Læknablaðið - 15.01.2012, Side 3
Listfengir öldungar
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL IOURNAL
www. laeknabladid. is
Hlíðasmára 8,
201 Kópavogi
564 4104-564 4106
Útgefandi
Læknafélag íslands
Læknafélag Reykjavíkur
Ritstjórn
Engilbert Sigurðsson,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Anna Gunnarsdóttir
Gylfi Óskarsson
Hannes Hrafnkelsson
Sigurbergur Kárason
Tómas Guðbjartsson
Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir
Þórunn Jónsdóttir
Tölfræðilegur ráðgjafi
Thor Aspelund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaðurog Ijós-
myndari
Hávar Sigurjónsson
havar@iis.is
Öldungadeild Læknafélags íslands heldur uppteknum hætti og stendur fyrir öflugu félagsstarfi. Hópur-
inn kom saman til (jóla)hátíðarkvöldverðar í Norræna húsinu á degi heilagrar Lúsíu, 13. desember.
Víkingur Heiðar Ólafsson lét andann koma yfir samkomuna með því að leika Debussy, Mendelsohn,
Beethoven og Pál ísólfsson. Síðasta lagið á dagskrá var Ave María eftir Sigvalda Kaldalóns í útsetningu
Víkings Heiðars og sem hann lék í minningu afa síns og nafna, Víkings Arnórssonar, og ömmubróður
síns, Páls Gíslasonar.
A Læknadögum bæta öldungar við snúningi og standa fyrir málþingi miðvikudaginn 18. janúar
undir yfirskriftinni Fórur öldungadeildnr, list ogfræði. Þar verður fléttað saman umfjöllun um listsköpun
eldri lækna, ljóð og myndlist, en einnig verður rætt um nýjungar í öldrunarlækningum og hvort læknar
velja sérgrein sína eða sérgreinin lækninn.
LISTAMAÐUR
MÁNAÐARINS
Auglýsingastjóri og ritari
Dögg Árnadóttir
dogg@lis.is
Umbrot
Sævar Guðbjörnsson
saevar@lis.is
Upplag
1700
Áskrift
10.900,- m. vsk.
Lausasala
1090,- m. vsk.
Gleðilegt ár! Nú í upphafi árs þegarfólk hugar að nýjum
dagatölum og dagbókum er við hæfi að beina sjónum að
dagbókarfærslum myndlistarmanns-
ins Sigtryggs Bergs Sigmarssonar
(f. 1977). Hann hefur um langt skeið
safnað teikningum sem hann gerir dag
hvern og merkir stund og stað. Eins
og sjá má eru teikningarnar á mörkum
hins fígúratífa og óhlutbundna, sumar
minna á teiknimyndafígúrur og aðrar
á sjálfsprottnar myndir abstraktlista-
manna. Teikningarnar virðast unnar
frekar hratt í röggsömum strokum
þar sem tilviljun ræður að hluta til för.
Síðan er nostrað við stöku hluta hér og
þar í krókum og kimum sem teikningin
afmarkar. Ýmist er unnið með einu
eða fleiri verkfærum í senn og jafnvel
bæði hægri og vinstri hönd notaðar til
verksins. Sigtryggur er að safna dag-
bókafærslum í bókverk sem brátt lítur
dagsins Ijós og ber heitið Ein Haufen
Berg eða Fjallshrúga. Þýskur orðaleikur listamannsins
með eigin nafn á rætur að rekja til þess að hann bjó um
árabil í Þýskalandi. Þar stundaði hann myndlistarnám
í Hannover og lauk meistaragráðu frá Fachhochschule
Hannover Bildende Kunst árið 2003. Auk hinnar reglulegu
ástundunar teikningar fæst Sig-
tryggur við málverk en þau eru í svip-
uðum anda, litrík og full af fjöri. Hann
er jafnframt ötull gjörningamaður og
sem slíkur treður hann gjarnan upp í
hlutverki hins skjálfandi taugatrekkta
listamanns sem virðist berjast við að
hemja sköpunargleði sína og finna
henni einhvern mótaðan farveg. Með
myndlistarsköpun fæst Sigtryggur
jöfnum höndum við tónlist og þá helst
með hljómsveitinni Stilluppsteypu
sem er kunn fyrir framsækni í hljóð-
heimi sínum sem rambar á mörkum
óhljóða og tónlistar. Af verkum hans
í ólíka miðla er hægt að greina sam-
svörun sem felst í sífelldri leit á mörk-
um skipulags og ringulreiðar. Þannig
sver hann sig í ætt við listamenn eins
og Dieter Roth sem bjó hér á landi á
seinni hluta síðustu aldar og hafði mikil áhrif á íslenskt
listalif - og hefur ef til vill enn.
Markús Þór Andrésson
Prentun, bókband
og pökkun
Oddi,
umhverfisvottuð
prentsmiðja
Höfðabakka 3-7
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta
og geyma efni blaðsins á rafrænu
formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum
hætti, hvorki að hluta né í heild án
leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru
skráðar (höfundar, greinarheiti og
útdrættir) í eftirtalda gagnagrunna:
Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch),
Journal Citation Reports/Science
Edition og Scopus.
The scientific contents of the lcelandic
Medical Journal are indexed and abst-
racted in Medline (National Library
of Medicine), Science Citation Index
(SciSearch), Journal Citation Reports/
Science Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
LÆKNAblaðið 2012/98 3