Læknablaðið - 15.01.2012, Qupperneq 12
RANNSÓKN
Aldur
Mynd 1. Aldursdreifing sjúklinga sem gengust undir kransæðahjáveituaðgerð og/eða
ósæðarlokuskipti á íslandi á árunum 2002-2006. Sýnd er skipting sjúklinganna í yngri
(gráar súlur) og eldri hóp (bláar súlur).
notkun hjarta-, blóðþynningar- og blóðflöguhemjandi lyfja og
hvort sjúklingur hefði áður fengið nýrnabilun eða lungnasjúk-
dóma. Farið var yfir niðurstöður rannsókna sem gerðar voru fyrir
aðgerð, meðal annars niðurstöður kransæðaþræðingar og hjarta-
ómskoðunar. Fyrir aðgerð var EuroSCORE (European System for
Cardiac Operative Risk Evaluation) matskerfið notað til að gera
staðlað áhættumat á iíkum á andláti í kjölfar aðgerðar.'4
Af sjúklingunum 876 gengust 720 undir kransæðahjáveituað-
gerð (82%), 86 undir ósæðarlokuskipti (10%) og 70 sjúklingar geng-
ust undir samhliða kransæðahjáveituaðgerð og ósæðarlokuskipti
(8%). Kransæðahjáveituaðgerðirnar voru ýmist gerðar með aðstoð
hjarta- og lungnavélar (n=536) eða á sláandi hjarta (n=184). Af
aðgerðartengdum breytum var skráð hvort um val- eða bráðaað-
gerð var að ræða, aðgerðartími (húð til húðar), tími á hjarta- og
lungnavél, tangartími (aortic cross clamp timé), blæðing í brjósthols-
kera fyrstu 24 klukkustundir eftir aðgerð og magn blóðhlutagjafa
í einingum.
Skráðir voru fylgikvillar allt til útskriftar af sjúkrahúsi eða fram
að andláti. Fylgikvillum var skipt í minniháttar fylgikvilla (gátta-
tif/flökt, yfirborðssýking í skurðsári, lungnabólga, þvagfærasýk-
ing, aftöppun fleiðruvökva) og meiriháttar fylgikvilla (heilablóð-
fall, hjartadrep, djúp skurðsýking/hjartalokusýking, nýrnaskaði
sem krafðist blóðskilunar eða fjöllíffærabilun). Skurðdauði var
skilgreindur sem andlát innan 30 daga frá aðgerð. Gögn frá Hag-
stofu um dánardag og dánarorsök voru notuð til að reikna út lifun
fram til 31. desember 2009. Úr sömu skrá fengust upplýsingar um
hvort dánarorsök tengdist hjartasjúkdómi eða ekki. Miðgildi eftir-
fylgdar var 61 mánuðir (bil 0-97 mánuðir).
Sjúklingum var skipt í eldri og yngri hóp og var skiptingin
miðuð við 75 ára aldur. Tíðni fylgikvilla og lifun var borin saman
milli hópanna tveggja. Forspárþættir skurðdauða og langtímalif-
unar eldri hópsins voru svo kannaðir sérstaklega. Auk þess var
langtímalifun hans borin saman við lifun viðmiðunarhóps Is-
lendinga af sama aldri og kyni sem var byggð á upplýsingum frá
Hagstofu íslands.
Gagnagrunnurinn var skráður í forritið Excel (Microsoft Corp,
Redmond, WA). Lýsandi og greinandi tölfræði var unnin með
R, útgáfu 2.12.1. Við samanburð hópa var notast við t-próf eða
Mann-Whitney próf fyrir samfelldar breytur og Fischer Exact eða
Kí-kvaðrat próf fyrir hlutfallsbreytur. Langtímalifun var metin
með aðferð Kaplan-Meier. Lifun samanburðarhóps var metin með
notkun lifunartaflna Hagstofu og relsurv-pakkanum í R. Sam-
anburður lifunarkúrfa var gerður með log-rank prófi. Sett var
upp lógistískt áhættulíkan fyrir áhættuþætti skurðdauða (logistic
regression model). Fylgni breyta við langtímalifun var metin með
áhættulíkani Cox (Cox proportional hazard model). Allar breytur sem
notaðar voru í áhættulíkaninu stóðust kröfu um hlutfallsbil (pro-
portionality). Tölfræðileg marktækni miðaðist við p-gildi <0,05.
Tafla I. Samanburður á áhættuþáttum hjartasjúkdóma og niðurstöðum rannsókna hjá eldri (>75 ára) og yngri sjúklingum sem gengust undir kransæðahjáveituaðgerð
eða ósæðariokuskipti með/án kransæðahjáveituaðgerðar á ísiandi 2002-2006. Gefinn er upp fjöldi sjúkiinga og hlutföll í sviga (%) en meðaltöl fyrir fjölda þrengdra
kransæða, útstreymisbrot og EuroSCORE.
Allir Kransæðahjáveituaðgerð eingöngu Ósæðarlokuskipti með/án kransæðahjáveituaðgerðar
Yngri sjúklingar (n=655) Eldri sjúklingar (n=221) p-gildi Yngri sjúklingar (n=571) Eldri sjúklingar (n=149) p-gildi Yngri sjúklingar (n=84) Eldri sjúklingar p-gildi (n=72)
Karlar 543 (83) 108 (67) 0,001 483 (85) 108 (73) 0,001 60(71) 41 (57) 0,09
Sykursýki 110(17) 25 (11) 0,07 95 (17) 14(9) 0,04 69 (18) 61 (15) 0,83
Háþrýstingur 405 (62) 146 (66) 0,29 346(61) 97 (65) 0,36 59 (70) 49 (66) 0,90
Blóðfituröskun 385 (59) 104(47) 0,004 346(61) 75 (50) 0,03 39 (47) 29 (41) 0,55
Reykingar 179(27) 23 (11) <0,001 161 (28) 13(9) <0,001 18(21) 10(14) 0,31
Hjartabilun 88 (13) 56 (25) <0,001 71 (12) 25 (17) 0,21 17(20) 31 (43) 0,004
Fjöldi þrengdra kransæða 2,6±0,8 2,4±1 0,001 2,6±0,4 2,9±0,3 0,02 1,2±1,3 1,3±1,2 0,45
Útstreymisbrot hjarta (Ejection fraction, EF) 53±21 52±29 0,42 53±11 53±10 0,51 58±1 59±1 0,06
Hámarks þrýstingsfall yfir ósæðarloku (mmHg) Á ekki við Á ekki við Á ekki við Á ekki við Á ekki við Á ekki við 70±21 78±29 0,05
EuroSCORE (st) 4,4±3,0 7,8±3,0 <0,001 4,3±3,1 7,4±2,8 <0,001 5,4±2,0 8,7±2,9 <0,001
12 LÆKNAblaðið 2012/98