Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 51

Læknablaðið - 15.09.2012, Blaðsíða 51
UMFJÖLLUN O G GREINAR Mynd tekiti 31. janúar 1952. Sitjandi frd vinstri: Einar, Baldur, Magnús. Standandi frá vinstri: Olav, Páll, Guðjón, Arvid, Kjartan. 60 ára kandídatar útskrifaðir 31. janúar 1952 Páll Sigurðsson fyrrum ráðuneytisstjóri Þess var minnst fyrr í vetur þegar kennarar og kandídatar komu fyrst saman við próflok og nú nýlega lýst hvernig Læknafélag íslands fagnar nýjum læknaefnum. Mér datt í hug af þessu tilefni að lýsa því hvernig þessu var háttað fyrir 60 árum. Þá luku læknanemar kandídatsprófi bæði í janúar og júní. í janúar 1952 voru óvenju margir sem luku prófi. Við vorum 8 sem hófum próf og allir luku því. Þessir luku prófinu: norsku tvíburabræðurnir Arvid Johan Knutsen f. 1925, d. 1959 og Olav Thorvald Knudsen, f. 1925, d. 2009, stúdentar í Noregi 1944. Baldur Jónsson f. 1923, stúdent frá MA 1944, Einar Eiríksson f. 1923, stúdent frá MA 1944, Guðjón Guðnason f. 1923, d. 1998, stúdent frá MR 1944, Kjartan Ólafsson f. 1919, d. 1973, stúdent frá MR 1942, Magnús H. Ágústsson f. 1924, stúdent frá MR 1946, Páll Sigurðsson f. 1925, stúdent frá MR 1946. Eins og fram kemur vorum við Magnús samstúdentar og lukum náminu á 5 ári. Það var engin hátíðleg útskrift. Júlíus Sigurjónsson var forseti læknadeildar. Hann bauð okkur heim á heimili sitt 31. janúar upp á kaffi og meðlæti og lét okkur undirrita læknaeiðinn. Eftir boð Júlíusar höfðum við pantað myndatöku hjá Lofti ljósmyndara og því er til mynd af okkur saman. Við höfum aldrei allir hist eftir þessa útskrift. Fjórir störfuðu erlendis mest af starfsævinni, Olaf, Arvid og Einar á Norðurlöndum en Magnús í Bandaríkjunum. LÆKNAblaðið 2012/98 491
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.