Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 63

Læknablaðið - 15.12.2009, Blaðsíða 63
U M R Æ Ð B Ó UR 0 G FRÉTTIR KARUMFJÖLLUN Þarfaþing fyrir sjúklinga Ásmundur Jónasson asmundur.jonasson@ gb.hg.is Út er komin bókin Krabbamein í blöðruhálskirtli. Þetta er lítil og handhæg bók, um 115 blaðsíður, gefin út af Háskólaútgáfunni. Um er að ræða rit sem skrifað er fyrir almenning en höfundar eru fimm sænskir læknar með mikla reynslu af meðferð blöðruhálskrabbameins að baki, sem og rannsóknir. Bókin er þýdd og frábærlega staðfærð af þeim Eiríki Jónssyni og Snorra Ingimarssyni. Rit þetta er mikið þarfaþing fyrir sjúklinga sem og lækna þeirra einnig, vil ég meina, en um efnið sem oft er flókið og torráðið er fjallað á nærfærinn, en hispurslausan hátt. Krabbamein í blöðruhálskirtli er nú algengasta krabbamein á íslandi í greiningu þó tíðni dauðsfalla sökum þess sé aðeins í þriðja sæti. Gífurleg fjölgun hefur orðið á körlum greindum með krabbamein í blöðruhálskirtli á síðustu 20 árum, eða um 400%. Yfir 200 karlar á íslandi fá árlega greininguna krabbamein í blöðruhálskirtli og fyrir alla þá karla sem og fjölskyldur þeirra er það talsverð lífsreynsla að ganga í gegnum. Vissulega er sjúkdómurinn misalvarlegur sem þó er ekki alltaf vitað í fyrstu. Bókin lýsir ágætlega greiningarferlinu og mjög góður kafli er um PSA-mælingarnar. Sérlega lýsandi sjúklingadæmi eru notuð til að skýra þýðingu hækkaðs PSA-gildis hjá ólíkum mönnum. Ræða læknar almennt við sjúklinga sína um þýðingu PSA-mælinga fyrirfram? Hvaða þýðingu getur mælingin haft fyrir sjúklinga ef niðurstaðan er ekki afgerandi? Álitaefni varðandi þetta og fleira eru vel skýrð með dæmum. Bókin er skrifuð í upplýsandi og bjartsýnum anda og sannarlega full ástæða fyrir lækna að mæla með henni við sjúklinga sína. Einnig tel ég þetta rit vera gagnlegt fyrir aðra lækna en þvagfæraskurðlækna og krabba- meinslækna sem oft eru í miklum tengslum við sjúklinga með krabba- mein í blöðruhálskirtli, svo sem heimilislækna og öldrunarlækna. I lok bókar er að finna góðar upplýsingar um netsíður til frekari upplýsingaleitar. Þarft og virðingarvert framtak til að upplýsa umræðu um þetta algengasta krabbamein í íslenskum körlum. MAN0BÓK UM HEILSU Krabbamein í blöðruhálskirtli Málþing á vegum GlaxoSmithKline á Læknadögum 2010, miðvikudaginn 20. janúar kl. 16:15-18:15 Nýsköpun eða sýndarveruleiki? Málþing um sprotafyrirtæki, rannsóknir og tækifæri á tímum breytinga. Nánari dagskrá síðar m GlaxoSmithKline LÆKNAblaðið 2009/95 875
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.