Læknablaðið - 15.01.2012, Page 51
T I L V I S A N I R
■ Vitjun
■ Móttaka
■ Óþekkt
0-19 ára 20-39 ára 40-59 ára 60-79 ára 80-94 ára
Mynd 1. Flokkun tilvísana cftir aldri og viðtali/vitjun 2006 Tilvísanir á tímabilinu 2002 til 2006.
<1 árs til 39 ára en í vitjunum 60-79 ára
eins og búast mátti við (mynd 1).
Flestir eru á aldrinum <1 árs til 44
ára og er kynjamunur lítill. Mun fleiri
konum en körlum var vísað á spítalann úr
móttökuviðtali vaktlæknis en kynjamunur
var lítill við tilvísun í vitjun. Dreifing til-
vísana eftir deildum var sem hér segir: Á
Landspítala Fossvogi var vísað 53 manns
(37%), á Hringbraut 52 manns (37% ), á
barnadeild 31 manns (22%), á háls-, nef- og
eyrnadeild tveimur, á augndeild tveimur,
á kvennadeild einum og á slysadeild
einum.
Kviðverkir voru aðaleinkennið hjá 56
manns (39%). Næst kom hiti hjá 28 manns
(20%). Slappleiki kom næst eða hjá sjö
manns (5%). Tíðni annarra einkenna var
mun lægri, (tafla I).
Algengustu vinnugreiningar voru
þvagfærasýking/sýking í nýra/nýrum hjá
18 (12,7%), botnlangabólga hjá 12 (8,5%),
kviðverkir hjá 10 (7%) og gallsteinar/gall-
blöðrubóga hjá 9 (6%) (tafla II). Alls voru
48 mismunandi vinnugreiningar en í töflu
II eru sýndar 15 sem voru með þrjú tilfelli
eða fleiri.
Heildarfjöldi viðtala hjá mér í móttöku
á tímabilinu var 2458 og vitjana 265.
Jafngildir það um það bil 40 viðtölum
og fjórum vitjunum að meðaltali í hverjum
mánuði á tímabilinu.
Á tímabilinu vísaði ég 79 manns (3,2%)
á Landspítala eftir viðtal í móttöku á
Læknavaktinni en 52 manns (19,6%) eftir
vitjun í heimahús.
Umræða
Hér á landi hafa ekki áður birst neinar
upplýsingar um heimtur á Iæknabréfum
eftir tilvísanir heimilislækna utan dag-
vinnu. í athugun minni 2002-2006 komu
fram mjög lélegar heimtur á læknabréfum,
eða 15%, sem er í samræmi við mína
tilfinningu og í samræmi við skoðun
vaktlækna í september 2011. Þar sögðust 35
(60,3%) sjaldan fá sent læknabréf til baka
og 16 (27,6%) sögðust aldrei fá læknabréf
til baka. Er þetta dapurlegt, meðal annars
í ljósi þess að 57 (98,3%) vaktlæknar töldu
nú mikilvægt vegna símenntunar að fá
upplýsingar í formi læknabréfa um afdrif
og meðferð þeirra sem þeir sendu á Land-
spítala og 48 (82,8%) töldu sig ekki vera
að fá fleiri læknabréf send til baka síðustu
tvö til þrjú árin en áður. Ekki má heldur
gleyma því að í reglugerð um sjúkraskrár
og skýrslugerð varðandi heilbrigðismál,
227/1991, segir í 2. grein að skrá skuli í
sjúkraskrá nafn innlagnarlæknis. Einnig
stendur í 6. grein að innlagnarlækni skuli
sent læknabréf ef hann er annar en heim-
ilislæknir.
Því tel ég mikilvægt að vinna að
farsælli lausn á þessum vanda og gæti það
falist í vel skipulagðri og öruggri sendingu
rafrænna læknabréfa.
Hin mikla breidd í aldri, aðaleinkenn-
um og vinnugreiningum sem kemur fram
í athuguninni vísar til fjölbreytileika til-
fella og hversu víðtæka nálgun vaktlæknar
þurfa að tileinka sér í starfi. Ekki hafa áður
birst tölfræðilegar upplýsingar um þetta
frá heilsugæslu höfuðborgarinnar eða
þjónustusvæði Læknavaktarinnar.
Engar upplýsingar hafa áður legið fyrir
um hlutfall þeirra sem vísað er áfram
á Landspítala eftir læknisskoðun utan
dagvinnutíma á þjónustusvæði Lækna-
vaktarinnar, en það voru 3,2% eftir viðtal í
móttöku og 19,6% eftir vitjun í heimahús.
Ekki liggja fyrir upplýsingar um kynja-
hlutfall þeirra sem ég athugaði. Hins vegar
sýnir kynjahlutfall þeirra sem sóttu á mót-
tökuna árin 2008-9 að svipaður fjöldi karla
og kvenna leitar þangað. Því leyfi ég mér
að álykta að hlutfallslega mun fleiri konum
en körlum sé vísað á spítalann í móttöku, í
þessari rannsókn var hlutfallið 66% konur
/ 34% karlar. Hef ég ekki ákveðna skýr-
ingu á þessum mun.
Við tilvísun í vitjun var kynjahlutfall
þeirra sem vísað var nokkuð jafnt en töl-
fræðilegar upplýsingar liggja ekki fyrir
varðandi kynjahlutfall þeirra sem fá vitj-
anir.
Miðað við að aðeins rúmlega 3%
skjólstæðinga í móttöku sé vísað á bráða-
móttökur má álykta að heimilislæknarnir
sem vinna í grunnþjónustu nái að leysa
vandamál langflestra sem þangað leita án
utanaðkomandi aðstoðar. Læknavaktin sé
þannig öflug forvakt fyrir annars og þriðja
stigs þjónustu utan dagvinnutíma.
Þess má að lokum geta að heildar-
fjöldi móttökuviðtala og vitjana minna á
tímabilinu segir ekki til um vinnufram-
lag vaktlækna almennt. Vaktlæknar taka
mismunandi margar vaktir þó fjöldi út-
hlutaðra vakta sé svipaður milli lækna. Á
tímabilinu tók ég líklega helmingi færri
vaktir en meðal vaktlæknir.
Tafla II. Flokkun vinnugreininga við Landspítaia. tilvisun á
Vinnugreiningar Fjöldi
Þvagfærasýking/sýking í nýra/nýrum 18
Botnlangabólga 12
Kviðverkir 10
Gallsteinar/gallblöðrubólga 9
Lungnabólga 8
Magabólga/magasár 6
Hiti 5
Garnalömun 5
Hjartsláttartruflun 5
Vökvatap 4
Niðurgangur 3
Hægðatregða 3
Samfallsbrot í hrygg 3
Blóðeitrun 3
Heilablæðing/heilablóðfall 3
Annað 50
Samtals 142
LÆKNAblaðið 2012/98 51