Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 7

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 7
RITSTJÓRNARGREINAR Páll Matthíasson pallmatt@landspitali.is Páll er geðlæknir með doktorsgráðu í geðlyfjafræði. Hann er framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítala. Public views on antidepressant treatment - a cause for optimism Páll Matthíasson MD MRCPsych PhD, is a consultant Psychiatrist and Psychopharmacologist. He is Executive Director of Mental Health at Landspítali University Hospital. Viðhorf íslendinga til þunglyndismeðferðar - tilefni til bjartsýni í þessu hefti Læknnblaðsins er þarft innlegg í umræðu síðustu ára um notkun þunglyndislyfja.1 Ef marka má greinina eru viðhorf fólks á Islandi til meðhöndlunar þunglyndis með lyfjum almertnt jákvæð og því jákvæðari sem það er betur upplýst um þunglyndismeðferð. Niðurstöðurnar eru ánægjulegar í ljósi þess að framan af þessum áratug beindist fréttaflutningur oft að vaxandi notkun og kostnaði þunglyndislyfja og vangaveltum í þá veru að um óeðlilega aukningu væri að ræða. Virtist þar litið fram hjá því að fjölmargar skýringar gætu legið að baki aukinni þunglyndislyfjanotkun. Nefna má að hugsanlegt er að vaxandi umræða um þunglyndi meðal almennings hvetji fólk til að leita sér hjálpar fyrr en áður. Minni fordómar gagnvart þunglyndi ættu að hafa sömu áhrif. Fleiri ábendingar eru fyrir þunglyndislyfjanotkun nú en áður, meðal annars fjölmargar kvíðaraskanir og lyfin eru einnig auðveldari í notkun. Nærtækasta skýringin er samt sú að fleiri telja sig þurfa á meðferð að halda en á tíunda áratugnum. Rannsókn birt 2004 benti til þess að tíðni þunglyndis hefði ekki breyst hér á landi frá 1984 til 2002, þótt algengi þunglyndis- og kvíðaeinkenna á meðal kvenna hefði reyndar aukist.2 Rannsóknum ber þó ekki saman á milli landa. Á 10 ára tímabili, frá 1992 til 2002, jókst tíðni þunglyndis í Bandaríkjunum úr 3,3% í 7,1% í rannsókn þar sem verulega var vandað til greininga.3 Þetta er talin meginskýring aukinnar þunglyndislyfjanotkunar í Bandaríkjunum á tímabilinu 1992 til 2003 en þá óx hlutfall Banda- ríkjamanna á þunglyndislyfjameðferð úr 2,2% í 10,1%.4 Þær breytingar á notkun þunglyndislyfja sem sjást hér á landi eru því ekkert einsdæmi. Á 10 ára tímabili til 2006 óx kostnaður Bandaríkjamanna til geðheilbrigðismála meira en til nokkurs annars málaflokks innan heilbrigðisþjónustunnar og útgjöld til geðheilbrigðismála eru þar fimmti stærsti útgjaldaliður heilbrigðiskerfisins.5 Heil- brigðisyfirvöld verða að hafa það hugfast að rétta leiðin til að bregðast við aukinni eftirspurn eftir hjálp er ekki að draga úr meðferðarúrræðum, heldur að leita leiða til að bæta þjónustuna, byggja á gagnreyndum aðferðum og gera hana markvissari. Sú aukning sem orðið hefur á notkun geðdeyfðarlyfja undanfarna áratugi er athyglisverð í ljósi þess að Islendingar virðast átta sig vel á því að aðrar meðferðarleiðir gefast oft jafnvel eða betur gegn vægu þunglyndi, sérstaklega viðtalsmeðferð og hreyfing.1 Þeim sem þekkja til aðstæðna í heilsugæslunni, þar sem langflestir leita sér fyrst hjálpar, ætti ekki að koma slíkt á óvart. Aðstæður til að beita annarri meðferð en geðdeyfðarlyfjum eru þar afar takmarkaðar. Viðtalsmeðferð, einkum hugræn atferlismeðferð við þunglyndi, hefur þó vaxið mjög innan heilsugæslunnar undanfarin ár í markvissu rannsóknarsamstarfi við geðsvið Landspítala með fjármagni frá heilbrigðisráðuneytinu. Betur má þó ef duga skal. Ég leyfi mér að fullyrða að lykillinn að bættri, fjölbreyttari og skilvirkari meðferð þunglyndis hér á landi liggi í aukinni áherslu á fjölbreyttari úrræði í heilsugæslunni, með stuðningi og ráðgjöf geðsviðs Landspítala. Til þess að slíkt megi verða þarf áfram markvissa aðkomu og stuðning heilbrigðisráðuneytisins. Kjarni niðurstaðna Engilberts og félaga gefur tilefni til bjartsýni. Almenningur á íslandi er greinilega vel upplýstur um meðferð þunglyndis og því ber að fagna. Heimildir 1. Sigurðsson E, Ólafsdóttir Þ, Gottfreðsson M. Hver eru viðhorf íslendinga til þunglyndislyfja og hvaða þættir ráða mestu um mótun þeirra? Læknablaðið 2009; 95; 837-41. 2. Helgason T, Tómasson H, Sigfússon E, Zoega T. Skimun fyrir algengi geðraskana 1984 og 2002 og ávísanir geðlyfja 1984 og 2001. Læknablaðið 2004; 90: 553-9. 3. Compton WM, Conway KP, Stinson PS, Grant BF. Changes in the prevalence of major depression and comorbid substance use disorders in the United States between 1991-1992 and 2001-2002. Ame J Psychiatr 2006; 163: 2131-47. 4. Mojtabai R. Increase in antidepressant medication in the US adult population between 1990 and 2003. Psychother Psychosom 2008; 77: 83-92. 5. Agency for Healthcare Quality Research (AHRQ): The Five Most Costly Conditions, 1996 and 2006: Estimates for the U.S. Civilian Noninstitutionalized Population . www.meps.ahrq. gov/mepsweb/data_files/publications/st248/stat248.pdf LÆKNAblaöið 2009/95 819
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.