Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.2010, Qupperneq 50

Læknablaðið - 15.11.2010, Qupperneq 50
U M R Æ Ð U R HOLDAFAR O G FRÉTTIR Gætum tapað ávinningi síðustu 40 ára „Þjóðin innbyrðir meiri orku en hún eyðir og umframorkan er geymd í líkamanum sem fita. Þetta er kjarni vandans og má líkja við faraldur sem er reyndar alls ekki einskorðaður við Island," segir Bolli Þórsson sérfræðingur í sykursýkislækningum hjá Hjartavernd. Bolli hefur rannsakað þróun holdafars og sykursýki hjá íslendingum og birti niðurstöður rannsóknar þessa efnis í 4. tbl. Læknablaðsins 2009, Þróun holdafars og sykursýki í 40 ár á Islandi. Læknáblaðinu lék hugur á að ræða við Bolla um hinar félagslegu og skipulagslegu ástæður vaxandi ofþyngdar þjóðarinnar. Hvers vegna þyngist þjóðin þegar aldrei hafa legið fyrir eins aðgengilegar upplýsingar um hvernig fólk fitnar og hvað beri að forðast? Bolli segir að á þeim rúmum 40 árum sem liðin eru frá því Hjartavernd var stofnuð hafi margt áunnist. „Á sjöunda áratugnum beindu menn augum að því að kólesteról og hár blóðþrýstingur væru stærstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma og það hefur tekist vel að draga úr þeim með því að upplýsa almenning um hvernig beri að forðast þessa áhættuþætti. Það eru mjög fáir í dag sem koma algjörlega af fjöllum með að feitur matur valdi háu kólesteróli. Þetta er almenn vitneskja sem hefur skilað sér ótvírætt. Á sama tíma hefur það gerst að fólk fitnar og sérstaklega á það við tímabilið eftir 1980. Vandinn sem við stöndum frammi fyrir er að ávinningurinn af minnkandi tíðni hjarta- og æðasjúkdóma getur hreinlega horfið vegna aukinnar tíðni sykursýki 2 af völdum offitu sem aftur er mjög stór áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma." Hugarfarsbreyting er sterkasta vopnið Bolli segir að jákvæðu breytingarnar á heilsufari þjóðarinnar hvað varðar hjarta- og æðasjúkdóma stafi aðeins að hluta af tæknilegum framförum í læknisfræði eða þróun lyfja. „Árangurinn skýrist aðallega af breyttri hegðun fólks. Við sjáum þetta Hávar glöggt hér hjá Hjartavernd, fólk reykir mirtna, Sigurjónsson hreyfir sig miklu meira og borðar hollari mat. Þetta skýrir að langmestu leyti batnandi heilsufar þjóðarinnar. Á sama hátt erum við að vona að með auknum skilningi almennings á því hvað veldur offitu muni svipuð hugarfarsbreyting eiga sér stað og þá takist að snúa þeim þætti við líka." Aðspurður um hvers vegna ekki hafi tekist að koma skilningi inn hjá þjóðinni um hvað valdi offitu, segir Bolli að þyngdaraukningin gerist svo hægt hjá flestum að þeir átti sig ekki á henni fyrr en um seinan. „Það er eitthvert samkomulag um að telja eðlilegt að 50 ára gamall karlmaður sé 15-20 kg þyngri en hann var við 30 ára aldur. Það vantar talsvert á vitund almennings um að það sé óeðlilegt að þyngjast með aldrinum. Þyngdaraukningin gerist yfirleitt svo hægt að fólk tekur varla eftir henni. Hér komum við aftur að því sem ég sagði í upphafi, fólk velur auðvitað matinn út frá hvað mönnum finnst gott, en flestir leiða einnig hugann að því hvort maturinn sé hollur en borða síðan meira en nauðsynlegt er. Flestir láta seddutilfinningu ráða því hvað þeir borða mikið en hún er óáreiðanlegt viðmið fyrir fólk á miðjum aldri og skilar sér yfirleitt í því að fólk innbyrðir meiri orku en það þarf á að halda. Síðan er litið á þyngdaraukningu sem eðlilegan hluta þess að eldast. Þetta er alrangt." Erfitt getur reynst að snúa þessari þróun við og Bolli segir að það sé mjög erfitt að létta sig þegar komið er í óefni. „Það eru einfaldlega ýmis varnarviðbrögð í líkamanum sem fara í gang þegar á að léttast. Líkaminn vill ekki léttast og það fara alls kyns hormón og breytingar í efnaskiptum í gang til að hindra þyngdartap. Þess vegna er ekki bara mjög erfitt að létta sig heldur reynir líkaminn með ýmsum ráðum að ná til baka þyngdartapinu. Fólk er almennt ekki meðvitað um þetta. Hins vegar tekur líkaminn því vel að þyngjast og setur litlar hindranir við því." Aðspurður um hvernig eigi að gera fólk meðvitaðra um orkubúskap líkamans, nefnir Bolli að merkingar á matvælum þyrftu að vera miklu betri og skýrari. „Það þarf að vera miklu skýrara hver orkan er í matvörunni, en sannleikurinn er sá að framleiðendur reyna að flækja þetta og jafnvel fela það. Evrópusambandið hefur verið að reyna að fá í gegn einfaldar merkingar sem eru eins og umferðarljósin. Rautt, gult og grænt 714 LÆKNAblaðið 2010/96
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.