Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 11

Læknablaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 11
FRÆÐIGREINAR RANNSÓKN Trausti Óskarsson1 læknir Ólafur Gísli Jónsson12 barnalæknir Jón R. Kristinsson12 barnalæknir Guðmundur K. Jónmundsson1’2 barnalæknir Jón Gunnlaugur Jónasson2’34 meinafræðingur Ásgeir Haraldsson12 barnalæknir Lykilorð: börn, krabbamein, faraldsfræði, lifun. 1Barnaspítali Hringsins, 2læknadeild Háskóla íslands, 3rannsóknarstofu í meinafræði, 4Krabbameinsskrá íslands. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Ásgeir Haraldsson, Barnaspítala Hringsins, Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík. asgeirQlandspitali. is Lifun og dánarorsakir barna sem greindust með krabbamein á íslandi 1981-2006 Ágrip Inngangur: Um fjórðungur barna sem greinist með krabbamein deyr vegna sjúkdóms síns eða meðferðartengdra fylgikvilla. Tilgangur rann- sóknarinnar var að kanna lifun og dánarorsakir barna sem greinst hafa með krabbamein á Islandi. Aðferðir: Rannsóknin var afturskyggn, lýð- grunduð og náði til allra einstaklinga yngri en 18 ára sem greindust með krabbamein á íslandi frá upphafi árs 1981 til loka ársins 2006. Upplýsingum var safnað frá Krabbameinsskrá Islands, sjúkraskrám og Hagstofu íslands. Niðurstöður: Á rannsóknartímabilinu greindust 279 böm með krabbamein á Islandi. Af þeim voru 215 á lífi í lok árs 2008. Á tímabilinu var fimm ára lifun 81,2% og 10 ára lifun 76,7%. Ekki var marktækur munur á lifun milli kynja, greiningartímabila, aldurs eða búsetu. Gæti það skýrst af smæð þýðisins. Lifun var mismunandi eftir krabbameinstegundum. Ellefu einstaklingar greindust síðar með meðferðartengd krabbamein, átta þeirra létust. Sextán þeirra 64 sem létust voru í læknandi meðferð fram að andláti. Var dánarorsök meðferðartengdir fylgikvillar hjá 12 úr þeim hópi. Ályktun: Horfur barna og unglinga á Islandi með krabbamein eru sambærilegar við önnur vestræn ríki. Horfur eru mun verri í meðferðar- tengdum krabbameinum samanborið við frum- krabbamein. Meðferðartengdir fylgikvillar eru algengasta dánarorsök ef krabbameinsmeðferð er gefin með læknanlegum tilgangi. Inngangur Hjá vestrænum þjóðum er krabbamein algengasta sjúkdómstengda dánarorsökin hjá börnum eftir fyrsta aldursárið.1-2 Á íslandi er árlegt aldurs- staðlað nýgengi 14,5 af 100.000 börnum yngri en 18 ára og hefur það ekki breyst á síðustu þremur áratugum.3 Árangur krabbameinsmeðferðar hjá bömum er ein af velgengnisögum nútímalæknisfræði. Framfarir í krabbameinsmeðferð voru miklar á sjötta og sjöunda áratugnum en á þeim tíma jókst lifun hjá þessum bömum úr um 35% upp í allt að 70%.4 Munaði þar mest um bætta meðferð við hvítblæði. Þennan góða árangur má fyrst og fremst þakka framfömm í krabbameinslyfjameðferð, beinmergsskiptum og bættri stuðningsmeðferð.5 Talið er að um 75% barna sem greinast með krabbamein á Vesturlöndum læknist nú af þeim.6 Árangur á Norðurlöndunum, þar með talið á Islandi, hefur á undanförnum árum verið með því besta sem þekkist í heiminum.7 Horfur eru mjög mismunandi eftir tegund krabbameins. Rákvöðvasarkmein (rhabdomyo- sarcoma), taugakímfrumnaæxli (neuroblastoma) og heilastofnsæxli (brain stem glioma) hafa til dæmis mun verri horfur en bráðaeitil- frumuhvítblæði (acute lymphoblastic leukemia), lággráðu stjarnfrumnaæxli (low grade astrocy- toma) í heilahveli og sjónkímfrumnaæxli (retino- blastoma).6,8 Að auki fer það eftir vefjafræðilegri stigun, dreifingu og áhættustigi krabbameinsins hverjar horfurnar eru.’1 Ástæður þess að börn látast úr krabbameini eru mismunandi, allt frá beinum áhrifum krabbameinsins, eins og æxlisvaxtar í heila eða brjóstholi, eða meðferðartengdar ástæður eins og sýkingar og blæðingar. Andlát á fyrstu 30 dögum eftir greiningu eru sjaldgæf nú orðið en dæmi eru um að börn greinist með krabbamein skömmu fyrir eða jafnvel eftir andlát.10 Helstu orsakir fyrir snemmkomnu andláti eru sýkingar, blæðingar og aukaverkanir meðferðar.11'12 Langvinnir fylgikvillar krabbameinsmeðferð- ar í æsku eru algengir.13'15 Meðferðartengd krabba- mein eru meðal þeirra alvarlegustu og geta komið upp mörgum árum eftir að krabbameinsmeðferð lýkur.16'19 Algengustu tegundir meðferðartengdra krabbameina sem greinast á bamsaldri eru bráða- mergfrumuhvítblæði (acute myeloid leukemia), sarkmein í beinum og mjúkvefjum og mið- taugakerfisæxli, en ef meðferðartengd krabbamein greinast á fullorðinsaldri eru brjóstakrabbamein og skjaldkirtilskrabbamein algengust.16'20 Horfur meðferðartengdra krabbameina hjá börnum eru mun verri en frumkrabbameina og eru þau algengasta sjúkdómstengda dánarorsökin hjá þessum hópi.18'21 Áður hafa greinarhöfundar birt rannsókn á nýgengi krabbameina hjá bömum á íslandi.3 Markmið þessarar rannsóknar var að kanna LÆKNAblaðið 2010/96 675
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.