Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.03.2009, Page 76

Læknablaðið - 15.03.2009, Page 76
Omeprazol Actavis - 7 0,20 og 40 mg Omeprazol Actavis 10,20 og 40mg sýruþolin hylki, hörð. Virk innihaldsefni og styrkleikar: Hvert hylki inniheldur 10,20 eða 40mg af ómeprazóli. Hjálparefni: Súkrósi. Ábendingar: Skeifugarnarsár. Góðkynja magasár. Bólga í vélinda vegna bakflæðis. Fyrirbyggjandi meðferð gegn bólgu í vélinda vegna bakflæðis. Zollinger-Ellison-heilkenni. Meðferð við maga-og skeifugarnarsárum afvöldum bólgueyðandi verkjalyfga. Fyrirbyggjandi meðferð gegn maga- og skeifugarnarsárum af völdum bólgueyðandi verkjalyfla. Meðferð við einkennum vélindabakflæðis. Meðferð ásamt sýklalyfjum til að útrýma Helicobacterpylori hjá sjúklingum með ætisár af völdum Helicobacterpylori. Skammtar og lyfjagjöf: Skeifugarnarsár: Venjulegur skammtur er 20mg 1 sinni á dag í 2-4 vikur. Góðkynja magasár: Venjulegur skammtur er 20mg 1 sinni á dag í 4-(6)-8 vikur. Bólga ivélinda vegna bakflæðis: Venjulegur skammtur er 20mg 1 sinni á dag í 4-8 vikur. Athugið að í stöku tilvikum um skeifugarnarsár, góðkynja magasár og bólgu í vélinda vegna bakflæðis má auka skammtinn í 40mg 1 sinni á dag. Ekki á að nota ómeprazól eitt og sér við skeifugarnarsárum og góðkynja magasárum nema ekki eigi við að uppræta þurfi Helicobacter pylori eða ef upprætingarmeðferð hefur brugðist. Fyrirbyggjandi meðferð gegn bólgu I vélinda vegna bakfiæðis: Venjulegur skammtur er 10-20mg, háð klínískri svörun. Zollinger-Ellison- hei/kenni: Stilla þarf skammta fyrir hvern og einn sjúkling og halda meðferðinni áfram eins lengi og þörf krefur. Ráðlagður upphafsskammtur er 60mg 1 sinni á dag. Þegar notaðir eru skammtar yfir 80mg á dag ætti að skipta skammtinum og gefa lyfið 2svar á dag. Engin tímamörk eru á meðferðinni hjá sjúklingum með Zollinger-Ellison-heilkenni. Meðferð við maga- og skeifugarnarsárum afvöldum bólgueyðandi verkjafyfja: Venjulegur skammtur er 20mg á dag í 4-8 vikur. Fyrirbyggjandi meðferð gegn maga- og skeifugarnar- sárum afvöldum bólgueyðandi verkjafyfja: Venjulegur skammtur er 20mg á dag. Meðferð við einkennum vélindabakflæðis: Venjulegurskammturer 10-20mg á dag, háð klínískri svörun. Meðferðartími er 2-4 vikur. Ef sjúklingnum finnst ekki hafa dregið úr einkennunum eftir 2 vikna meðferð ætti að gera frekari rannsóknir. Uppræting á Helicobacterpylori: Meðhöndla ætti sjúklinga með maga- og skeifugarnarsár af völdum Helicobacterpylori sýkingar með sýklalyfjum til að uppræta Helicobacterpylori. Ákvörðun um viðeigandi meðferð ætti að byggjast á þoli sjúklingsins og viðmiðunarreglum varðandi meðferðina. Eftirfarandi samsetningar hafa verið rannsakaðar: Ómeprazól 20mg,amoxicillín l.OOOmgogclaritrómýcín500mg; tekið samtímis 2svar á dag. Ómeprazól 20mg, claritrómýcín 250mg og metrónídazól 400-500mg; tekið samtímis 2svar á dag. Lengd upprætingarmeð- ferðar ervenjulega 1 vika.Til að koma í veg fyrir þolmyndun ætti ekki að stytta meðferðina. Hjá sjúklingum með virk sár má framlengja meðferðina með ómeprazóli einu og sér í samræmi við áðurnefnda skammta. Skert nvrnastarfsemi: Ekki er þörf á að breyta skömmtum. Skert lifrarstarfsemi: Skammtar ættu ekki að fara yfir 20mg á dag. Aldraðir: Ekki er nauðsynlegt að breyta skömmtum. Lvfiaaiöf: Gleypa á hylkin í heilu lagi með glasi af vökva. Það má taka hylkin fyrir máltíð (t.d. morgunmat eða kvöldmat) eða á fastandi maga. Hvorki má tyggja né mylja hylkin. Opna má hylkin og blanda innihaldinu út í matskeið af safa. Dreifuna ætti að taka þegar í stað. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Ekki má veita samsetta meðferð með claritrómýcíni hjá sjúklingum með skerta lifrarstarfsemi. Eins og við á um aðra prótónpumpuhemla, ætti ekki að nota ómeprazól með atazanavíri. Varúð: Rannsaka skal hvort Helicobacter pylori er til staðar hjá sjúklingum með ætisár. Ef mögulegt er skal beita upprætingarmeðferð hjá sjúklingum sem reynast jákvæðir fyrir Helicobacter pylori. Ef grunur er um magasár verður fýrst að útiloka illkynja sjúkdóma, áður en meðferð með ómeprazóli er hafin, vegna þess að meðferðin gæti slegið á einkennin og seinkað sjúkdómsgreiningu. Staðfesta ætti greiningu á bólgu í vélinda vegna bakflæðis með holsjárskoðun. Minnkuð magasýra af hvaða völdum sem er, þ.á m. vegna prótónpumpuhemla, veldur flölgun baktería sem venjulega eru til staðar í meltingarveginum. Meðferð með iyfjum sem draga úr magasýru getur aukið lítið eitt hættu á sýkingum í meltingarvegi, t.d. vegna Salmonella og Campylobacter. Mæla ætti lifrarensímagildi reglulega, meðan meðferð með ómeprazóli stendur yfir, hjá sjúklingum með alvarlega skerta lifrarstarfsemi. Lyfið inniheldur súkrósa. Sjúklingar með sjaldgæfu arfgengu sjúkdómana frúktósaóþol, vanfrásog glúkósa-galaktósa eða súkrósa-ísómaltasaþurrð eiga ekki að nota lyfið.Til að bæta árangurinn af meðferð við ætisárum af völdum bólgueyðandi verkjalyfja, skal alvarlega íhuga þann möguleika að hætta notkun lyflanna. Takmarka skal fýrirbyggjandi meðferð við ætisárum af völdum bólgueyðandi verkjalylja við þann hóp sjúklinga sem er í mestri hættu. Upplýsingar um öryggi eru takmarkaðarvarðandi meðferð lenguren í 1 ár. Því skyldi læknirinn meta reglulega áhættu á móti ávinningi þegar meðferð varir í meira en 1 ár. (samsettri meðferð (vegna ætisára af völdum bólgueyðandi verkjalyfla eða við upprætingu Helicobacterpylori) skal gæta varúðar þegar einnig eru notuð lyf sem geta aukið hættuna á milli- verkunum eða gert þær verri. Við samsetta meðferð þarf einnig að sýna aðgát hjá sjúklingum með skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi. Ómeprazól er ekki ætlað börnum undir 2 ára aldri. Greint hefur verið frá stöku tilvikum um sjón- og heyrnarmissi þegar ómeprazól hefur verið gefið með inndælingu. Ekki hefur verið tilkynnt um þessar aukaverk- anir eftir inntöku á ómeprazóli. Fylgjast þarf vel með sjón og heyrn hjá alvarlega veikum sjúklingum. Milliverkanir: Lyrf með svrustiosháð frásoa: Atazanavir: Samhliða notkun ómeprazóls (40mg 1 sinni á dag) og atazanavirs 300mg/rítonavírs 100mg hjá heilbrigðum sjálfboðaliðum leiddi til marktækrar lækkunar á heildarútsetningu fyrir atazanavíri (u.þ.b. 75% lækkun AUC, Cmax og Cmin). Þó að skammtur atazanavírs væri aukinn i 400mg bætti ekki það upp áhrif ómeprazóls á atazanavír. Því ætti ekki að gefa prótónpumpuhemla, þ.á m. ómeprazól, samhliða atazanavíri. Ketócónazól og itracónazól: Magasýrur auka frásog ketócónazóls og ítracónazóls úr meltingarveginum. Ómeprazól getur stuðlað að því að blóðþéttni ketócónazóls eða ítracónazóls fari niðurfyrir lækningalega þéttni. Því ber að forðast þessa samsetningu. Dígoxín: Samhliða meðferð með ómeprazóli og dígoxíni hjá heilbrigðum einstaklingum veldur 10% aukningu á aðgengi dígoxíns. Lvf sem umbrotna fvrir tilstilli CYP2C19 oa CYP2C9 (b.m.t. warfarín oa fenvtóinl: Ómeprazól hamlar CYP2C19 og CYP2C9 og getur því aukið plasmaþéttni annarra lyfla sem umbrotna fyrir tilstilli þessara ensíma, t.d. díazepams, fenýtóíns, warfaríns (R-warfaríns, sem er ekki eins virkt). Ráðlagt er að fylgjast náið með þegar meðferð með ómeprazóli er hafin eða henni hætt hjá sjúklingum sem nota fenýtóín, warfarín eða aðrar kúmarínafleiður. Einnig geta komið fram áhrif á önnur lyf, t.d. hexóbarbítal, cítalópram, escítalópram, imipramín, dómipramín o.s.frv. Vóricónazól: Ómeprazól (40mg á dag) jók Cmax og AUCT fýrir vóricónazól (hvarfefni CYP2C19) um 15% og 41%. Vóricónazól jók AUCTfyrir ómeprazól um 280%. Þegar lyfin eru notuð samhliða ætti hugsanlega að breyta skammti ómeprazóls hjá sjúklingum með verulega skerta lifrarstarfsemi og einnig við langtima- meðferð. Dísúlfiram: Ómeprazól getur hamlað umbrotum dísúlfírams í lifur. Möguleg tengsl eru við einstök tilfelli vöðvastífni sem greint hefur verið frá. Ciclósporin: Upplýsingar um milliverkanir ómeprazóls og cidósporíns stangast á. Þess vegna skal fylgjast með plasmaþéttni cidósporins hjá sjúklingum sem fá samhliða meðferð með ómeprazóli, þvi þéttni ciclósporíns getur aukist. Claritrómýcin: Plasmaþéttni ómeprazóls og claritrómýcíns eykst við samhliða notkun. Ómeprazól getur dregið úr frásogi B12 vítamíns til inntöku. Þetta þarf að hafa í huga hjá sjúklingum með lág upphafsgildi B12 vítamíns sem eru í langtímameðferð með ómeprazóli. Ekkert bendirtil þess að ómeprazól milliverki við koffein, própranólól, teófýllín, metóprólól, lídócaín, kínidín, fenacetín, estradíól, amoxicillin, búdesóníð, díklófenak, metrónídazól, naproxen, píroxicam eða sýrubindandi lyf. Áfengi hefur ekki áhrif áfrásog ómeprazóls. Meðganga og brjóstagjöf: Faraldsfræðilegar rannsóknir eru takmarkaðar en benda ekki til aukaverkana á meðgöngu eða hærra hlutfalls almennra fæðingargalla. Upplýsingar eru þó ófullnægjandi hvað varðar sértækar fóstur- skemmdir. Ómeprazól og umbrotsefni þess skiljast út í mjólkhjá rottum.Takmörkuð reynsla eraf þvíað börn fái lyfið með brjóstamjólk. Þéttni ómeprazóls í brjóstamjólk kvenna getur orðið um 6% af hámarksplasmaþéttni hjá móðurinni. Notkun ómeprazóls á meðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur krefst vandlegs mats á áhættu gegn ávinningi. Akstur og notkun véla: Ekki hafa verið gerðar neinar rannsóknir á áhrifum á hæfni til aksturs og notkunar véla. Aukaverkanir eins og þreyta, svefnhöfgi og sjóntruflanir geta þó komið fram. Taka þarf tillit til þess við störf sem krefjast óskertrar árvekni, t.d. við akstur. Aukaverkanir: Algengar (> 7/100 og < 1/10): Syfja, svefntruflanir (svefnleysi), svimi, höfuðverkur, þreyta. Yfirleitt dregur úr þessum einkennum þegar líður á meðferðina. Niðurgangur, hægðatregða, vindgangur (hugsanlega einnig kviðverkir), ógleði og uppköst. (langflestum þessara tilfella hverfa einkennin við áframhaldandi meðferð. Sjaldgæfar (> 1/1.000 og < 1/100): Sjóntruflanir (þokusýn, minnkuð sjónskerpa eða skert sjónsvið). Þessar aukaverkanir hverfa yfirleitt þegar meðferðinni er hætt. Heyrnartruflanir (t.d. eyrnasuð). Þessar aukaverkanir hverfa yfirleitt þegar meðferðinni er hætt. Breytingar á bragðskyni. Þessar aukaverkanir hverfa yfirleitt þegar meðferðinni er hætt. Breytingará lifrarensímum sem ganga til baka þegar meðferðinni er hætt. Kláði, húðútþot, hárlos, regnbogaroðasótt, Ijósnæmi, aukin svitamyndun, húðbólga. Bjúgur á útlimum. Einkennin hurfu þegar meðferð var hætt. Mjög sjaldgæfar (>1/10.000 og < 1/1.000): Blóðleysi (hypochromic microcytic anaemia) hjá börnum. Náladofi og vönkun. Rugl og ofskynjanir, einkum hjá mjög veikum eða öldruðum sjúklingum. Litur tungunnar breytist og verður brúnsvartur þegar lyfið er gefið með daritrómýcíni, góðkynja kirtilblöðrur; hvort tveggja hvarf þegar meðferðinni var hætt. Máttleysi í vöðvum, vöðvaþrautir, liðverkir. Koma örsjaldan fyrir (< 1/10.000, þar meö talin einstök tilvik): Breytingar á blóðhag, afturkræf blóðflagnafæð, afturkræf hvítfrumnafæð eða afturkræf blóðfrumnafæð og kyrningahrap. Ofsakláði, hækkaður líkamshiti, ofsabjúgur, berkjuþrenging eða bráðaofnæmislost, æðabólga af völdum ofnæmis, hækkaður líkamshiti. Æsingur og þunglyndi, einkum hjá mjög veikum eða öldruðum sjúklingum. Munnþurrkur, munnbólga, hvítsveppasýking eða brisbólga. Lifrarbólga, með eða án gulu, lifrarbilun og heilakvilli hjá sjúklingum sem fýrir eru með lifrarsjúkdóm. Stevens-Johnson- heilkenni, drep í húðþekju. Nýrnabólga (millivefs- nýrnabólga). Blóðnatríumlækkun, brjóstastækkun hjá körlum. Pakkningar og hámarksverð í smásölu (1. febrúar 2009): Sýruþolin hylki: 10 mg, 98 stk: 9.540 kr„ 20 mg 28 stk: 2.659 kr„ 20 mg 56 stk: 4.287 kr„ 20 mg 98 stk: 6.988 kr„ 40 mg 28 stk: 5.306 kr. Afgreiðslutilhögun: R. 20mg, 28 stk: L Greiðsluþátttaka: O Markaðsleyfishafi: Actavis Group hf. Reykjavíkurvegi 76-78,220 Hafnarfjörður. 20. janúar 2009 244 LÆKNAblaðið 2009/95 hagur i heilsu

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.