Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 50

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 50
U M R Æ Ð L Y F J A R U R O G FRÉTTIR ANNSÓKNIR Faglegur og fjárhagslegur ávinningur „GlaxoSmithKline hefur á undanförnum árum gengið í gegnum nokkra samruna og því hafa fylgt ýmsar breytingar í rekstri og áherslum," segir Hjörleifur Þórarinsson, framkvæmdastjóri GSK á íslandi. Fyrirtækið er í hópi stærstu lyfjaframleiðenda heimsins og því eftir miklu að slægjast þegar klínískar lyfjarannsóknir eru annars vegar. Hávar „Við síðasta samruna var öll rartnsóknarlína Sigurjónsson fyrirtækisins á heimsvísu endurhönnuð og lagðar nýjar línur um hvaða lyfjaflokkar skyldu rannsakaðir og hvar í heiminum rannsóknirnar færu fram og ísland lenti því miður utan þess ramma. Fram að þeim tíma hafði fyrirtækið staðið að mjög umfangsmiklum klínískum For the sabbatical of a lifetime: 0-800-8464 or doctors@gmedicaI.com !ojj Global Medical Staffing, Ltd. FXPERTS IN INTERNATIONAL IOCUM TENENS “...My daughter and I had an amazing tirne. New Zealanders are incredibly friendly, warm and helpful people. Global Medical did a great job!” - Michelle Dhanak, MD lyfjarannsóknum hér á landi með góðum árangri en frá árinu 2007 hafa lyfjarannsóknir GSK farið fram annars staðar. Síðasta stóra rannsóknin sem við stóðum að lauk í haust og ekkert nýtt á döfinni. Þeir sem störfuðu við rannsóknir á okkar vegum eru hættir." Hjörleifur segir að vissulega þyki honum og samstarfsfólki hans þetta súrt í broti en fyrir þessu séu þó skýrar ástæður. „Ein er sú að rannsóknir hér á landi hafa orðið æ dýrari miðað við þau lönd sem GSK horfir til í samanburði. Þá má segja að lyfjafyrirtækin líti á Vesturlönd sem mettaðan markað og beina því sjónum sínum, bæði hvað varðar markaði fyrir lyf og rannsóknarvinnu, til annarra landa, svo sem Kína, Indlands og Brasilíu." Hjörleifur undirstrikar þó að þrátt fyrir þessa þróun þá sé rannsóknarstarf GSK ennþá langtum mest í Evrópu og Bandaríkjunum. „Mér finnst jafnvel mega merkja að rannsóknir á vissum sviðum séu að vaxa aftur á þessu svæði. Við höfum einnig verið beðin um að taka saman svör við spurningum um hvað Island hafi fram að færa sem rannsóknarsvæði og hvað skapi því hugsanlega sérstöðu. Hér eru möguleikar á sérhæfðum rannsóknum þar sem til eru mjög ítarlegar upplýsingar um ákveðna sjúkdómsflokka hjá sérhæfðum rannsóknarsetrum eins og Hjartavernd og Krabbameinsfélaginu. Heilbrigðiskerfið er ennfremur mjög gott og starfsfólkið er mjög vel menntað og auðvelt að halda utan um sjúklingahópa. Þetta eru allt atriði sem halda verður fram ef markaðssetja á ísland sem rannsóknarsvæði fyrir klínískar lyfjarannsóknir." Hjörleifur bendir á að smæð íslands sé ekki kostur þegar klínískar lyfjarannsóknir eru annars vegar. „Grunnkostnaður við rannsóknir er sá sami hvort sem sjúklingahópurinn er stór eða lítill. Við getum ekki keppt við stærri þjóðir hvað þetta varðar. Við verðum að halda fram öðrum kostum. Gæði rannsókna hér á landi eru þó ótvíræð og í þessum harða heimi er sífellt meiri áhersla lögð á aðferðafræði rannsókna og að hinn vísindalegi þáttur sé eins skotheldur og hugsast getur." Þegar kemur að einstökum löndum og heims- svæðum gilda misjafnar reglur og heilbrigðis- yfirvöld setja mismunandi kröfur um inntak 862 LÆKNAblaðið 2009/95
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.