Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2009, Blaðsíða 55

Læknablaðið - 15.09.2009, Blaðsíða 55
U M R Æ Ð U R 0 G Ó P í F R É T T I R A T A - L Y F Mynd 2. Ég hef oftsinnis, einkum í ræðu, en einnig í riti10 bent á þá slæmu þróun sem átt hefur sér stað hérlendis við notkun ópíata allt frá árinu 1989. Um miðjan tíunda áratug síðustu aldar voru nágrannar okkar Danir taldir ávísa mestu af ópíötum á heimsvísu,” eða meira en 14 skilgreindum dagsskömmtum (DDD) á 1000 íbúa. Við eftirgrennslan kom í ljós að þetta var ekki meðferð krabbameinssjúkra, þeir reyndust aðeins um 10% af sjúklingahópnum. Við frekari úttekt vandamálsins í Danmörku árið 2002 kom í ljós að 3% þjóðarinnar notaði ópíöt reglubundið, eða um 130 000 manns.12 Um þetta leyti vorum við næstum jafnfætis Dönum hvað notkun varðaði og samkvæmt tölum NOMESCO fórum við fram úr þeim árin 1999-2002.13 Samkvæmt tölum danska lyfjaeftirlitsins hefur notkunin síðastliðin fimm ár aukist verulega þar í landi,14 en samanburðurinn við Island er þó erfiður vegna mismunandi skráningar í löndunum. Það hægði lítillega á notkun hérlendis í tvö ár eftir að talsverð umræða varð í þjóðfélaginu um mikla morfín (contalgin) notkun (2001-2002) og talað var um „læknadóp". Þá má einnig gera ráð fyrir að lyfjagagnagrunnur Landlæknisembættisins hafi haft áhrif, en umræðan um hann hófst árið 2002. Ég hef fengið yfirlit yfir notkun hérlendis, fyrst frá heilbrigðisráðuneytinu og seinna Lyfjastofnun.15 Þegar ég fékk úttekt á notkuninni síðustu tvö ár verð ég að segja að mér krossbrá og settist því niður og skrifaði þessar línur. Mynd 1 sýnir þróunina hvað varðar skilgreinda dagsskammta af ópíötum miðað við hverja 1000 íbúa (einnig notað í alþjóðlegri tölfræði). Eins og myndin sýnir var það einkum aukin kódein-notkun sem skýrði vaxandi notkun á síðasta áratug 20. aldar og þá einkum kódeín í blöndum. Það var að nokkru skrúfað fyrir aukninguna þegar hætt var að selja slík lyf í lausasölu. Um miðjan tíunda áratuginn komu svo ný lyf, fyrst tramadólíð, síðan fentanýlíð og loks fyrir um fimm árum síðan oxýcódóníð. Sérstaklega athyglisverð er aukin notkun síðasttöldu lyfjanna tveggja en þessi mikla notkun skýrist fráleitt af notkun þeirra sem hafa illkynja sjúkdóm eins og sumir halda fram. Eins og áður er vikið að hefur landlæknis- embættið fylgst með lyfjaávísunum á Islandi með lyfjagagnagrunni frá 2005. Tölfræði yfir notkun lyfja frá Tryggingastofnun ríkisins nær lengra aftur í tímann (en er ekki jafn nákvæm). Landlæknisembættið varð góðfúslega við þeirri beiðni að athuga hversu margir neytendur ópíata hérlendis væru jafnframt að nota æxlishemjandi lyf. Niðurstaðan er sláandi en líkist nokkuð fyrrgreindum upplýsingum frá Danmörku. Fjöldi þeirra sem fékk ávísað ópíötum hefur vaxið úr rúmum 24.000 í tæp 29.000 á árunum 2003- 2008 (mynd 2). Fjöldi þeirra sem jafnframt fengu æxlishemjandi lyf var hins vegar nokkuð stöðugur, 1550-1700 einstaklingar (tæp 6% af þeim sem fengu ópíöt). Á sama tíma hafa skammtarnir á ópíötum aukist úr tæplega 57 DDD í ríflega 68 DDD.16 Landsmönnum hefur fjölgað eitthvað á tímabilinu, en tölurnar eru eigi að síður sláandi að mínu mati. Lyfjagagnagrunnurinn er vafalítið gott eftirlitstæki og slæmt er ef rétt reynist að verið sé að reyna að koma höggi á hann vegna misskilinna persónuverndarsjónarmiða. Kostnaðurinn við þessi sterku verkjalyf hefur farið vaxandi, sérstaklega þegar þau þrjú síðasttöldu komu á markað. Þróunin síðastliðin tvö ár er svo virkilega stuðandi eins og mynd 3 sýnir. Flvað varðaði verðþróunina varð smá lækkun á heildarkostnaði milli áranna 2003 og 2006 sem skýrist líklega af minni kostnaði við tramadólið, ekki vegna minni notkunar heldur vegna samkeppni á markaðinum. Þróunin síðustu tvö ár er ótrúleg og þetta skýrist ekki af gengisþróuninni, sem tæplega hefur haft áhrif fyrr en mögulega á síðasta ársfjórðungi 2008. Það eru nýju dýru lyfin sem skýra meirihlutann af LÆKNAblaðið 2009/95 603
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.