Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2009, Blaðsíða 45

Læknablaðið - 15.09.2009, Blaðsíða 45
Ú R UMRÆÐUR O G FRÉTTIR PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Hugleiöingar um upplýsingaveitur í heilbrigðisþjónustu Kristján G. Guðmundsson heimilislæknir Kristjan. G. Gudmundsson@ glaesib.hg.is Stjórn LÍ Birna Jónsdóttir, formaður Þórarinn Guönason, varaformaður Sigurveig Pétursdóttir, gjaldkeri Sigríður Ó. Haraldsdóttir, rítari Elínborg Bárðardóttir Hjördís Þórey Þorgeirsdóttir Kristján G. Guðmundsson Sigurður Böðvarsson Valgerður Rúnarsdóttir í pistlunum Urpenna stjórnarmanna LÍ birta þeir sínar eigin skoðanir en ekki félagsins. Færa má rök fyrir því að rafræn sjúkraskrá sé mikilvægasta verkfæri heilbrigðisþjónustunnar. Almennt er talið að Islendingar hafi verið framarlega í tölvuþróun á sínum tíma, og fyrstu forritin þóttu framúrstefnuleg. En hugmyndir um miðlægan gagnagrunn og kauphallarviðskipti með heilbrigðisupplýsingar, og ekki síður þau viðbrögð sem það kallaði fram, ollu verulegum töfum á þróun rafrænnar sjúkraskrár. Hafi verið hér á landi eitthvert forskot er það fyrir löngu tapað. Helsta forritið, Sagan, er farið að bera þess merki að vera barn síns tíma, og þarf mikillar endurnýjunar við. Margt hefur raunar áunnist á þessum vettvangi á seinustu árum og má þar nefna Heklu og rafrænar sendingar á lyfseðlum. En að fleiru er að hyggja að en sjúkraskránni sjálfri, eitt er aðgengi að eldri gögnum sem eru á pappír, og að koma þeim upplýsingum á rafrænt form, þannig að ekki þurfi að vera með tvöfalt upplýsingakerfi. Hér á landi eru margir rannsóknagrunnar sem geyma bæði blóðrannsóknir og myndgreiningar. Sameining þessara grunna og aðgengi allra lækna að þeim væri verulegt framfaraskerf. Unnið er að gerð vefsvæðis í stíl heimabanka, þar sem notendur heilbrigðisþjónustu skrá sig inn á lokaðan vef heilbrigðisstofnana. Þetta fyrirkomulag gefur margvíslega möguleika á samskiptum í heilbrigðisþjónustu. Fyrst og fremst tryggir það að upplýsingar um heilsufar liggja á öruggu svæði. Þama er hægt að bóka tíma, senda fyrirspurnir til heilbrigðisstarfsmanna, og óska eftir lyfjaendurnýjunum. Rafrænar tímabókanir sjúklinga hafa verið í þróun, og hægt verður að greiða fyrir þjónustuna á vefnum. Samfara tímabókunum koma einnig til áminningar með smáskilaboðum. Fyrirspurnir verða skráðar á hinu lokaða vefsvæði og varpast í sjúkraskrár- kerfið með opnun samskiptaseðils, og sjálfkrafa er bókaður tími í samskiptatíma. Þegar læknir hefur afgreitt fyrirspurnina varpast svarið á heimasíðu sjúklings. Sjúklingur fær smáskilaboð í símann um að svar liggi fyrir. Á sama hátt verður hægt að óska eftir endurnýjun lyfseðla. Mikið hefur verið rætt um aðgengi sjúklinga að sjúkraskrá sirtni. Sjúklingur ætti að hafa aðgang að vissum upplýsingum sem koma fram í sjúkraskrá og rétt á að leiðrétta þær. Hér er átt við upplýsingar um heimilisfang, aðstandendur, netföng, símanúmer og ofnæmis- sögu. Það sama ætti að vera með virk lyf og ráðleggingar. Hví skyldi sjúklingur ekki einnig hafa aðgengi að sjúkdómsgreiningum sínum? Án vafa verður gerð krafa um að sjúklingar hafi allan aðgang að texta sjúkraskrár á komandi árum. Möguleiki ætti að vera að undanskilja vissa þætti, svo sem fjölskyldusögu og upplýsingar um kynheilsu eða geðheilsu. Þetta gefur einnig möguleika á að sjúklingur skrái í eigin sjúkraskrá lífsstílsþætti, svo sem reykingar og eigin mæl- ingar. Á að þróa nýtt sjúkraskrárforrit eða taka upp nýtt erlent forrit sem hefur reynst spretthart í alþjóðlegri samkeppni? Því er til að svara að ekkert eitt forrit dugar til að halda utan um alla þætti sjúkraskrár, þannig eru lykilatriðin; samskiptahæfni forrita og sveigjanleiki. Flutn- ingur upplýsinga milli þeirra, aðgengi eldri upplýsinga og aðlögunarhæfni vegna margvís- legra starfsaðstæðna í heilbrigðisþjónustu. Eðli- legast er að nýta það sem við höfum og byggja forritun á því og aðlaga að þeim þörfum sem til staðar eru í stað þess að taka upp algjörlega ný kerfi. Þetta er einnig reynslan erlendis frá. Þartnig rennur gamla viðmótið í nýtt viðmót sem er byggt ofan á það eldra. Forritið ætti gjarnan að vera í eigu opinberra aðila sem bjóða út umsjón með kerfinu, þróun og aðlögun. Markmiðið ætti að vera ein rafræn eða samtengd sjúkraskrá fyrir allt landið, aðgengileg öllum læknum. LÆKNAblaðiö 2009/95 593
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.