Læknablaðið - 15.09.2012, Side 46
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Skráning ábendingar á áritunarmiða lyfja
- upplýsandi öryggisatriði sem ekki skilar sér
■ ■ ■ Erla Hlin Henrysdóttir' lyfjafræðingur, Anna Ingibjörg Gunnarsdóttir12 lyfjafræðingur, Ástráður B. Hreiðarsson3 læknir
'Lyfjafræðideild Háskóla íslands, 2Sjúkrahúsapótek Landspítala, 'göngudeild sykursjúkra Landspítala.
Samkvæmt 23. grein reglugerðar nr.
111/2001 um gerð lyfseðla og ávísun
lyfja skal útgefandi lyfseðils tilgreina
á lyfseðli hvernig, hvenær og við
hverju nota á ávísað lyf á þann hátt
að auðskilið sé fyrir notanda þess. í
undantekningartilvikum má læknir
sleppa að geta við hverju lyf er notað,
telji hann það þjóna hagsmunum
sjúklings.'
Rannsóknir hafa sýnt að þekking á
eigin heilsufari og lyfjanotkun eykur
meðferðarheldni og um leið árangur
meðferðar.2-’ Eitt af því sem getur stuðlað
að aukinni þekkingu sjúklinga er skráning
ábendingar fyrir meðferð á áritunarmiða
Iyfseðilsskyldra lyfja. Mikilvægi þessa
er augljóst á tímum þar sem oft er skipt
um sérlyf í samræmi við hagstæðasta
verðið hverju sinni. Beinast liggur við að
skrá þessar upplýsingar í reitinn „lyf er
notað við" á lyfseðlinum en samkvæmt
kynningu velferðarráðuneytisins 2001 á
nýrri gerð lyfseðla er reiturinn ætlaður
læknum til að skrifa við hverju lyfið er
notað til hægðarauka fyrir sjúklinga.4 Þrátt
fyrir það skila þessar upplýsingar sér því
miður sjaldnast til sjúklinga á rafrænum
lyfseðlum þar sem þær færast ekki sjálf-
krafa á áritunarmiðann við afgreiðslu
lyfseðilsins.
Á mynd 1 má sjá viðmót það sem
Iæknir sér á rafrænum lyfseðli. Líkur eru
á því að læknar riti ábendinguna í reitinn
„lyf er notað við" í þeirri góðu trú að
þær upplýsingar skili sér til sjúklingsins.
Ef þessar upplýsingar eiga örugglega að
skila sér þarf læknir að skrá þær í reitinn
„notkunarleiðbeiningar".
Á mynd 2 sést sami lyfseðill útprent-
aður í apóteki. Eins og sést á myndinni
koma ekki fram þær upplýsingar sem
skráðar eru í „athugasemdir" og eru
þær aldrei sýnilegar lyfjafræðingum
við afgreiðslu Iyfseðla sem einnig er
bagalegt því fyrir kemur að læknar skrái
þar athugasemdir ætlaðar lyfjabúðum.
Upplýsingarnar um við hverju lyfið er
koma fram, en því miður nýtist það ekki
sjúklingnum nema hann fái útprentaðan
lyfseðil, sem er sjaldnast.
Mynd 3 er af áritunarmiða lyfjabúðar
fyrir sama lyfseðil. Áritunarmiðinn
prentaðist út þegar rafræni lyfseðillinn
á mynd 1 var afgreiddur. Eingöngu
upplýsingar sem ritaðar eru í reitinn
„notkunarleiðbeiningar" færast sjálfkrafa
á áritunarmiðann af rafrænum lyfseðli.
Eins og sjá má kemur ekki fram við
hverju læknirinn segir lyfið eiga að vera,
en það er aðeins mögulegt ef starfsfólk
lyfjabúða handfærir þær upplýsingar á
áritunarmiðann.
Það að jafn mikilvægar upplýsingar og
tilgangur lyfjameðferðar skili sér ekki til
sjúklinga er áhyggjuefni, ekki síst þar sem
fjöldi rafrænna lyfseðla eykst. Samkvæmt
upplýsingum frá Sjúkratryggingum
Islands er hlutfall rafrænna lyfseðla nú
komið yfir 50%.5 Og ef svo fer sem horfir
má búast við að rafrænir lyfseðlar taki svo
til alveg við af pappírslyfseðlum.
En hvað vilja sjúklingar?
í hérlendri rannsókn sem gerð var
2012 voru 300 manns meðal annars
spurðir hvort þeir vildu hafa tilgang
lyfjameðferðar skráðan á áritunarmiða
lyfseðilsskyldra lyfja.6 Niðurstöður
rannsóknarinnar sýndu að langflestir, eða
78% þátttakenda, vildu að tilgangurinn
væri skráður á miðann, 7% var sama og
15% vildu það ekki. Þegar þátttakendur
sem tóku afstöðu með skráningu tilgangs
á áritunarmiða voru spurðir hvers
vegna þeir vildu það voru algengustu
ástæðurnar sem gefnar voru: til að fá
meiri upplýsingar og til að ruglast ekki á
lyfjum. Algengustu ástæður þeirra sem
tóku afstöðu á móti skráningu á tilgangi
lyfjameðferðar á áritunarmiða voru: fylgist
vel með og veit sjálf/-ur við hverju lyfin
eru og fæ betri útskýringar annars staðar
(hjá heilbrigðisstarfsmanni/í fylgiseðli/ á
Lyfseðill
Innklftla og efnasklptalakningaf |
I Pef sónuupplýsingaf
Lyflaávisanir +H F
#1 Lytiafwn Ibufen JíJ u* M01AE01
nR StyTkur 600 mg Form [Lbgn pr gakknjMigrv«nng|Ar tóflur I 30|stk >að magn I Ffðkti pakkn 30 1
T« IVb Sk / Há ISiðd«gi |K«ðld Sfcammtur irimabi |Byr)aaðtaka lEnðmg |R«ikn stk ðJládag 04 06 2012 | 15|(7
1 tafla að morgni, 1 afl kvöldi
Afgrwðut Mnu sártnil FK*i afgmðiku IA d«g« frasti I Enmunankyl I H«Marv«rð E\[ C 1.526 kr 1 t*jm«r ««ði«
Wwgmfnd Bólguevðandiverkjalyf
lyt tr noiað »ið Slœmrl vðflvabólgu A
I Pónnúin«r IRSnS
Alnmmaf upplýilnQaf
WOngartorm lyti«ðd« C tyjkfcngi r Stntei faU r Rafutrt í apó(«fc <• Rafram á k«maoáj r Smi«ndi» Oddrfri 04 06 2012 =t Forgang*
Oddrtf 03 06.2013 H««m*itang (• V*ryJ«gur
|7 Afgreltt Póítnúnw jstaður r liggur «kki á
Undirskfin
0212 |ÁstráflurHrelðarsson IStarfthMI Yflrlœknir UfyHaf ÁH J
Landspltall, Fossvogl, 543-1000
Mynd 1. Rafrænn lyfseðill eins og læknirinn sér hann.
Rafrænn lyfseöill Raönúmer 4952307
Mynd 2. Útprentaðfortn afrafræna lyfseðlinum á
mynd 1. Auðkenni apóteksins hafa verið afmáð af tnynd
2og3.
10555188 N01 11 65 95
ERLR HLIN HENRYSDÓTTIR
1 tafla að morgni
1 að kvöldi
Pk 1/1 04.07.2012 0212 6
Mynd 3. Áritunarmiði lyfjabúðar sem fer á innstu
umbúðir lyfs sem sjúklingi er ætlað. Hér nut sjá allar þær
upplýsingar sem færast sjálfkrafa af lyfseðlinum á mynd
i og 2 á áritunarmiða lyfjabúðar.
486 LÆKNAblaðið 2012/98