Læknablaðið - 15.09.2012, Side 52
OLDUNGADEILD
Flateyjardalur
og Fjörður
Fagurt er ( Fjörðum
þií frelsarimi gefur veðrið blitt,
heyið grænt (görðum,
grös og heilagfiskið nýtt.
En þá veturinn að þeim tekur sveigja,
veit ég enga verri sveit
um veraldarreit.
Menn og dýr þd deyja.
Björg Einarsdóttir, Látra-Björg, 1711-1784
Dagana 20.-23. júlí síðastliðinn héldu
félagar úr öldungadeild Læknafélags
íslands í ferð um Fjörður og Flateyjardal
undir leiðsögn Valgarðs Egilssonar félaga
okkar. Norður var farið um Sprengisand
en næstu tvo daga voru skoðaðir
megináfangastaðirnir. Heim var ekið um
Héðinsfjarðargöng og Siglufjörð.
Leiðsögn Valgarðs verður ferðalöngun-
um ógleymanleg. Þekking hans á náttúru
svæðisins, fólkinu sem þar bjó og baráttu
þess við óblíð náttúruöfl og einangrun
virtist ótæmandi. Öllum var ljóst hve mjög
hann ann þessum átthögum sínum.
Hér fylgja nokkur sögubrot um baráttu
fólksins í Fjörðum.
Snjóþyngsli
Theódór Friðriksson lýsir í ævisögu sinni
í verurn heimferð úr haustróðrum. í myrkri
og hríð gekk hann á skíðum frá Eyri í
Hvalvatnsfirði heim að Giii þar sem hann
bjó þá.
„Svona þumbaðist eg áfram. Fyrir mér urðu
nokkur þvergil á leiðinni, og féll eg tvisvar
fram af snjóhengjum. Eg var nú svo sem
kunnugur leiðinni þeirri arna, en þó var það
svona, að eg varð að hafa vakandi aðgæzlu
á öllu, ef eg átti ekki að fara afvega, eftir að
eg var kominn fram yfir Klifið, sem kallað
var. Þá var hríðarmuggan orðin svo dimm,
að rétt glórði í beygjurnar á skíðunum, og
tók eg nú að kvíða fyrir því, að eg yrði að
grafa mig í fönn. Mér blöskraði snjórinn,
og kom það í hug, að bærinn mundi aiveg
kominn í kaf. Eg þóttist vera á réttri leið,
en gat þó ekki fundið kotið. Eg byrjaði á
því að rífa til með stafnum til þess að gera
mér holu til að setjast að í. Þá varð fyrir mér
undarleg misfella. Þetta var norðurstafninn
Hópurinn dfjörukambi (Hvalvatnsfirði.
á eldhúsinu. Jæja, karlinn, hugsaði eg, þetta
mátti ekki tæpara standa. Þessi stund líður
mér seint úr minni."
Leitaö læknis
Úr kaflanum Strandbyggðir Mið-Norður-
lands sem Valgarður ritaði í Arbók FI árið
2000.
„Geirfinnur Magnússon býr síðastur í
Keflavík. ... Kona Geirfinns var Sigurbjörg
Halldórsdóttir frá Háagerði, skyldi ala barn
síðla sumars 1895. Fæðingin gekk ekki og
næsti læknir var á Akureyri. Geirfinnur
beislaði Jörp slna, kostagrip mikinn, og rfður
inn Keflavíkurdal og yfir Uxaskarð og inn
alla Strönd, inn Höfðahverfi og Svalbarðs-
strönd, fær bát með sig yfir til Akureyrar
og ræsir lækninn, - heidur síðan strax af
stað til baka. Læknir kemur á eftir með
fylgdarmanni. Geirfinnur ríður nú á undan
út Svalbarðsströnd svo sem hrossið þolir og
út Höfðahverfi, en á hlaðinu á Lómatjörn
þá fellur Jörp niður og er hún þá sprungin.
Geirfinnur fær þegar annað hross lánað og
ríður nú sem hann kemst út Látraströnd,
Látrakleifar, út í Fossdal yfir Uxaskarð og
niður í Keflavík. En þegar heim kemur ...
þá er Jörp þar fyrir í hlaði. Og hafði hún
þá staðið fljótlega á fætur á ný og hlaupið
af stað - en hún velur að fara aðra leið,
Leirdalsheiði út í Fjörður og síðan vestur
yfir Fjörðurnar, Blæju og Hnjáfjall, niður
hjá Messukletti og heim í Keflavík. Seinna
kom læknirinn og var barnið þá lxfvana. En
það varð að reyna að bjarga lífi móðurinnar.
Og var nú barnið tekið út með töngum og
þurfti töluverð átök til og beyglaðist höfuðið
æðimikið, en þó náðist það út... en svo fer
Saga úr drepsótt
Snemma á 18. öld var það að pest gekk um
landið og banaði mörgum, í Keflavík ölium
nema 11 ára stúlka lifði, Margrét að nafni.
Þetta var um miðjan vetur. Faðir hennar dó
síðastur, vissi áður að hverju dró og minnti
Margréti litlu á að fara með bænir sínar.
Sjálfur fór hann fram í göngin, þar væri
svalara. Garðabönd í fjárhúsum hafði hann
slegið frá svo að féð kæmist í hey. Mikil ótíð
var og engar mannaferðir höfðu orðið um
Keflavík. Og mátti Margrét nú ein þreyja
þar sex vikur á útmánuðum. En upp úr
páskum höfðu Látramenn hafið róðra og
þegar út fyrir Gjögur kom sjá þeir að ekki
rýkur í Keflavík. Þeir fara í land og þá var
aðkoman þessi. Margrét lifði lengi, hún varð
vinnukona síðar inní Höfðahverfi. Ekki
hafði hún orðið söm eftir.
Keflavíkur-Manga lifir líklega fram
undir móðuharðindi. Sagan er skráð af Þor-
steini Þorkelssyni eftir sögn Sveins Sveins-
sonar á Hóli í Höfðahverfi um miðja 19. öld,
og er það traust heimild."
Valgarður Egilsson
leiðsögumaður.
barnið allt í einu að anda
og gráta eins og lifandi fólk gerir - og var
þetta drengur, hann var skírður Þórhallur,
varð merkur bóndi, að Botni í Fjörðum.
Móðirin lifði ekki af. Örin á enni Þórhalls
entust fram um 1980.
0ldungadeild
Læknafélags íslands
Stjórn Öldungadeildar:
Sigurður E. Þorvaldsson formaður, Jón Hilmar
Alfreðsson ritari, Tryggvi Ásmundsson gjaldkeri,
Bjarni Hannesson, Guðmundur Oddsson
Öldungaráö Umsjón siðu: Páll Ásmundsson
Hörður Þorleifsson, Jóhann Gunnar
Þorbergsson, Höskuldur Baldursson, Kristín
Guttormsson, Leifur Jónsson, Páll Ásmundsson
492 LÆKNAblaðið 2012/98