Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2012, Page 26

Læknablaðið - 15.09.2012, Page 26
RANNSÓKN Efniviður og aðferðir Um var að ræða afturskyggna rannsókn á notkun ígræddra taktnema á Landspítala frá 2001 til 2012. Gögnum þessara sjúklinga er haldið til haga á göngudeild gangráða og bjargráða. Þeir komu að jafnaði til eftirlits þar á eins til tveggja mánaða fresti eftir að taktneminn hafði verið settur inn og þar til hann var fjarlægður. í hverri heimsókn var lesið af minni tækjanna og hjartalínurit þeirra frávika sem höfðu verið geymd í minni tækisins voru skoðuð. Kannaðar voru ábendingar fyrir ígræddum taktnema í hverju tilfelli fyrir sig og til hvaða niðurstöðu eða ákvörðunar þessi vöktun á hjartslættinum leiddi. Allir ígræddir taktnemar sem notaðir voru á þessu tímabili voru af tegundinni Reveal frá Medtronic og var komið fyrir undir húð framan á bringu í staðdeyfingu. í hverju tilfelli var sérstaklega forritað hvaða frávik ætti að geyma í minni tækisins. Sem dæmi um algeng frávik voru eyður í hjartslætti yfir þrjár sekúndur, tilvikhægatakts undir 40 slög á mínútu og hraðtaktur yfir 150 slög á mínútu. í öllum tilfellum fengu sjúklingar sérstaka fjarstýringu sem þeir gátu notað til að virkja geymslu upplýsinga í minni taktnemans svo þeir gætu virkjað minnið kæmu einkenni fram. Var þetta gert þar sem geymsluminnið virkjaðist ekki sjálfkrafa ef einkenni voru ekki vegna hjartsláttarfrávika og því var hægt að útiloka hjartsláttarfrávik sem ástæðu einkenna ef engar takttruflanir sáust á einkennatímum. Hægt er að forrita hversu lengi hjartarit voru geymd ef sjúklingurinn virkjaði geymslu- minni með fjarstýringunni. Lýsandi tölfræði var notuð við greiningu gagnanna, við skoðun á megindlegum breytum eins og aldri var reiknað meðaltal og staðalfrávik en fyrir eigindlegar breytur var reiknað magn og prósenta. Persónuvernd og Vísindasiðanefnd Landspftala veittu leyfi til þessarar könnunar. Niðurstöður Á rannsóknartímabilinu fengu 18 einstaklingar fgræddan takt- nema á Landspítala. Fimm þeirra hafa tækið enn og þar af leið- andi er vöktun hjartatakts hjá þeim ekki lokið. Sú leið hefur verið farin á Landspítala að takmarka notkun tækjanna við þá sem þegar hafa verið skoðaðir með ítarlegum rannsóknum en skýring á einkennum ekki fundist. Því var um að ræða mjög valinn hóp sjúklinga sem fékk ígræddan taktnema. Af þeim 13 sjúklingum þar sem notkun tækjanna var lokið voru 6 (46%) karlmenn og 7 (54%) konur og var meðalaldur 65±20 ára, sá yngsti var 31 árs og elsti sjúklingurinn 90 ára. í langflestum tilfellum, eða 11 (85%), var óútskýrt yfirlið ábending fyrir taktnemanum, í hinum tveimur (15%) tilfellum voru óútskýrð hjartsláttaróþægindi ábendingin. Mjög mismunandi var hvað taktneminn var hafður lengi inni, en í velflestum tilfellum var hann fjarlægður eftir að skýring á einkennunum fannst. Að meðaltali voru þessir 13 einstaklingar með tækið í 20±13 mánuði, styst í tvo mánuði og lengst í 41 mánuð. Hjá fjórum sjúklingum (31%) fannst merki um sjúkan sinushnút (mynd 2), hjá þremur fannst ofansleglahraðtaktur (23%) og í einu tifelli (8%) sleglahraðtaktur. Vissulega getur verið vandasamt að greina sleglahraðtakt með einungis einnar leiðslu riti en hins vegar var um að ræða einstakling með endurtekin yfirlið og f-i-ÍTÁ,yi jyTÍSBig?: — 4. J f ‘ L 1 1 1 , 1 1 l , } 1 1 1 4, 1 4 1 4 »4,4111» 11 (H7i 1 1 1 1 ulX 1 L- X—Ú-L-4 - -4- i — 1—1—4 l. Mynd 2. Útprentun hjartalínurits úr (græddum taktnema. Myndin sýnir langa eyðu (hjartslætti hjd sjúklingi með endurtekin yfirlið. Hann var meðhöndlaður með gangrdð með góðum rírangri. hraðtakt með gleiðum QRS-samstæðum á sama tíma og yfirlið. Sleglahraðtaktur þótti því líklegasta greiningin. Hjá þremur (23%) komu fram dæmigerð einkenni án þess að takttruflun greindist á sama tíma og var því mögulegt að útiloka slíkt sem orsök einkenna. Tveir (15%) fengu engin einkenni á meðan þeir voru með taktnemann. Af þeim 5 sem hafa ígræddan taktnema og eru enn vaktaðir, var ábendingin yfirlið hjá þremur og hjá tveimur sjúklingum er tækið notað til að fylgjast með árangri meðferðar á hjart- sláttartruflunum. Ekki voru beinir fylgikvillar af meðferðinni. Einn sjúklingur fékk þó húðsýkingu umhverfis tækið eftir sjóböð erlendis nokkr- um mánuðum eftir ísetningu. Umræða Niðurstöður þessarar könnunar á ávinningi notkunar ígræddra taktnema hérlendis sýna að í velflestum tilfellum skilaði vöktun hjartsláttar niðurstöðu sem fól í sér ýmist greiningu eða útilokun á takttruflunum sem orsök einkenna sjúklings. Enda þótt aðeins sé um að ræða tiltölulega fá tilfelli styðja þessar niðurstöður þá nálgun að nota ígrædda taktnema í völdum tilfellum þar sem erfitt hefur reynst að greina orsök yfirliða eða hjartsláttaóþæginda með einfaldari rannsóknaraðferðum. Sem fyrr segir geta rannsóknir á orsökum einkenna eins og yfirliða og hjartsláttaróþæginda á köflum verið erfiðar, tímafrekar og kostnaðarsamar. Aðeins þarf einfalda skurðaðgerð í staðdeyfingu til að setja inn ígræddan taktnema og í nýjustu útgáfu tækisins er rafhlaða sem dugir í allt að 36 mánuði. Tækið tekur upp öll fyrirfram skilgreind frávik frá eðlilegum hjartslætti og einnig getur sjúklingur virkjað geymsluminni tækisins með sérstakri fjarstýringu. Það er mjög mikilvægt til að tryggja geymslu hjartalínurits á sama tíma og einkenni koma fram þannig að hægt sé að meta þau í samhengi. Það er mjög mikilvægt að geta tengt takttruflanir við einkenni því annars getur verið viss vafi um klíníska þýðingu þeirra. Á móti kemur að ígræddur taktnemi kostar um 400.000 krónur og er einnota, sem þýðir að ekki er hægt að endurnýta tæki fyrir annan sjúkling þó svo að það hafi sannað gagnsemi sína og nóg sé eftir af rafhlöðunni. Þetta er því talsvert dýrara úrræði en aðrar hefðbundnari leiðir til hjartsláttarsíritunar og er því mikilvægt að okkar mati að reynt sé að rannsaka sjúklinga með einfaldari aðferðum áður en farið er að huga að notkun ígrædds taktnema. 466 LÆKNAblaðiö 2012/98

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.