Læknablaðið - 15.01.2012, Blaðsíða 13
RANNSÓKN
Tafla II. Samanburður á aðgerðartengdum þáttum íhópi eldri (>.75 ára) og yngri sjúklinga sem gengust undir kransæðahjáveituaðgerð eingöngu eða ósæðarlokuskipti
með/án kransæðahjáveituaðgerðar á íslandi 2002-2006. Gefin eru upp meðaltöl og bil nema fyrir aðgerðartegund þar sem lýst er fjölda sjúklinga og hlutfalli (%).
Eingöngu kransæðahjáveituaðgerð Ósæðarlokuskipti með/án kransæðahjáveituaðgerðar
Yngri sjúklingar (n=571) Eldri sjúklingar (n=149) p-giidi Yngri sjúklingar (n=84) Eldri sjúklingar (n=72) p-giidi
Aðgerð á sláandi hjarta 164(29) 43 (29) - Á ekki við Á ekki við -
Aðgerð með hjarta- og lungnavél 407 (71) 106(71) 0,95 84 (100) 72(100) -
Eingöngu ósæðarlokuskipti Á ekki við Á ekki við - 42 (50) 28 (39) -
Ósæðarlokuskipti og kransæðahjáveituaðgerð Á ekki við Á ekki við - 42 (50) 44(61) 0,55
Aðgerðartími, mínútur 204 (85-555) 206 (110-370) 0,81 277 (140-560) 288 (135-690) 0,44
Tangartími, mínútur 42 (13-191) 42 (19-134) 0,90 121 (57-280) 127(64-264) 0,37
Blæðing eftir aðgerð, mL 1021 (100-31820) 1097 (100-4425) 0,41 1229 (185-4980) 1106(0-4760) 0,432
Gjöf rauðkornaþykknis eftir aðgerð, einingar 2 (0-88) 3 (0-31) 0,02 6 (0-29) 9 (0-46) 0,03
Niðurstöður
Aldursdreifing sjúklinga er sýnd á mynd 1, en 221 sjúklingur
reyndist a75 ára (25%) og 665 yngri (75%). Hjá sjúklingum sem
gengust undir ósæðarlokuskipti var hærra hlutfall eldri sjúklinga
en við kransæðahjáveituaðgerð (46% sbr. 21%, p<0,001).
í töflu I er samanburður á áhættuþáttum kransæðasjúkdóms
og niðurstöðum rannsókna í báðum hópum. A meðal eldri sjúk-
linga sem gengust undir kransæðahjáveituaðgerð reyndist hlut-
fall karla, reykinga, sykursýki og blóðfituröskunar lægra. Fjöldi
þrengdra kransæða var hins vegar marktækt hærri í eldri hópnum.
I ósæðarlokuhópnum var marktækt hærra hlutfall eldri sjúklinga
með langvinna hjartabilun fyrir aðgerð, hærra þrýstingsfall yfir
ósæðarloku og hærra EuroSCORE.
Aðgerðartengdir þættir eru sýndir í töflu II. Hlutfall krans-
æðahjáveituaðgerða á sláandi hjarta var sambærilegt milli eldri og
yngri sjúklinga og sömuleiðis hlutfall sjúklinga sem gengust undir
kransæðahjáveituaðgerð samhliða ósæðarlokuskiptum. Blæðing
var sambærileg milli hópa en eldri sjúklingum voru gefnar mark-
tækt fleiri einingar af rauðkornaþykkni.
I töflu III sjást fylgikvillar skurðaðgerðar eftir hópum. Meðal
sjúklinga sem gengust undir kransæðahjáveituaðgerð var tíðni
gáttatifs marktækt hærri í eldri hópnum (57% sbr. 37%, p<0,001)
og gilti hið sama eftir ósæðarlokuskipti (90% sbr. 71%, p=0,006).
Hjá kransæðahjáveituhópnum var samanlögð tíðni allra meiri-
háttar fylgikvilla samanlagt marktækt hærri í eldri hópi en þeim
yngri, þar á meðal tíðni heilablóðfalls (5% sbr. 1%, p=0,009). Eldri
Taf la III. Samanburðurá tíðni minniháttar fylgikvilla, meiriháttar fylgikvilla og skurðdauða milli eldri (a 75 ára) og yngri sjúklinga sem gengust undir kransæðahjáveituaðgerð
eingöngu eða ósæðarlokuskipti með/án kransæðahjáveituaðgerðar á Islandi 2002-2006. Gefinn er upp fjöldi sjúklinga og % ísviga.
Allir Eingöngu kransæðahjáveituaðgerð Ósæðarlokuskipti með/án kransæðahjáveituaðgerðar
Yngri sjúklingar (n=665) Eldri sjúklingar (n=221) p-gildi Yngri sjúklingar (n=571) Eldri sjúklingar (n=149) p-giidi Yngri sjúklingar (n=84) Eldri sjúklingar (n=72) p-giidi
Gáttatif 269 (41) 150(68) <0,001 209 (37) 85 (57) <0,001 60 (71) 65 (90) 0,006
Aftöppun fleiðruvökva 80 (12) 35 (16) 0,21 70 (12) 24 (16) 0,27 10(12) 11 (15) 0,70
Grunn skurðsýking 58(9) 13(9) 0,96 52(9) 13(9) 0,99 6(8) 7(10) 0,77
Lungnabólga 36(6) 31 (14) <0,001 31 (5) 14(9) 0,11 5(6) 17(24) 0,03
Þvagfærasýking 23(4) 33 (15) <0,001 12(2) 15(10) <0,001 11 (13) 18(25) 0,089
Minniháttar fylgikvilli 347 (53) 173 (78) <0,001 284 (50) 107(72) <0,001 63 (75) 66 (92) 0,01
Hjartadrep 79 (12) 38 (17) 0,07 72 (13) 23 (15) 0,44 7(8) 15(21) 0,05
Heilablóðfall 11 (2) 11 (5) 0,01 8(1) 8(5) 0,009 3(4) 3(4) 0,82
Nýrnaskaði sem þarfnaðist blóðskilunar 9(1) 3(1) 0,99 9(2) 3(2) 0,99 0(0) 0(0) 1,00
Djúp skurðsýking / hjartaþelsbólga 5(1) 1 (D 0,99 5(1) 1 (1) 0,79 0(0) 0(0) 1,00
Bringubeinslos 14(2) 10(5) 0,10 12(2) 7(5) 0,14 2(2) 3(4) 0,86
Fjöllíffærabilun / andnauðarheilkenni 21 (3) 22 (10) <0,001 15(3) 8(5) 0,15 6(7) 14(19) 0,04
Meiriháttar fylgikvilli 112(17) 69 (32) 0,01 99 (17) 42 (28) 0,004 13(16) 27 (38) 0,03
Skurðdauði 12(2) 21 (10) <0,001 10(2) 13(9) <0,001 2(2) 8(11) 0,003
LÆKNAblaðið 2012/98 13