Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 52

Læknablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 52
OLDUNGADEILD Flateyjardalur og Fjörður Fagurt er ( Fjörðum þií frelsarimi gefur veðrið blitt, heyið grænt (görðum, grös og heilagfiskið nýtt. En þá veturinn að þeim tekur sveigja, veit ég enga verri sveit um veraldarreit. Menn og dýr þd deyja. Björg Einarsdóttir, Látra-Björg, 1711-1784 Dagana 20.-23. júlí síðastliðinn héldu félagar úr öldungadeild Læknafélags íslands í ferð um Fjörður og Flateyjardal undir leiðsögn Valgarðs Egilssonar félaga okkar. Norður var farið um Sprengisand en næstu tvo daga voru skoðaðir megináfangastaðirnir. Heim var ekið um Héðinsfjarðargöng og Siglufjörð. Leiðsögn Valgarðs verður ferðalöngun- um ógleymanleg. Þekking hans á náttúru svæðisins, fólkinu sem þar bjó og baráttu þess við óblíð náttúruöfl og einangrun virtist ótæmandi. Öllum var ljóst hve mjög hann ann þessum átthögum sínum. Hér fylgja nokkur sögubrot um baráttu fólksins í Fjörðum. Snjóþyngsli Theódór Friðriksson lýsir í ævisögu sinni í verurn heimferð úr haustróðrum. í myrkri og hríð gekk hann á skíðum frá Eyri í Hvalvatnsfirði heim að Giii þar sem hann bjó þá. „Svona þumbaðist eg áfram. Fyrir mér urðu nokkur þvergil á leiðinni, og féll eg tvisvar fram af snjóhengjum. Eg var nú svo sem kunnugur leiðinni þeirri arna, en þó var það svona, að eg varð að hafa vakandi aðgæzlu á öllu, ef eg átti ekki að fara afvega, eftir að eg var kominn fram yfir Klifið, sem kallað var. Þá var hríðarmuggan orðin svo dimm, að rétt glórði í beygjurnar á skíðunum, og tók eg nú að kvíða fyrir því, að eg yrði að grafa mig í fönn. Mér blöskraði snjórinn, og kom það í hug, að bærinn mundi aiveg kominn í kaf. Eg þóttist vera á réttri leið, en gat þó ekki fundið kotið. Eg byrjaði á því að rífa til með stafnum til þess að gera mér holu til að setjast að í. Þá varð fyrir mér undarleg misfella. Þetta var norðurstafninn Hópurinn dfjörukambi (Hvalvatnsfirði. á eldhúsinu. Jæja, karlinn, hugsaði eg, þetta mátti ekki tæpara standa. Þessi stund líður mér seint úr minni." Leitaö læknis Úr kaflanum Strandbyggðir Mið-Norður- lands sem Valgarður ritaði í Arbók FI árið 2000. „Geirfinnur Magnússon býr síðastur í Keflavík. ... Kona Geirfinns var Sigurbjörg Halldórsdóttir frá Háagerði, skyldi ala barn síðla sumars 1895. Fæðingin gekk ekki og næsti læknir var á Akureyri. Geirfinnur beislaði Jörp slna, kostagrip mikinn, og rfður inn Keflavíkurdal og yfir Uxaskarð og inn alla Strönd, inn Höfðahverfi og Svalbarðs- strönd, fær bát með sig yfir til Akureyrar og ræsir lækninn, - heidur síðan strax af stað til baka. Læknir kemur á eftir með fylgdarmanni. Geirfinnur ríður nú á undan út Svalbarðsströnd svo sem hrossið þolir og út Höfðahverfi, en á hlaðinu á Lómatjörn þá fellur Jörp niður og er hún þá sprungin. Geirfinnur fær þegar annað hross lánað og ríður nú sem hann kemst út Látraströnd, Látrakleifar, út í Fossdal yfir Uxaskarð og niður í Keflavík. En þegar heim kemur ... þá er Jörp þar fyrir í hlaði. Og hafði hún þá staðið fljótlega á fætur á ný og hlaupið af stað - en hún velur að fara aðra leið, Leirdalsheiði út í Fjörður og síðan vestur yfir Fjörðurnar, Blæju og Hnjáfjall, niður hjá Messukletti og heim í Keflavík. Seinna kom læknirinn og var barnið þá lxfvana. En það varð að reyna að bjarga lífi móðurinnar. Og var nú barnið tekið út með töngum og þurfti töluverð átök til og beyglaðist höfuðið æðimikið, en þó náðist það út... en svo fer Saga úr drepsótt Snemma á 18. öld var það að pest gekk um landið og banaði mörgum, í Keflavík ölium nema 11 ára stúlka lifði, Margrét að nafni. Þetta var um miðjan vetur. Faðir hennar dó síðastur, vissi áður að hverju dró og minnti Margréti litlu á að fara með bænir sínar. Sjálfur fór hann fram í göngin, þar væri svalara. Garðabönd í fjárhúsum hafði hann slegið frá svo að féð kæmist í hey. Mikil ótíð var og engar mannaferðir höfðu orðið um Keflavík. Og mátti Margrét nú ein þreyja þar sex vikur á útmánuðum. En upp úr páskum höfðu Látramenn hafið róðra og þegar út fyrir Gjögur kom sjá þeir að ekki rýkur í Keflavík. Þeir fara í land og þá var aðkoman þessi. Margrét lifði lengi, hún varð vinnukona síðar inní Höfðahverfi. Ekki hafði hún orðið söm eftir. Keflavíkur-Manga lifir líklega fram undir móðuharðindi. Sagan er skráð af Þor- steini Þorkelssyni eftir sögn Sveins Sveins- sonar á Hóli í Höfðahverfi um miðja 19. öld, og er það traust heimild." Valgarður Egilsson leiðsögumaður. barnið allt í einu að anda og gráta eins og lifandi fólk gerir - og var þetta drengur, hann var skírður Þórhallur, varð merkur bóndi, að Botni í Fjörðum. Móðirin lifði ekki af. Örin á enni Þórhalls entust fram um 1980. 0ldungadeild Læknafélags íslands Stjórn Öldungadeildar: Sigurður E. Þorvaldsson formaður, Jón Hilmar Alfreðsson ritari, Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri, Bjarni Hannesson, Guðmundur Oddsson Öldungaráö Umsjón siðu: Páll Ásmundsson Hörður Þorleifsson, Jóhann Gunnar Þorbergsson, Höskuldur Baldursson, Kristín Guttormsson, Leifur Jónsson, Páll Ásmundsson 492 LÆKNAblaðið 2012/98
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.