Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 43
Ú R ______UMRÆÐA O G FRÉTTIR PENNA STJÓRNARMANNA LÍ Um hestaheilsu lækna Valgerður Rúnarsdóttir lyflæknir va!gerdurr@saa. is Stjórn LÍ Birna Jónsdóttir, formaöur Valgerður Rúnarsdóttir, varaformaöur Sigurveig Pétursdóttir, gjaldkeri Anna K. Jóhannsdóttir ritarí Ágúst Örn Sverrisson Árdís Björk Ármannsdóttir Orri Pór Ormarsson Ragnar Victor Gunnarsson Valentínus Þór Valdimarsson (pistlunum Úrpenna stjórnarmanna U birta þeir sinar eigin skoðanir en ekki félagsins. í niðurskurði sem á heilbrigðiskerfinu hefur dunið hefur stöðugildum fækkað. Þjónustustig hefur lækkað. Nú er rætt um að flytja fleiri verkefni á stóru sjúkrahúsin sem fá þó minni fjárveitingu en áður. Þar hefur starfsfólki verið fækkað. Við læknar höfum áfram sömu skyldum að gegna á ýmsum starfstöðum, sömu vaktir að manna, sömu grunnþjónustu að veita, forvarnir, lækningar, eftirfylgni, kennslu og svo framvegis. Ef færri eru um að manna og sinna þessum skyldum, má búast við meira álagi á þá sem eftir eru. Flestir læknar eru líklega boðnir og búnir að koma til móts við þörfina, og hafa þegar tekið á sig aukaviðvik og viðbótarvaktir. Ymis virtna mætir afgangi, kannski unnin að einhverju leyti utan vinnutíma, frítíminn skerðist, færri helgar á lausu, færri tækifæri að taka út frídaga. Svona má vinna tímabundið, til að bjarga þjónustunni fyrir horn og standa vörð um öryggi sjúklinganna. Læknar við hestaheilsu láta sig ekki muna um aukasnúning. En það má ekki búa við slíkt til lengri tíma. Þreyta og merki kulnunar geta látið á sér kræla. Við höfum lög og reglugerðir varðandi vinnu- stundir og hvíld. Erfiðara er þó að mæla það álag sem fylgir vinnu og hvernig það breytist. Mesta áhyggjuefnið núna hlýtur að vera mannaflinn, sérþekkingin, fagfólkið. í þessum þrengingum er gengið nærri starfsfólki í heilbrigðisþjónustu. Læknar eru sumir hverjir útsettir fyrir miklu vinnuálagi og eftir því sem starfsfólki fækkar, þeim mun meira álag er á þá sem eftir sitja. Hvenær verður mikið álag, OF mikið álag? Jafnvel hættulega mikið álag sem kemur niður á starfsheilsu læknisins og þar með öryggi í meðferð sjúklingsins? Erum við læknar góð í að finna okkar mörk? Erum við góð í að huga vel hvert að öðru? Hvernig tökum við á því ef kollegi vinnur undir getu, af hvaða ástæðu sem er? Hvað ef hann vinnur undir getu vegna langvarandi álags? Hvaða möguleikar eru á að fyrirbyggja kulnun og vanda? Ef mannaflinn er af skornum skammti er ekki svigrúm til að sinna þessu. Það er kannski ekki tækifæri til að veita frí eða hvíld, því það er ekki öðrum til að dreifa. Það er hætta á flótta. Kannski er auðveldara að koma sér annað heldur en að „kvarta" og reyna að hafa áhrif á vinnuumhverfið. Vonandi er ekki svo. Ef vel á að vera, þurfum við læknar gott tækifæri til að grípa inn í og hafa áhrif á gang mála, fljótt, þegar við finnum og sjáum að þrengingar koma niður á starfsþreki og afköstum okkar sjálfra og þeirra sem með okkur vinna. Getum við haft áhrif og leiðrétt stefnuna ef á þarf að halda, til að koma í veg fyrir slæmar afleiðingar? Höfum við slíka aðstöðu á okkar vinnustað? Er það ekki mikilvægt? Víða heyrist af læknaskorti í sérstökum grein- um. Annars staðar er keyrt á lágmarks lækna- fjölda. Hvort tveggja er grafalvarlegt. Er það ekki skylda heilbrigðisyfirvalda að sjá til þess að nægt framboð sé á læknum til að reka heilbrigðisþjónustuna? Að tryggja framboð lækna er margþætt og tekur til menntunar, aðbúnaðar, umhverfis og fleira. Læknaskortur á Islandi er fyrirséður og í raun orðinn. Við því verður að bregðast ef ekki á að verða mikil breyting á framkvæmd og möguleikum heilbrigðisþjónustu hér á landi. A samnorrænum fundi læknafélaganna í ágúst síðastliðnum tók ég þátt í umræðuhópi um einmitt þetta, starfsþrek lækna. Læknar annars staðar á Norðurlöndum hafa einnig áhuga á snemminngripi og aðstoð til lækna sem vinna undir getu („under perfomance") af hvaða orsökum sem það kann að vera. Það má finna leiðbeiningar frá öðrum þjóðum, svo sem Bretum, um þeirra leiðir. Einnig eru til Evrópusamtök um heilsu lækna (European Association for Physician Health) sem halda ráðstefnur um efnið. Umræða um þessi mál hefur að sjálfsögðu verið meðal lækna á íslandi, meðal annars á borði siðfræðiráðs og Læknafélags íslands á árinu, auk erinda á Læknadögum og í Læknablaðinu í gegnum tíðina. Heilsuleysi lækna, inngrip og meðferð vegna veikinda eða hvers konar vanhæfni í störfum, er þó annað verkefni og stærra en það sem ég drep á hér í þessum hugleiðingum mínum, sem er álag á fullhrausta lækna. í þessu árferði niðurskurðar og aðhalds er hestaheilsa og vinnusemi lækna mikilvæg. Enn mikilvægara er þó að gera sér grein fyrir áhrifum of mikils álags, til að hindra kulnun, flótta og frekari ónauðsynlega fækkun í stéttinni. Læknar finna til siðferðilegrar skyldu og ábyrgðar vegna sjúklinga sinna. Því má ekki misbjóða með tillitslausu álagi. Við skipulag í heilbrigðisþjónustunni er mikilvægt að sníða sér stakk eftir vexti, setja þau mörk sem nauðsynleg eru, áætla verk með tilliti til raunhæfrar mönnunar, án þess að reyna að gera hið ómögulega með of fáu starfsfólki. Við höfum varla efni á því þegar til lengdar lætur. LÆKNAblaðið 2010/96 707
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.