Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.09.2012, Qupperneq 7

Læknablaðið - 15.09.2012, Qupperneq 7
RITSTJÓRNARGREIN Tækjabúnaður Landspítala: umhyggja - fagmennska - öryggi - framþróun? Þórunn Jónsdóttir Hðfundur er sérfræöingur í lyflækningum og gigtlækningum og situr f ritstjórn Læknablaðsins. torunnjo@landspitali.is Landspítali hefur valið slagorðin umhyggja -fagmennska - öryggi - framþróun í stefnu- mörkun sinni. Þessi orð fela í sér þau gildi sem spítalinn vill hafa að leiðarljósi og vinna eftir. Þegar horft er til tækjabúnaðar spítalans koma þessi slagorð þó sérfræðingi sem nýkominn er til starfa á Landspítala nokkuð spánskt fyrir sjónir. Sem nýliði á sjúkrahúsinu hef ég furðað mig á tækjum eða öllu heldur á tækjavanda spítalans og mér hefur gengið illa að finna góðan tækjabúnað við vinnu mína. Sérgrein mín er þó ekki ein þeirra sem þarf að reiða sig hvað mest á tæknina. Engu að síður hef ég ekki farið varhluta af tækja- og tæknivanda spítalans. Jafn einfalt verk eins og að mæla blóðþrýsting sjúklinga minna á göngudeildinni virðist ekki sjálfsagt. Mælarnir virka ekki, manséttur eru slitnar, leka, eru í röngum stærðum og þar fram eftir götunum. Að geta skoðað í eyru sjúklinga sem liggja á sjálfri háls-, nef- og eyrnadeild Landspítala er heldur ekki alltaf sjálfgefið. Nýverið lá einn sjúk- linga minna þar og var meðal annars með heyrnarskerðingu sem hafði versnað. Ég ætlaði ásamt aðstoðarlæknum mínum að gera góða og faglega skoðun og meðal annars skoða inn í eyrun. Ekki tókst þó betur til en svo að senda þurfti sjúklinginn að endingu niður á sérstaka göngudeild til HNE-sérfræðinga því engar fundust „græjurnar" á Iegudeildinni - sem sagt ekkert eyrnaspeglunartæki á HNE-deild! Þetta eru kannski smáhlutir en staða þeirra gefur þó tóninn í stærra samhengi. Á bráðamóttökudeildum er að mér skilst hrópandi vöntun á betri tækjabúnaði til að fylgjast með lífsmörkum bráðveikra sjúklinga (monitoreftirlit). í fyrsta lagi er ekki að finna slíkan sjálfsagðan búnað í öllum bráðaplássum eins og vera ber á háskólasjúkrahúsi. I öðru Iagi er ekki alltaf möguleiki á að hafa eftirlit úr svokallaðri móðurstöð í vaktherbergi, úr þeim búnaði sem þó er til staðar. Þetta verður að teljast óásættanlegt og getur vart flokkast undir öryggi eða fagmennsku, hvað þá fram- þróun. Hvar er fagmennskan og öryggið þegar hjartaómunartæki Landspítalans í Fossvogi er svo Iélegt að illa gengur að reiða sig á niðurstöðurnar? Hvar er umhyggjan, fag- mennskan og öryggið þegar verið er að þeysast með sjúklinga í rannsókn sem gef- ur mun ónákvæmari svör en við vitum að við getum fengið úr betra tæki. Ég hef oftar en einu sinni lent í að endurtaka þarf sömu rannsókn á betra hjartaómunartæki á spítalanum á Hringbraut. Ég hef spurt mig hvort ekki hefði verið betur heima setið en af stað farið þegar ég les svör eins og: ... ekki er með vissu hægt að útiloka ... vegna lélegra ómskilyrða ... ef áfram er klínískur grunur um ... er mælt með endurtekinni skoðun á hjartaómun á Hringbraut. Það hlýtur að vera óþolandi fyrir okkar færu hjartalækna að sitja með svo lélegt tæki í höndunum - er ekki verið að fara með dýrmætan tíma vel menntaðs og þjálfaðs fólks til spillis þegar sett eru í hendurnar á fólki úrelt tæki í Fossvogi? Talið er löngu tímabært að endurnýja geislatæki krabbameinsdeildanna. Getum við talað um fagmennsku og framþróun þegar notuð eru 16 ára gömul tæki þegar stærri sjúkrahús nágrannalandanna eru fyrir allmörgum árum búin að verða sér úti um mun betri og nákvæmari tæki. Tæki sem gefa nákvæmari geislun og þar af leiðandi sennilega betri árangur og minni aukaverkanir. Getum við fullyrt við sjúklinga okkar að þeir fái bestu og öruggustu þjónustu sem völ er á? Erum við á braut framþróunar? Tölvukostur og hugbúnaður sjúkra- hússins er kapítuii út af fyrir sig. Ég hef margsinnis reytt hár mitt yfir hægfara og biluðum tölvum og úreltum hugbúnaði. Nú í sumar hefur um helmingur tölvanna á minni deild verið bilaður. Það er sorglega mikil sóun á tíma sem fer í að finna tölvu sem virkar, bíða eftir hægfara tölvum/kerf- um, finna prentara sem venjulega eru stað- settir Iangt frá þeirri tölvu þar sem verið er að vinna og svo framvegis. Á vinnu- fundum fer alltof mikill tími í að láta tækn- ina virka þannig að fundir verða oft óþarf- Iega óskilvirkir ... og enn er margt ótalið. Slagorð spítalans eru góð og gild og bera sennilega með sér þau gildi sem hver starfsmaður innan sjúkrahússins vill vinna að í sínu starfi. En hvað varðar tækjabúnað og tæknimál Landspítala hljóma þau enn sem komið er í mínum eyrum sem innan- tóm stafaruna. Við leggjum mikið á okkur í tfma og fjármagni við að mennta gott fólk og þróa læknavísindin. Ég efast um að mikill sparnaður geti falist í að spara svo á sviði tækja og tækni sem nú er raunin - verður slíkur sparnaður ekki á endanum að aukakostnaði? Mér sýnist að of víða á Landspítala séum við vegna fjársveltis komin að þeim mörkum þar sem við hendum krónunni og spörum aurinn. Equipment in Landspítali University Hospital: Compassion-Professionalism-Safety-Progress? Þórunn Jónsdóttir, MD, PhD specialist in Internal Medicine and Rheumatology LÆKNAblaðið 2012/98 447
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.