig heil-
brigðisþjónustan ber traust til okkar. Við erum
jafnframt stöðugt að þróa okkar „vörur", og einnig
erum við í samkeppni við aðra aðila á þessu sviði
sem er af mjög af hinu góða, því það heldur okkur
vel við efnið og tryggir bestu fáanlega vöru," segir
Guðmundur og brosir að þessum markaðslík-
ingum en segir þær þó alveg eiga við því margir
þættir í samkeppnisrekstri séu hinir sömu þó
varan sé ólík.
Ómar segir að á seinustu árum hafi framboð á
endurhæfingu fyrir geðfatlaða ekki síður en lík-
amlega fatlaða aukist talsvert en fram að því að
hafi vantað tilfinnanlega endurhæfingarúrræði
fyrir fólk með geðræn vandamál. „Nú eru komin
ýmis úrræði sem hvert hefur sínar áherslur og
hentar mismunandi hópum. Þetta er allt á réttri
leið en það má ennþá gera betur."
Janus endurhæfing hóf starfsemi sína þann
18. janúar árið 2000 og frumkvöðull að stofnun
fyrirtækisins var Kristín Siggeirsdóttir iðjuþjálfi.
Árið eftir fékk hún Guðmund Bjömsson end-
urhæfingarlækni í lið mér sér og í ársbyrjun
2005 bættist Ómar Hjaltason geðlæknir í hópinn.
Fyrirtækið var í upphafi í eigu nokkurra lífeyris-
og sjúkrasjóða en fyrir tæpum tveimur árum tóku
þau þremenningarnir við fyrirtækinu og em eig-
endur þess. „Það má segja að fyrri eigendur sem
enn em meðal okkar viðskiptavina hafi litið svo
á að hlutverki þeirra sem fmmkvöðla væri lokið;
fyrirtækið væri komið á traustan grundvöll, hefði
sannað tilverurétt sinn og gagnsemi og því fannst
þeim rétt að draga sig út úr rekstri þess," segir
Guðmundur.
Árið 2004 fékk fyrirtækið Starfsmenntaverð-
launin afhent af forseta íslands fyrir framúrskar-
andi árangur og frumkvöðlastarf. Þeir segja að
sérstaklega ánægjulegt sé að árangur starfsem-
innar hafi haldið áfram að vaxa ár frá ári allt fram
til dagsins í dag.
Á heimasíðu Janusar kemur fram að fyrir-
tækið hefur að leiðarljósi að sameina krafta sem
flestra aðila í þjóðfélaginu þannig að hægt sé að
bjóða upp á samræmda þjónustu í atvinnuend-
urhæfingu. Starfsemin er fjölbreytt og er fyrir ein-
staklinga sem vegna heilsubrests em að/eða hafa
þurft að hverfa frá vinnumarkaðnum eða úr námi
og vilja komast út í atvinnulífið eða í nám.
Teymisvinna margra sérfræðinga
Mjög mikilvægur hluti endurhæfingarinnar felst
í samstarfi við Tækniskólann - skóla atvinnu-
lífsins og hefur Janus endurhæfing aðstöðu þar.
Enda er það er í samræmi við hugmyndafræði
starfseminnar að deildir framhaldsskóla henti vel
til atvinnuendurhæfingar. Kennarar Tækniskólans
koma að þeim hluta sem tengist kennslu. „Þetta
samstarf heilbrigðis- og menntakerfisins gefur
fólki möguleika á því að mennta sig um leið og
það stundar endurhæfingu án þess þó að það
sé skilyrði að nýta sér þann möguleika þar sem
starfsemi Janusar endurhæfingar gefur fjölbreytta
möguleika á aðlögun endurhæfingarinnar að
þörfum þátttakanda," segir Krístín framkvæm-
dastjóri.
Faglegu starfi Janusar er stjórnað af sérfræðing-
um á heilbrigðissviði. Hjá Janusi endurhæfingu
starfa iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar, félagsráðgjafar,
sálfræðingur og að sjálfsögðu læknarnir ásamt
fleiri sérfræðingum allt eftir þörfum hverju sinni.
Starfsmenn ásamt verktökum eru um 25 talsins
fyrir utan ráðgefandi sérfræðinga.
„Okkar skjólstæðingar eru fyrst og fremst þeir
sem hafa „dottið útaf" vinnumarkaði einhverra
hluta vegna; ýmist vegna líkamlegra eða and-
legra ástæðna, en oft fer þetta tvennt saman,"
segir Guðmundur. „Hingað leitar einnig fólk
sem hefur flosnað upp úr námi og sér hér mögu-
leika á að ljúka námi í gegnum samstarf okkar við
Tækniskólann. Við veitum ýmis sértæk úrræði
en í öllum tilvikum hefst þetta með nákvæmri
214 LÆKNAblaðið 2009/95