Læknablaðið - 15.01.2012, Qupperneq 50
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Tilvísanir heimilislæknis til Landspítalans
utan dagvinnutíma árin 2002-2006
Þórður G. Ólafsson
heimilislæknir
Heilsugæslustöðinni Efra-Breiðholti
thordur. g. olafsson@heilsugaestan. is
Stofnunin þar sem greinin var unnin: Læknavaktin
Forsaga
Meirihluti heimilislækna á höfuðborgar-
svæðinu tekur þátt í vaktþjónustu Lækna-
vaktarinnar á Smáratorgi, eða um 70
læknar. Litið er á vaktþjónustuna sem
framlengdan arm heilsugæslunnar utan
dagvinnutíma og hluta af grunnþjónustu.
Opin móttaka er kl. 17.00-23.30 virka
daga og 09.00-23.30 um helgar og helgi-
daga. Vitjanaþjónusta er kl. 17.00-24.00
virka daga og 08.00-24.00 um helgar og
helgidaga, en frá 1. júní 2011 var fyrir til-
stilli velferðarráðuneytisins felld niður
öll vitjanaþjónusta um nætur frá 24.00 til
08.00. Hjúkrunarfræðingar veita símaráð-
gjöf á sama tíma og auk þess allar nætur
og taka einnig niður vitjanabeiðnir í síma.
Síðustu ár hafa viðtöl vaktlækna í
móttöku Læknavaktarinnar verið yfir
60.000 á ári og vitjanir um 7000 á ári.
Fjöldi símaviðtala við hjúkrunarfræðinga
hafa verið um 55.000 á ári. Af þeim mörgu
sem vaktlæknar skoða þarf alltaf að vísa
einhverjum áfram á Landspítala til frekari
rannsókna og greiningar. Yfirleitt eru þeir
sem fá læknisvitjun í heimahús veikari en
þeir sem koma í móttöku og eðlilegt að
fleirum sé vísað á sjúkrahús eftir vitjun.
Stundum hringja vaktlæknar á Land-
spítalann til að frétta af afdrifum sjúklinga
sem vísað var áfram. Það getur verið
tímafrekt og valdið truflun fyrir lækna
spítalans. Samt geta slíkar upplýsingar
verið mikilvægar í símenntun vaktlækna
og vegna samfellu í þjónustu og eftirfylgd
þar sem margir sjúklingar eru án heimilis-
læknis og vaktlæknirinn getur þurft að
fylgja sjúklingum eftir. Margir hafa treyst
á að fá send læknabréf frá spítalanum,
ekki síst þar sem óskað er eftir slíku á
stöðluðu tilvísunareyðublaði vaktlæknis-
ins sem notað var eingöngu á tímabilinu
2002-2006. Nú prenta vaktlæknar í mót-
töku oftast út samskiptaseðil eða lækna-
bréf úr Sögu og láta fylgja sjúklingnum en
staðlað tilvísunareyðublað er enn notað í
vitjunum.
Hugmyndir kvikna
Tilfinning mín hefur verið sú að fá lækna-
bréf berist frá Landspítala til vaktlækna.
Því ákvað ég að kanna afturvirkt heimtur
á læknabréfum eftir tilvísanir mínar á
Læknavaktinni 2002-2006.
Þegar ég vísaði sjúklingi frá Lækna-
vaktinni á Landspítala bæði í móttöku og
í vitjun, skráði ég á staðlað tilvísunareyðu-
blað í tvíriti persónuatriði viðkomandi
einstaklings, ástæðu tilvísunar, á hvaða
sjúkrahús/deild ég sendi einstaklinginn,
stutta samantekt á ástandinu, dagsetningu
og nafn mitt og vinnustað með beiðni
um að fá sent læknabréf, ásamt stimpli
með nafni mínu. Frumritið fór með ein-
staklingnum en ég hélt eftir afritinu. Ég
safnaði afritunum í möppu og skráði á þau
jafnóðum ef ég fékk læknabréf sent.
Þar sem ýmsar aðrar áhugaverðar upp-
lýsingar voru skráðar á tilvísunareyðu-
blaðið ákvað ég líka að athuga tíðni tilvís-
ana í móttöku og vitjunum, aðaleinkenni
við skoðun, vinnugreiningar við tilvísun
og aldur og kynjahlutfall þeirra sem vísað
var á spítalann.
í september 2011 ákvað ég að gera
rafræna könnun á viðhorfi lækna Lækna-
vaktarinnar til tilvísana og læknabréfa. 58
(82,9%) læknar af 70 tóku þátt í könnun-
inni.
Framkvæmdin
Auk þess að vinna upplýsingar úr afritum
tilvísana minna, skoðaði ég sjúkraskrár
allra til að fá upplýsingar um hvort um
viðtal eða vitjun var að ræða. Ekki fundust
sjúkraskrár 11 einstaklinga (7 karlar og
fjórar konur) til að skoða hvort þeir komu
á móttöku eða fengu vitjun. Hjá 6 manns
af 11 var ekki skráð kennitala og aldur
þeirra óþekktur. Þessir 11 einstaklingar
voru þó taldir með í niðurstöðunum þar
sem það var hægt.
Heildarfjöldi viðtala og vitjana var
fenginn með því að skoða reikninga mína
til Læknavaktarinnar.
Aðaleinkenni við skoðun var það
einkenni sem fékk mesta umfjöllun í texta
í tilvísun og var oftast nefnt þar fyrst.
Vinnugreining var sú greining sem
nefnd var fyrst í tilvísun, líklegust þótti og
var oftast skráð undir „ástæða tilvísunar".
Niðurstöður
Tilvísanir voru 142 á þessu fimm ára tíma-
bili. Frá Landspítala bárust 22 læknabréf
(15%). Vísað var 58 körlum (41% ) og 84
konum (59%). Mikil breidd var í aldri, sá
elsti 94 ára og sá yngsti 19 daga. Flestar
tilvísanir voru í móttöku á aldursbilinu
Tafla I. Flokkun aðaleinkenna við tilvisun á Land-
spitala.
Aðaleinkenni Fjöldi
Kviðverkir 56
Hiti 28
Slappleiki 7
Bakverkur 5
Svimi/yfirlið 5
Höfuðverkur 4
Uppköst/niðurgangur 4
Andþyngsli/mæði 4
Verkur í útlim 4
Hjartsláttartruflun 4
Brjóstverkur 2
Liðverkir 2
Verkur í nára/pung 2
Blóð i þvagi 2
Rautt auga 2
Hnútur í tungu 2
Þvagleki 1
Húðsýking 1
Þvagteppa 1
Ruglástand 1
Kyngingartrufiun 1
Andlitslömun 1
Bjúgur á fótum 1
Önnur einkenni frá munni/koki 1
Hnútur á hálsi 1
Samtals: 142
50 LÆKNAblaðið 2012/98