Læknablaðið - 15.09.2012, Side 50
UMFJÖLLUN O G GREINAR
Tvær nýjar vefsíður um krabbamein
I vor og sumar hafa tvær nýjar vefsíður
um krabbamein litið dagsins ljós. Ljóst
er að þeir sem búa yfir þekkingu og
reynslu af meðferð krabbameina eru
vel meðvitaðir um mikilvægi þess að
miðla gagnlegum fróðleik. Ennfremur að
nýta til þess þá miðla sem tiltækir eru, í
þessu tilviki netið sem þorri þjóðarinnar
notar nú sem fyrsta kost þegar leita þarf
upplýsinga.
Önnur þessara síðna er helguð
umfjöllun um brjóstakrabbamein og
er einkum ætlað að veita upplýsingar
um skurðmeðferð brjóstakrabbameina.
Síðunni er haldið úti af teymi
skurðlækninga brjóstakrabbameina á
Landspítala. Slóð síðunnar er
skurdlaekningarbrjostakrabbameina.is/
Um tilgang vefsins segir á forsíðunni:
„Á þessum síðum eru upplýsingar
fyrir sjúklinga sem hafa greinst með
brjóstakrabbamein og aðstandendur
þeirra. Þeim er ætlað að vera viðbót við
þær upplýsingar sem veittar eru í viðtölum
við lækna og hjúkrunarfræðinga." Það
vakti nokkra athygli í fjölmiðlum er síðan
var opnuð að meðal þess fjármagns sem
fékkst til að setja hana á laggir var ágóði
af gjörningi Gíslínu Daggar Bjarkadóttur.
Gjörningurinn fólst í því að bjóða upp 365
kjóla sem hún hafði safnað fyrir hvern dag
ársins, og raunar nokkra í viðbót. Vefsíðan
nýtur einnig styrks úr minningarsjóði um
Margréti Oddsdóttur skurðlækni sem lést
langt um aldur fram í ársbyrjun 2009.
Hin síðan er helguð lungnakrabba-
meinum og er á slóðinni lungnakrabbamein.
is/ Hún af svipuðum rótum runnin en
á síðunni segir meðal annars: „Á Land-
spítala hefur verið starfandi hópur lækna
sem hefur sérhæft sig í greiningu og
meðferð Iungnakrabbameins. Þessi hópur
hefur á síðustu árum staðið að útgáfu
bæklinga um lungnakrabbamein fyrir
sjúklinga og aðstandendur auk bóka og
vísindagreina fyrir heilbrigðisstarfsfólk.
Mikilvægt skref í þessu fræðslustarfi
er heimasíðan lungnakrabbamein.is, en
hún hefur verið í undirbúningi sl. hálft
ár. Þar geta sjúklingar og aðstandendur
fundið fræðsluefni sem tengist greiningu
LUNGNAKRABBAMEIN.IS fiettk Umokkur Innstoaning
Sjúklingar og adstandendur Heilbrigðisstarfsfólk Nemar
sjúkdómsins og meðferð, ásamt fróðleik
um t.d. reykingavarnir og óhefðbundnar
meðferðir." Heimasíðan hefur notið
styrkja úr ýmsum áttum og var unnin í
nánu samstarfi við samtök sjúklinga og
aðstandenda þeirra.
Báðar síðurnar eiga það sammerkt
að hafa góðar tengingar yfir á aðrar
vefsíður, innlendar og erlendar sem fjalla
Skjáskot afheimasíðunum sem getið er um ígreininni. Á
síðunni hér að ofan erfjallað um lungnakrabbamein en á
þeirri minni er brjóstakrabbamein til umfjöllunar.
um svipað efni og miðla fræðsluefni,
svo sem bæklingum og spurningum
og svörum sjúklinga og aðstandenda.
Þeirra á meðal er einmitt síða og
fræðsluefni í bókarformi sem út kom
á vegum krabbameinsskrárinnar, en
um þessa bók er fjallað í þessu blaði.
Á vefsíðunni um brjóstakrabbamein er
sjónum einkum beint að sjúklingunum
sjálfum, fjölskyldum þeirra og vinum.
Hin síðan beinir sínu efni jafnt til
sjúklinga og aðstandenda þeirra
sem og heilbrigðisstarfsfólks. Báðar
síðurnar eru gagnleg viðbót efnis fyrir
allt heilbrigðisstarfsfólk sem sinnir
krabbameinssjúklingum. Það á ekki síst
við um heimilislækna sem oftast þekkja
sjúklinga sína hvað best og eru líklegir til
að vera þeir fyrstu sem leitað er til og það
eru þeir sem koma sjúklingunum áfram til
sérfræðinga og í rétta meðferð.
490 LÆKNAblaðið 2012/98