Læknablaðið - 15.11.2010, Side 50
U M R Æ Ð U R
HOLDAFAR
O G FRÉTTIR
Gætum tapað ávinningi
síðustu 40 ára
„Þjóðin innbyrðir meiri orku en hún eyðir og umframorkan er
geymd í líkamanum sem fita. Þetta er kjarni vandans og má líkja
við faraldur sem er reyndar alls ekki einskorðaður við Island,"
segir Bolli Þórsson sérfræðingur í sykursýkislækningum hjá
Hjartavernd.
Bolli hefur rannsakað þróun holdafars og
sykursýki hjá íslendingum og birti niðurstöður
rannsóknar þessa efnis í 4. tbl. Læknablaðsins 2009,
Þróun holdafars og sykursýki í 40 ár á Islandi.
Læknáblaðinu lék hugur á að ræða við Bolla
um hinar félagslegu og skipulagslegu ástæður
vaxandi ofþyngdar þjóðarinnar. Hvers vegna
þyngist þjóðin þegar aldrei hafa legið fyrir eins
aðgengilegar upplýsingar um hvernig fólk fitnar
og hvað beri að forðast?
Bolli segir að á þeim rúmum 40 árum sem
liðin eru frá því Hjartavernd var stofnuð hafi
margt áunnist. „Á sjöunda áratugnum beindu
menn augum að því að kólesteról og hár
blóðþrýstingur væru stærstu áhættuþættir hjarta-
og æðasjúkdóma og það hefur tekist vel að draga
úr þeim með því að upplýsa almenning um
hvernig beri að forðast þessa áhættuþætti. Það
eru mjög fáir í dag sem koma algjörlega af fjöllum
með að feitur matur valdi háu kólesteróli. Þetta
er almenn vitneskja sem hefur skilað sér ótvírætt.
Á sama tíma hefur það gerst að fólk fitnar og
sérstaklega á það við tímabilið eftir 1980. Vandinn
sem við stöndum frammi fyrir er að ávinningurinn
af minnkandi tíðni hjarta- og æðasjúkdóma getur
hreinlega horfið vegna aukinnar tíðni sykursýki
2 af völdum offitu sem aftur er mjög stór
áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma."
Hugarfarsbreyting er sterkasta vopnið
Bolli segir að jákvæðu breytingarnar á heilsufari
þjóðarinnar hvað varðar hjarta- og æðasjúkdóma
stafi aðeins að hluta af tæknilegum framförum í
læknisfræði eða þróun lyfja. „Árangurinn skýrist
aðallega af breyttri hegðun fólks. Við sjáum þetta
Hávar glöggt hér hjá Hjartavernd, fólk reykir mirtna,
Sigurjónsson hreyfir sig miklu meira og borðar hollari mat.
Þetta skýrir að langmestu leyti batnandi heilsufar
þjóðarinnar. Á sama hátt erum við að vona að með
auknum skilningi almennings á því hvað veldur
offitu muni svipuð hugarfarsbreyting eiga sér stað
og þá takist að snúa þeim þætti við líka."
Aðspurður um hvers vegna ekki hafi tekist að
koma skilningi inn hjá þjóðinni um hvað valdi
offitu, segir Bolli að þyngdaraukningin gerist
svo hægt hjá flestum að þeir átti sig ekki á henni
fyrr en um seinan. „Það er eitthvert samkomulag
um að telja eðlilegt að 50 ára gamall karlmaður
sé 15-20 kg þyngri en hann var við 30 ára aldur.
Það vantar talsvert á vitund almennings um
að það sé óeðlilegt að þyngjast með aldrinum.
Þyngdaraukningin gerist yfirleitt svo hægt að fólk
tekur varla eftir henni. Hér komum við aftur að
því sem ég sagði í upphafi, fólk velur auðvitað
matinn út frá hvað mönnum finnst gott, en flestir
leiða einnig hugann að því hvort maturinn sé
hollur en borða síðan meira en nauðsynlegt er.
Flestir láta seddutilfinningu ráða því hvað þeir
borða mikið en hún er óáreiðanlegt viðmið fyrir
fólk á miðjum aldri og skilar sér yfirleitt í því að
fólk innbyrðir meiri orku en það þarf á að halda.
Síðan er litið á þyngdaraukningu sem eðlilegan
hluta þess að eldast. Þetta er alrangt."
Erfitt getur reynst að snúa þessari þróun við
og Bolli segir að það sé mjög erfitt að létta sig
þegar komið er í óefni. „Það eru einfaldlega ýmis
varnarviðbrögð í líkamanum sem fara í gang
þegar á að léttast. Líkaminn vill ekki léttast og það
fara alls kyns hormón og breytingar í efnaskiptum
í gang til að hindra þyngdartap. Þess vegna er ekki
bara mjög erfitt að létta sig heldur reynir líkaminn
með ýmsum ráðum að ná til baka þyngdartapinu.
Fólk er almennt ekki meðvitað um þetta. Hins
vegar tekur líkaminn því vel að þyngjast og setur
litlar hindranir við því."
Aðspurður um hvernig eigi að gera fólk
meðvitaðra um orkubúskap líkamans, nefnir Bolli
að merkingar á matvælum þyrftu að vera miklu
betri og skýrari. „Það þarf að vera miklu skýrara
hver orkan er í matvörunni, en sannleikurinn
er sá að framleiðendur reyna að flækja þetta og
jafnvel fela það. Evrópusambandið hefur verið
að reyna að fá í gegn einfaldar merkingar sem
eru eins og umferðarljósin. Rautt, gult og grænt
714 LÆKNAblaðið 2010/96