Læknablaðið - 15.09.2012, Síða 51
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Mynd tekiti 31. janúar 1952. Sitjandi frd vinstri: Einar, Baldur, Magnús. Standandi frá vinstri: Olav, Páll, Guðjón, Arvid, Kjartan.
60 ára kandídatar útskrifaðir 31. janúar 1952
Páll Sigurðsson
fyrrum ráðuneytisstjóri
Þess var minnst fyrr í vetur þegar kennarar og kandídatar komu
fyrst saman við próflok og nú nýlega lýst hvernig Læknafélag
íslands fagnar nýjum læknaefnum. Mér datt í hug af þessu tilefni
að lýsa því hvernig þessu var háttað fyrir 60 árum. Þá luku
læknanemar kandídatsprófi bæði í janúar og júní. í janúar 1952
voru óvenju margir sem luku prófi. Við vorum 8 sem hófum próf
og allir luku því.
Þessir luku prófinu: norsku tvíburabræðurnir Arvid Johan
Knutsen f. 1925, d. 1959 og Olav Thorvald Knudsen, f. 1925, d.
2009, stúdentar í Noregi 1944. Baldur Jónsson f. 1923, stúdent frá
MA 1944, Einar Eiríksson f. 1923, stúdent frá MA 1944, Guðjón
Guðnason f. 1923, d. 1998, stúdent frá MR 1944, Kjartan Ólafsson
f. 1919, d. 1973, stúdent frá MR 1942, Magnús H. Ágústsson f. 1924,
stúdent frá MR 1946, Páll Sigurðsson f. 1925, stúdent frá MR 1946.
Eins og fram kemur vorum við Magnús samstúdentar og lukum
náminu á 5 ári.
Það var engin hátíðleg útskrift. Júlíus Sigurjónsson var forseti
læknadeildar. Hann bauð okkur heim á heimili sitt 31. janúar upp
á kaffi og meðlæti og lét okkur undirrita læknaeiðinn. Eftir boð
Júlíusar höfðum við pantað myndatöku hjá Lofti ljósmyndara og
því er til mynd af okkur saman.
Við höfum aldrei allir hist eftir þessa útskrift. Fjórir störfuðu
erlendis mest af starfsævinni, Olaf, Arvid og Einar á Norðurlöndum
en Magnús í Bandaríkjunum.
LÆKNAblaðið 2012/98 491