Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 45

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 45
UMRÆÐUR O G FRÉTTIR LYFJARANNSÓKNIR Kalla eftir meira frumkvæði Björg Ámadóttir markaðsstjóri Novartis og Halldóra Erlendsdóttir rannsóknafulltrúi eru bjartsýnar á framtíð lyfjarannsókna á íslandi á vegum síns fyrirtækis. Þær segja að vissulega hafi Novartis nokkra sérstöðu hvað þetta varðar því greinilega hafi dregið úr klínískum lyfjarannsóknum í heild. með rannsóknarverkefnin og leitum samstarfsaðila í röðum lækna. Það hefur tekist mjög vel og samstarfið verið með miklum ágætum og ekki yfir neinu að kvarta í þeim efnum en við köllum eftir meira frumkvæði." Rannsóknir skila verulegum tekjum „Við höfum haldið óbreyttum mannafla á rannsóknarsviði og tekist að halda í svipaðan fjölda rannsókna og áður," segir Björg. Aðspurð um ástæður þessa segir hún að margt komi til en nefna megi sérstaklega að þau hafi sótt hart að móðurfyrirtækinu að halda áfram rannsóknum á íslandi. „Við höfum einnig verið heppin að því leyti að rannsóknarsetrin hafa verið stór og stjórnendur þeirra, læknarnir, hafa vakið athygli á heimsvísu fyrir rannsóknarvinnu sína, og það virkar sannarlega hvetjandi á stjórn fjölþjóðlegs fyrirtækis eins og Novartis." Þær leggja áherslu á að samkeppni um rannsóknir hafi aukist mjög frá því sem áður var. „Það er langt frá því sjálfsagt að fá rannsóknir hingað til íslands. Það þarf að vinna í því og það þarf að standa við allt sem sagt er. Þess vegna skiptir mjög miklu máli að finna góða samstarfsaðila hérlendis, fólk sem er tilbúið að leggja vinnu og tíma í verkefnið; allar tímasetningar og fyrirheit um fjölda þátttakenda verða að standast," segir Halldóra. Björg tekur undir þetta og segir að íslenska lækna- og vísindasamfélagið hafi kannski ekki , fyllilega áttað sig á þessu ennþá. „Við myndum Mavar gjarnan vilja sjá meira frumkvæði að rannsóknum Sigurjónsson úr þeirri átt. Yfirleitt erum það við sem komum Halldóra Erlendsdóttir rannsóknafulltrúi hjá Novartis og Björg Árnadóttir markaðsstjóri. Þær taka heilshugar undir með öðrum við- mælendum Læknablaðsins að ísland sé að mjög mörgu leyti vel fallið til klínískra lyfjarannsókna. „Hér eru mjög hæfir vísindamenn, auðvelt að fá fólk til þátttöku í rannsóknum og auðvelt að fylgja því eftir. Brottfall þátttakenda úr íslenskum rannsóknum er mjög lítið. Þetta eru okkar rök gagnvart aðalstjórn fyrirtækisins og á þau hefur verið hlustað, enda árangurinn mjög góður," segir Björg. Þegar fjallað er um klínískar lyfjarannsóknir á Islandi er sjaldan talað um hver fjárhagslegur ávinningur sé af þeim. Þó er ljóst að hér er um verulega fjármuni að ræða. Björg segir að stutt samantekt á rannsóknum Novartis á íslandi, rannsóknir sem hafi allar snertiflöt við daginn í dag, það er sem er að ljúka, eru í gangi eða eru að hefjast; sýni að beinn útlagður lyfjakostnaður sé um 100 milljónir og heildargjaldeyristekjur af þessum rannsóknum séu um 200 milljónir. „Lyfin sem notuð er í klínískum lyfjarannsóknum eru alltaf greidd af framleiðanda lyfjanna svo hér er um umtalsverðan sparnað að ræða fyrir bæði þátttakendur og hið opinbera. Það eitt og sér ætti að vera hvetjandi til að efna til og taka þátt í klínískum rannsóknum." Halldóra bætir því við að þátttakendur í klínískum lyfjarannsóknum fái þá bestu þjónustu og umönnun sem hugsast getur því mikið sé í húfi við framkvæmd rannsóknanna. „Fólk með erfiða og langvinna sjúkdóma sækist beinlínis eftir því að taka þátt í klínískum lyfjarannsóknum því það veit að þá fær það bestu hugsanlega meðhöndlun." Þær segjast bjartsýnar á framtíð klínískra lyfjarannsókna á íslandi en segja mikilvægt að lyfjafyrirtækin og heilbrigðisyfirvöld komi sér upp formlegum samskiptavettvangi þar sem hægt sé að skiptast á skoðunum og eiga málefnalegt samtal um samskipti og tengsl þessara aðila. „Sem stendur er enginn slíkur vettvangur fyrir hendi og það er mjög ólíkt því sem tíðkast á hinum Norðurlöndunum þar sem þessum málum er ágætlega fyrir komið," segir Björg Árnadóttir markaðsstjóri Novartis á íslandi. LÆKNAblaðið 2009/95 857
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.