Læknablaðið - 15.01.2012, Page 42
FUNDUR L R
Reykjavík gerði í október um mönnunar-
ástandið í heilsugæslunni.
„Það kom mér á óvart að í skýrslunni
er gerður samanburður á milli Svíþjóðar
og íslands, en í Svíþjóð er tilvísanakerfi
og samkvæmt skýrslunni er ástandið hér
svipað og þar. Það sé því ekkert vandamál
að taka upp tilvísanakerfi hér þar sem
fjöldi heimilislækna sé svipaður hér og
í Svíþjóð. Það er ekki mín upplifun, en
tölum um starfandi heimilislækna á
Reykjavíkursvæðinu ber ekki saman þar
sem ég hef getað talið saman 113 lækna en
skýrslan segir þá 148. Þórarinn Ingólfsson
formaður Félags íslenskra heimilislækna
hefur nýlega kannað fjölda heimilislækna
á Norðurlöndunum miðað við íbúafjölda
og þar kemur í ljós að í Danmörku og Sví-
þjóð eru þeir 10% fleiri en hér, og í Noregi
23% fleiri. Það er einnig áhyggjuefni að
meðalaldur heimilislækna á íslandi er rétt
um 55 ár og við blasir að ef halda á heilsu-
gæslunni í landinu gangandi þarf eitthvað
að gerast hratt því endurnýjunarþörfin á
landsvísu er á milli 7 og 10 nýir læknar á
ári, einungis til að halda óbreyttu ástandi."
Gunnlaugur sagði vandann sem við
blasti í heilsugæslunni stafa af reglugerð
sem sett var í tíð Guðlaugs Þórðarsonar
heilbrigðisráðherra þar sem réttur fólks til
að skrá sig á heilsugæslustöðvar og sækja
þangað þjónustu var gerður skilyrðislaus.
„Þetta þýðir að 15-20.000 manns eru
skráðir inn á heilsugæslustöðvarnar en
ekki með neinn heimilislækni því þeir
eru ekki til staðar. Jafnvel þetta segir ekki
alla söguna því sumir eldri læknanna eru
með allt að 2500 sjúklinga skráða á sig og
hafa enga möguleika á að sinna svo stóru
samlagi."
Gunnlaugur sagði að lokum að ef
taka ætti upp tilvísanakerfi að tillögu
skýrslunnar væri eðlilegt að ætla hverjum
lækni að hámarki 1500 sjúklinga. „Til að
mæta því í dag vantar 22 heimilislækna
á Reykjavíkursvæðið. Til lengri tíma litið
yrði þörfin fyrir nýliðun heimilislækna
allt að 12 á ári og það er verkefni til næstu
10-20 ára og þá þarf sannarlega að gera
heimilislækningar að eftirsóknarverðari
starfsvettvangi fyrir unga lækna en nú er
raunin."
42 LÆKNAblaöið 2012/98