Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.2012, Blaðsíða 46

Læknablaðið - 15.01.2012, Blaðsíða 46
UMFJÖLLUN O G GREINAR Aðgangur að tengslaneti um alla Evrópu n^ork Ai*,04w* '°ron, ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson „Við erum hluti af stuðningsumhverfi nýsköpunar og okkar hlutverk er að tengja íslensk fyrirtaeki, rannsóknar- stofnanir og háskóla við sambærilega aðila erlendis. Aðferðafræði okkar felst í tækni- og þekkingaryfirfærslu á milli aðila í gegnum gríðarlega stórt tengsla- net, Enterprise Europe Network, sem nær yfir alla Evrópu," segir Kristín Halldórs- dóttir forstöðumaður Evrópumiðstöðvar tækniyfirfærslu hjá Nýsköpunarmiðstöð íslands. „Tengslanetið er gríðarstórt, með um 600 skrifstofur og yfir 1000 sérfræðinga sem hafa tengsl inn í alla geira atvinnulífsins í viðkomandi landi. í því tilfelli sem hér um ræðir, í heilbrigðis- og læknavísindum, eru starfandi fjölmargir hópar sérfræðinga sem eru tengdir háskólasamfélaginu og hátæknifyrirtækjum í hverju landi, svo möguleikarnir fyrir íslenska aðila að komast í samstarf við erlenda aðila í sömu greinum eru miklir. Það getur líka verið útflutningur á þjónustu og tækniþekk- ingu þannig að um viðskiptasamstarf sé að ræða ekki síður en rannsóknasamstarf," segir Kristín. Enterprise Europe Network er leitt af Nýsköpunarmiðstöð Islands en Rannís og íslandsstofa eru samstarfsaðilar þess. Kristín segir að útfærslur á samstarfi séu fjölmargar og bendir á dæmi um rann- sóknarfyrirtæki á sérhæfðu sviði sem þurfi á tiltekinni tækniþekkingu að halda. „Þeir vita að tæknin eða þekkingin er til annars staðar og það getur verið mun hag- kvæmara að leita samstarfs við þann aðila sem býr yfir henni í stað þess að setja upp búnaðinn og afla sér þekkingarinnar sjálf. Þá er hægt að auglýsa eftir slíku í gegnum tengslanetið og komast í tengsl við starfshóp erlendis sem getur framkvæmt rannsóknina eða veitt tækniaðstoðina og þannig má stytta nýsköpunar- eða rann- sóknarferlið verulega." Sparar tíma, fé og fyrirhöfn Kristín nefnir dæmi um vel heppnað sam- starf af þessu tagi að Blóðbankinn á íslandi auglýsti eftir þekkingu vegna stofnfrumu- rannsókna sinna hér heima og komst í samband við mjög sterkan rannsóknarað- ila á þessu sviði í Skotlandi. „Blóðbankinn fékk líka svörun frá áhugasömum aðilum í Þýskalandi, Finnlandi og Spáni en uppúr þessu urðu til sambönd við miðlun upplýs- inga og þróun aðferða við vefjaverkfræði sem Blóðbankinn var byrjaður á. Þetta er ein af okkar velgengnissögum og upp úr þessu var gerður samstarfssamningur milli Blóðbankanna á íslandi og Spáni með þátttöku rannsóknaraðilans í Skotlandi." Kristín segir að lykilatriði við þessa vinnu sé að leiða aðila saman til að flytja út eða inn þekkingu eða tækni við nýsköp- un og rannsóknir og samstarfið getur ver- ið fólgið í vöruþróun og markaðssetningu á hátæknibúnaði eða vörum sem fyrirtæki eru að þróa. „Við getum sparað fyrirtækj- um mikla vinnu, tíma og fyrirhöfn við að koma þeim og afurðum þeirra á framfæri við aðila í sama geira erlendis. Við gerum okkur hins vegar fyllilega grein fyrir að auðvitað eru læknar og rannsóknaraðilar með sín sambönd og ýmsa samstarfs- aðila, oftast frá þeim háskólum og löndum sem þeir hafa lært í og allir eru ágætlega tengdir við aðra hópa. Við hjá Enterprise Europe Network erum viðbótarleið til að styðja við nýsköpun í landinu," segir Kristín Halldórsdóttir á skrifstofu EEN hjá Nýsköpunar- miðstöð Islands. Kristín. Tengslanetið er fjármagnað að 60% hluta af Evrópusambandinu og 40% frá íslenska ríkinu og var ýtt úr vör árið 2008, en það er tilkomið vegna samruna tveggja fyrirrennara sem voru hýstir hjá fyrrum Útflutningsráði og Iðntæknistofnun. Kristín segir mikilvægt að sem flestir viti af þeim möguleikum sem EEN á Is- landi býður uppá. „Þetta er algjörlega án kostnaðar fyrir viðkomandi, enda er þetta stuðningur opinberra aðila við nýsköpun og rannsóknir í landinu. Það sem við förum fram á frá fyrirtækjunum og rannsóknaraðilunum er að þeir fylli út nákvæma lýsingu á starfsemi sinni. Eftir að tengslin hafa myndast á milli aðila drögum við okkur í hlé, enda hlutverki okkar í rauninni lokið." Styrkjakerfi Evrópusambandsins Næsta áætlun Evrópusambandsins leggur að sögn Kristínar að hluta til áherslu á að hagnýta niðurstöður rannsókna. „Þetta kallar á ítarlegri viðskiptaáætlanir og nákvæmari útlistun á hvernig hagnýta megi niðurstöður rannsóknarverkefna á markaði. Þá getur verið að finna þurfi samstarfsaðila sem getur fleytt niðurstöð- unum áfram, yfir í næsta þrep og þá getur EEN nýst til að finna slíka aðila svo niður- stöðurnar lokist ekki inni í stofnunum og komist ekki út á markað. Dæmi um vel heppnaðar tengingar rannsókna og mark- aðsetningar eru fyrirtæki eins og Marel og Össur." Á vegum Evrópusambandsins eru fjöl- margir möguleikar til að sækja um styrki til rannsóknar- og þróunarverkefni á sviði heilbrigðisvísinda og allar umsóknir þurfa að vera samsettar að minnsta kosti af þremur aðilum í þremur löndum. Kristín hvetur alla sem fást við rannsóknir í heilbrigðisvísindum á íslandi til að hafa samband við skrifstofu EEN og leggja lýsingu á starfsemi sinni á tengslanetið því eftirspurnin eftir samstarfsaðilum sé á báða bóga. „Ef við værum með fleiri lýs- ingar á starfsemi á skrá hjá okkur myndi fyrirspurnum um samstarfsaðila á Islandi eflaust fjölga verulega." 46 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.