Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.2010, Page 54

Læknablaðið - 15.11.2010, Page 54
■ UMRÆÐUR O G FRÉTTIR LÆKNALÖG Og í umsögn dagsettri 13. ágúst 2009 segir: „Læknafélag íslands lýsir sig andvígt því að læknalög verði úr gildi felld. LÍ vill ekki fetta fingur út í það, ef lagabætur vegna annarra heilbrigðisstétta teljast nauðsynlegar. Engin brýn nauðsyn sýnist hins vegar til þess að endurskoða eða fella niður læknalög í því skyni." Síðar segir: „Sýnist ráðuneytinu stefna í óefni með fjölda löggiltra heilbrigðisstétta, má benda á, að einn lagabálkur fyrir alla heilbrigðisstarfsmenn er ólíklegur til að draga úr vanda ráðuneytisins í þeim efnum." Hjúkrunarfræðingar mótfallnir Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga er sama sinnis, en í umsögn þess frá 27. nóvember 2009 segir: „Stjórn Fíh tekur undir það sjónarmið sem fram kemur í umsögn Læknafélags Islands dagsettri 13. ágúst 2009 að ef fjöldi heilbrigðisstétta er kveikjan að hugmynd um setningu einna sameiginlegra laga um heilbrigðistarfsmenn, þá sé nær að hafa fækkun löggildra heilbrigðisstétta að leiðarljósi við setningu laga um heilbrigðisstarfsmenn fremur en að fella brott sérlög sem setja heil- brigðisstéttum skýran ramma." í umsögn Fíh segir ennfremur: „Á það skal bent að í umræddu frumvarpi er enginn greinarmunur gerður á fagstéttum með langt háskólanám að baki og starfsstéttum sem lokið hafa námi á framhaldsskólastigi. Slík aðgreining er nauðsynleg með tilliti til eðlis starfa og ábyrgðar." í umsögn sinni leggst stjórn Fíh ennfremur alfarið gegn því að hjúkrunarlög nr 8/1974 verið felld brott. Hvergi minnst á skottulækningar Læknaráð Landspítala tekur í sama streng í umsögn sinni frá 26. nóvember 2009. Þar segir: „Læknaráð Landspítala telur það bæði óheppi- legt og ónauðsynlegt að afnema læknalög en í „Hagsmunum sjúklinga er betur borgið með sértækum lögum um lækna heldur en með rammalöggjöf sem tekur til 33 ólíkra starfsstétta, sem sumar hverjar hafa litla aðkomu að hefðbundinni læknisfræðilegri greiningu og meðferð.“ Læknaráð Landspítala 26. nóv. 2009 þeim er ágæt grein gerð fyrir ábyrgð, skyldum og réttindum. Læknar gegna lykilhlutverki í heilbrigðiskerfinu þar sem þeir bera ábyrgð á greiningu, meðferð og eftirliti sjúklinga og langstærstur hluti heilbrigðisútgjalda fellur til vegna ákvarðana sem læknar taka. Læknalög frá árinu 1988 eru mun afdráttarlausari hvað varðar skyldur lækna við sjúklinga sína, en hið nýja frumvarp. Þannig telur læknaráðið að hagsmunum sjúklinga sé betur borgið með sértækum lögum um lækna heldur en með rammalöggjöf sem tekur til 33 ólíkra starfsstétta, sem sumar hverjar hafa litla aðkomu að hefðbundinni læknisfræðilegri greiningu og meðferð." Þá bendir læknaráð á að í læknalögunum er kafli um skottulækningar þar sem þær eru afdráttarlaust bannaðar. „Þetta verður að teljast afar mikilvægt vegna sívaxandi framboðs af efnum og „meðferðum" sem ýmsir ófaglærðir aðilar bjóða fram." Undir þetta tekur stjóm LÍ í síðustu umsögn sinni af mörgum í gegnum árin, dagsettri 27. ágúst 2010 og gerir þar efnislegar athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins en ítrekar þó fyrra sjónarmið um læknalögin með þeim orðum að „fyrsta ósk Læknafélagsins er því sú að núverandi læknalögum verði bætt inn í lagafrumvarpið sem sérstökum kafla. Sé ekki meirihluti nefndarmanna fylgjandi því þá leggur Læknafélagið fram tillögur um breytingar á sjö greinum núverandi frumvarps." Tónninn í þessari síðustu athugasemd ber með sér að stjórn Læknafélagsins er orðin nær úrkula vonar um að læknalögin öðlist framhaldslíf og því sé illskást að bjarga því sem bjargað verður og vonast eftir lagfæringum á frumvarpinu sem fyrir liggur. Samræming og einföldun Höfundar frumvarpsins telja það framför og einföldun frá því lagaumhverfi sem nú ríkir. í skýringum með frumvarpinu segir: „Megin- tilgangurinn með rammalöggjöf um réttindi og skyldur heilbrigðisstarfsmanna er að sam- ræma og einfalda gildandi ákvæði um heil- brigðisstarfsmenn, tryggja gæði heilbrigðis- þjónustu og öryggi sjúklinga með því að skilgreina kröfur til heilbrigðisstarfsmanna. Ákvæði um heilbrigðisstarfsmenn eru gerð markvissari og hnitmiðaðri en áður, felldar brott ónauðsynlegar takmarkanir á starfssviði heilbrigðisstétta og þau færð til nútímahorfs þannig að heilbrigðisþjónust- 718 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.