Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.01.2012, Side 51

Læknablaðið - 15.01.2012, Side 51
T I L V I S A N I R ■ Vitjun ■ Móttaka ■ Óþekkt 0-19 ára 20-39 ára 40-59 ára 60-79 ára 80-94 ára Mynd 1. Flokkun tilvísana cftir aldri og viðtali/vitjun 2006 Tilvísanir á tímabilinu 2002 til 2006. <1 árs til 39 ára en í vitjunum 60-79 ára eins og búast mátti við (mynd 1). Flestir eru á aldrinum <1 árs til 44 ára og er kynjamunur lítill. Mun fleiri konum en körlum var vísað á spítalann úr móttökuviðtali vaktlæknis en kynjamunur var lítill við tilvísun í vitjun. Dreifing til- vísana eftir deildum var sem hér segir: Á Landspítala Fossvogi var vísað 53 manns (37%), á Hringbraut 52 manns (37% ), á barnadeild 31 manns (22%), á háls-, nef- og eyrnadeild tveimur, á augndeild tveimur, á kvennadeild einum og á slysadeild einum. Kviðverkir voru aðaleinkennið hjá 56 manns (39%). Næst kom hiti hjá 28 manns (20%). Slappleiki kom næst eða hjá sjö manns (5%). Tíðni annarra einkenna var mun lægri, (tafla I). Algengustu vinnugreiningar voru þvagfærasýking/sýking í nýra/nýrum hjá 18 (12,7%), botnlangabólga hjá 12 (8,5%), kviðverkir hjá 10 (7%) og gallsteinar/gall- blöðrubóga hjá 9 (6%) (tafla II). Alls voru 48 mismunandi vinnugreiningar en í töflu II eru sýndar 15 sem voru með þrjú tilfelli eða fleiri. Heildarfjöldi viðtala hjá mér í móttöku á tímabilinu var 2458 og vitjana 265. Jafngildir það um það bil 40 viðtölum og fjórum vitjunum að meðaltali í hverjum mánuði á tímabilinu. Á tímabilinu vísaði ég 79 manns (3,2%) á Landspítala eftir viðtal í móttöku á Læknavaktinni en 52 manns (19,6%) eftir vitjun í heimahús. Umræða Hér á landi hafa ekki áður birst neinar upplýsingar um heimtur á Iæknabréfum eftir tilvísanir heimilislækna utan dag- vinnu. í athugun minni 2002-2006 komu fram mjög lélegar heimtur á læknabréfum, eða 15%, sem er í samræmi við mína tilfinningu og í samræmi við skoðun vaktlækna í september 2011. Þar sögðust 35 (60,3%) sjaldan fá sent læknabréf til baka og 16 (27,6%) sögðust aldrei fá læknabréf til baka. Er þetta dapurlegt, meðal annars í ljósi þess að 57 (98,3%) vaktlæknar töldu nú mikilvægt vegna símenntunar að fá upplýsingar í formi læknabréfa um afdrif og meðferð þeirra sem þeir sendu á Land- spítala og 48 (82,8%) töldu sig ekki vera að fá fleiri læknabréf send til baka síðustu tvö til þrjú árin en áður. Ekki má heldur gleyma því að í reglugerð um sjúkraskrár og skýrslugerð varðandi heilbrigðismál, 227/1991, segir í 2. grein að skrá skuli í sjúkraskrá nafn innlagnarlæknis. Einnig stendur í 6. grein að innlagnarlækni skuli sent læknabréf ef hann er annar en heim- ilislæknir. Því tel ég mikilvægt að vinna að farsælli lausn á þessum vanda og gæti það falist í vel skipulagðri og öruggri sendingu rafrænna læknabréfa. Hin mikla breidd í aldri, aðaleinkenn- um og vinnugreiningum sem kemur fram í athuguninni vísar til fjölbreytileika til- fella og hversu víðtæka nálgun vaktlæknar þurfa að tileinka sér í starfi. Ekki hafa áður birst tölfræðilegar upplýsingar um þetta frá heilsugæslu höfuðborgarinnar eða þjónustusvæði Læknavaktarinnar. Engar upplýsingar hafa áður legið fyrir um hlutfall þeirra sem vísað er áfram á Landspítala eftir læknisskoðun utan dagvinnutíma á þjónustusvæði Lækna- vaktarinnar, en það voru 3,2% eftir viðtal í móttöku og 19,6% eftir vitjun í heimahús. Ekki liggja fyrir upplýsingar um kynja- hlutfall þeirra sem ég athugaði. Hins vegar sýnir kynjahlutfall þeirra sem sóttu á mót- tökuna árin 2008-9 að svipaður fjöldi karla og kvenna leitar þangað. Því leyfi ég mér að álykta að hlutfallslega mun fleiri konum en körlum sé vísað á spítalann í móttöku, í þessari rannsókn var hlutfallið 66% konur / 34% karlar. Hef ég ekki ákveðna skýr- ingu á þessum mun. Við tilvísun í vitjun var kynjahlutfall þeirra sem vísað var nokkuð jafnt en töl- fræðilegar upplýsingar liggja ekki fyrir varðandi kynjahlutfall þeirra sem fá vitj- anir. Miðað við að aðeins rúmlega 3% skjólstæðinga í móttöku sé vísað á bráða- móttökur má álykta að heimilislæknarnir sem vinna í grunnþjónustu nái að leysa vandamál langflestra sem þangað leita án utanaðkomandi aðstoðar. Læknavaktin sé þannig öflug forvakt fyrir annars og þriðja stigs þjónustu utan dagvinnutíma. Þess má að lokum geta að heildar- fjöldi móttökuviðtala og vitjana minna á tímabilinu segir ekki til um vinnufram- lag vaktlækna almennt. Vaktlæknar taka mismunandi margar vaktir þó fjöldi út- hlutaðra vakta sé svipaður milli lækna. Á tímabilinu tók ég líklega helmingi færri vaktir en meðal vaktlæknir. Tafla II. Flokkun vinnugreininga við Landspítaia. tilvisun á Vinnugreiningar Fjöldi Þvagfærasýking/sýking í nýra/nýrum 18 Botnlangabólga 12 Kviðverkir 10 Gallsteinar/gallblöðrubólga 9 Lungnabólga 8 Magabólga/magasár 6 Hiti 5 Garnalömun 5 Hjartsláttartruflun 5 Vökvatap 4 Niðurgangur 3 Hægðatregða 3 Samfallsbrot í hrygg 3 Blóðeitrun 3 Heilablæðing/heilablóðfall 3 Annað 50 Samtals 142 LÆKNAblaðið 2012/98 51

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.