Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.09.2012, Page 59

Læknablaðið - 15.09.2012, Page 59
Xolair, 150 mg, stungulyf, lausn. Novartis Europharm Limited. ATC flokkur: R 03 D X 05. SAMANTEKT Á EIGINLEIKUM LYFS - Styttur texti SPC. Innihaldslýsing: Hver áfyllt sprauta meö 1 ml af lausn inniheldur 150 mg af omalizumabi (omalizumab er einstofna mannaaölagað mótefni, framleitt meö raðbrigða erfðatækni í eggjastokkafrumulínu úr kínahömstrum). Ábendingar: Xolair er ætlaö fullorðnum, unglingum og bömum (6 til <12 ára). Einungis skal íhuga meðferö með Xolair handa sjúklingum með sannfærandi IgE (immunoglobulin E) miðlaðan astma. Fullorðnir op unplincar (12 ára og eldri): Xolair er ætlað til viðbótarmeðferðar til að bæta stjómun á astma hjá sjúklingum með alvarlegan, þrálátan ofnæmisastma og jákvætt húðprófeða in vitro svömn fyrir ofnæmisvökum í andrúmsloffi, sem ekki em árstíðabundnir, og skerta lungnastarfsemi (FEVi <80%) og fá þar að auki einkenni off að degi til eða vakna upp á nóttunni og hafa oft fengið alvarlega, skjalfesta versnun astma þrátt fyrir stóra, daglega skammta af barksterum til innöndunar og langverkandi beta2-örva til innöndunar. Böm (6 til <12 ára): Xolair cr ætlað til viðbótarmeðferðar til að bæta stjómun á astma hjá sjúklingum með alvarlegan, þrálátan ofnæmisastma og jákvætt húðpróf eða in vitro svömn fyrir ofnæmisvökum í andrúmslofti, sem ckki em árstíðabundnir, og fá einkenni ofl að degi til eða vakna upp á nóttunni og hafa oft fcngið alvarlega, skjalfesta versnun astma þrátt fyrir stóra, daglega skammta af barkstemm til innöndunar og langverkandi beta2-örva til innöndunar. Skammtar og lyfjagjöf: Einungis læknar með reynslu afgreiningu og meðferð við alvarlegum, þrálátum astma eiga að hefja meðferð með Xolair. Skammtar: Viðeigandi skammtur og tíðni gjafa Xolair ræðst af upphafsgildi IgE (a.e./ml) sem mælt er áður en meðferð hefst og af líkamsþyngd (kg). Áður en fyrsti skammtur er gefrnn á að mæla IgE þéttni hjá sérhverjum sjúklingi, með hvaða aðferð sem völ er á til mælingar á heildarþéttni IgE í sermi, til ákvörðunar skammts. Á grundvelli þessara mælinga má vera að gefa þurfi Xolair 75 til 600 mg með 1 til 4 inndælingum hverju sinni. Ólíklegra var að sjúklingar með lægri þéttni IgE en 76 a.e./ml hefðu ávinning af meðferðinni. Læknar sem ávísa lyfinu skulu ganga úr skugga um að sjúklingar, bæði fullorðnir og unglingar, með IgE undir 76 a.e./ml og böm (6 til < 12 ára) með IgE undir 200 a.e./ml, hafi án nokkurs vafa in vitro svörun (RAST) við ofnæmisvökum sem ekki eru árstíðabundnir. Ekki má nota Xolair handa sjúklingum sem eru með IgE gildi eða líkamsþyngd í kg utan marka skammtatöflunnar. Stærsti ráðlagður skammtur omalizumabs er 600 mg á tveggja vikna fresti. Meðferðarlengd, eftirlit og skammtabreytingar: Xolair er ætlað til langtímameðferöar. í klínískum rannsóknum hefur verið sýnt fram á að verkun Xolair kemur ekki í Ijós fyrr en eftir að minnsta kosti 12-16 vikur. Læknir sjúklingsins á að meta árangur meðferðar 16 vikum eflir að meðferð með Xolair hefst, áður en notkun lyfsins er haldið áfram. Ákvörðun um áframhaldandi notkun Xolair, eftir að 16 vikna tímabilinu lýkur eða við eflirlit síðar, á að grundvallast á því hvort náðst hcfur umtalsverður ávinningur varðandi heildarstjóm á astmanum. Stöðvun meðferðar með Xolair hefur yflrleitt í for með sér að þéttni óbundins IgE hækkar að nýju og einkennin sem þvi fylgja koma aftur fram. Heildarþéttni IgE hækkar meðan á meðferð stendur og helst aukin i allt að eitt ár eftir að meðferð er hætt. Því er ekki unnt að nota endurteknar mælingar á þéttni IgE meðan á meðferð með Xolair stendur, til leiðbeiningar við ákvörðun skammta. Ákvörðun skammta eftir meðferðarrof sem hefur varað skemur en eitt ár skal grundvallast á sermisþéttni IgE cins og hún var þegar fyrsti skammtur lyfsins var ákvarðaður. Mæla má heildarþéttni IgE í sermi að nýju, til ákvörðunar á skammti, hafi hlé á mcðferð með Xolair varað í eitt ár eða lengur. Aðlaga skal skammta í samræmi við umtalsverðar breytingar á líkamsþyngd. Sérstakir siúklincahópar: Aldraðir (65 ára og eldri): Takmarkaðar upplýsingar lig&ja fyrir um notkun Xolair handa sjúklingum eldri en 65 ára en engar vísbendingar eru um að aldraðir sjúklingar þurfi aðra skammta en yngri sjúklingar sem komnir eru af unglingsárum. Skert nýrna- eða lifrarstarfsemi: Engar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum skertrar nýrna- eða lifrarstarfsemi á lyfjahvörf Xolair. Þar sem úthreinsun omalizumabs við klíníska skammta byggist fyrst og fremst á átfrumnakerfinu (RES) er ólíklegt að skert nýrna- eða lifrarstarfsemi hafi áhrif þar á. Þrátt fyrir að engar sérstakar breytingar á skömmtum séu ráðlagðar hjá þessum sjúklingum, skal gæta varúðar við notkun Xolair. Börn: Ekki hefur verið sýnt fram á öryggi og verkun Xolair hjá bömum yngri en 6 ára. Engar upplýsingar liggja fyrir. Lvfiagiöf: Aðeins til notkunar undir húð. Hvorki má gefa lyfið í bláæð né í vöðva. Gefa skal lyfið með inndælingu undir húð á upphandlegg. Einnig má gefa lyfið mcð inndælingu undir húð á læri ef af einhverjum ástæðum er ekki unnt að gefa það undir húð á upphandlegg. Takmörkuð reynsla er af sjálfsmeðhöndlun sjúklinga með Xolair. Því er ætlast til að einungis heilbrigðisstarfsfólk annist lyfjagjöfina. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna. Sérstök varnaðarorð og varúðarrcglur við notkun: Almenn varnaðarorð op varúðarreplur: Xolair er hvorki ætlað til meðferðar við bráðri versnun astma, bráðum berkjukrömpum né astmafári (status asthmaticus). Notkun Xolair hefur hvorki verið rannsökuð hjá sjúklingum með heilkenni E-ónæmisglóbúlínaukningar, ofnæmisberkju- og lungnaýrumyglu (allergic bronchopulmonary aspergillosis) né til að koma í veg fyrir bráðaofnæmisviðbrögð, þ.m.t. þau sem verða vegna fæðuofnæmis, ofnæmishúðbólgu eða ofnæmisnefbólgu. Xolair er ekki ætlað til meðferðar við þessum sjúkdómum. Meðferð með Xolair hcfur ekki verið rannsökuð hjá sjúklingum mcð sjálfsónæmissjúkdóma, ónæmisfléttumiðlað ástand cða skerta nýma- eða lifrarstarfsemi. Gæta skal varúðar þegar Xolair er ávísað þessum sjúklingahópum. Ekki er mælt með því að notkun barkstera til almennrar (systemic) notkunar eða til innöndunar sé hætt skyndilega þegar meðferð með Xolair hefst. Skammtaminnkun barkstera á að vera undir beinu eftirliti læknis og vera má að draga þurfi smám saman úr skömmtunum. Ónæmissiúkdómar: Ofnœmisviðbrögð gerð I: Staðbundið eða útbreitt ofnæmi af gerð I, þ.m.t. bráðaofnæmi og ofnæmislost gctur komið fram þegar omalizumab er notað, einnig eftir að meðferð hefur staðið í langan tíma. Flest þessara viðbragða komu fram innan 2 klst. cftir fyrstu eða síðari inndælingar Xolair cn í sumum tilvikum liðu meira en 2 klst. og jafnvcl meira en 24 klst. frá inndælingu þar til þau komu fram. Því skal alltaf hafa við höndina lyf til meðferðar við bráðaofnæmi, sem hægt er að grípa tafarlaust til í kjölfar notkunar Xolair. Upplýsa skal sjúklinga um að slík viðbrögð geti átt sér stað og að tafarlaust skuli leita til læknis ef ofnæmi kemur fram. í klínískum rannsóknum var bráðaofnæmi mjög sjaldgæft. Mótefni gegn omalizumabi hafa greinst hjá fáeinum sjúklingum í klínískum rannsóknum. Klínískt mikilvægi móteftia gegn Xolair er ekki Ijóst. Sermissótt: Greint hefur verið frá sermissótt og sermissóttar-líkum viðbrögðum, sem eru seinkuð ofnæmisviðbrögð af gerð III, hjá sjúklingum á meðferð með einstofha mannaaðlöguðu mótefni þar með talið omalizumabi. Talið er að lífeðlismeinafræðilegur verkunarháttur þessa felist í myndun ónæmisflétta og útfellingu þeirra vegna myndunar mótefha gegn omalizumabi. Þetta kemur yfirleitt fram 1-5 sólarhringum eftir að fyrsta eða síðari inndælingar eru gefnar, einnig eftir að meðferð hefur staðið lengi. Einkenni sem benda til sermissóttar eru liðbólga/liðverkir, útbrot (ofsakláði eða önnur mynd), hiti og eitlastækkun. Vera má að andhistamín og barksterar geti verið gagnleg til að koma í veg fyrir, eða meðhöndla þennan sjúkdóm og ráðleggja skal sjúklingum að greina frá öllum hugsanlegum einkennum. Cburg-Strauss heilkenni og rauðkyrningagersheilkenni (hypereosinophilic syndrome): Sjúklingar með alvarlegan astma geta í mjög sjaldgæfum tilvikum verið með almennt rauðkyrningagersheilkenni eða Churg-Strauss heilkenni (allergic eosinophilic granulomatous vasculitis), en hvort tveggja er yfirleitt meðhöndlað með almennri (systemic) barksterameðferð. I mjög sjaldgæfum tilvikum geta sjúklingar í meðferð með astmalyQum, þar með talið omalizumabi, verið með eða fengið almennt rauðkymingager og æðabólgu. Þessi tilvik eru oft í tengslum við minnkun skammta í meðferð með barksterum til inntöku. Læknar ættu að vera á verði gagnvart þróun á merkjanlegu rauðkyrningageri, útbrotum vegna æðabólgu, versnun á einkennum frá lungum, kvillum í afholum nefs (paranasal sinus), hjartakvilla og/eða taugakvilla hjá þessum sjúklingum. íhuga skal að hætta meðferð með omalizumabi í öllum alvarlegum tilvikum af ofangreindum ónæmissjúkdómum. Illkynja siúkdómar: í klínískum rannsóknum hjá fullorðnum og unglingum 12 ára og eldri, var tölulegt ójafnvægi varðandi krabbamein sem komu fram hjá hópnum sem fékk meðferð með Xolair (0,5%; 25 krabbameinstilvik hjá 5.015 sjúklingum), samanborið við viðmiðunarhópinn (0,18%; 5 krabbameinstilvik hjá 2.854 sjúklingum). Iilkynja sjúkdómar voru sjaldgæfir (<1/100), bæði hjá hópnum sem fékk lyfið og hjá viðmiðunarhópnum. Fjölbreytileiki krabbameinanna, tiltölulega skammvinn útsetning fyrir lyfinu og klínísk mynd hvers tilviks fyrir sig bendir til þess að orsakatengsl séu ólíkleg. Heildartíðni illkynja sjúkdóma sem sáust í klínískum rannsóknum á Xolair var sambærileg við það sem greint er frá hjá almenningi. Svkingar af völdum sníkjudvra (ormark Vera má að IgE eigi hlut að máli við ónæmissvörun gegn sumum ormasýkingum. Hjá sjúklingum í langvarandi og mikilli hættu á ormasýkingu sýndi klínísk samanburðarrannsókn með lyfleysu lítið eitt aukna tíðni sýkinga þegar omalizumab var notað, enda þótt engar breytingar yrðu á framgangi sjúkdómsins, alvarleika hans og svörun við meðferð viö sýkingunni. Þegar litið er til allra klínísku rannsóknanna, en þær voru ekki hannaðar til að greina ormasýkingar, var tíðni ormasýkingar innan við 1 af hverjum 1.000 sjúklingum. Hins vegar kann að vera rétt að gæta varúðar hjá sjúklingum sem eru í mikilli hættu á að fá ormasýkingu, einkum þegar ferðast er til svæða þar sem ormasýkingar eru landlægar. Svari sjúklingur ekki ráðlagðri ormalyfjameðferð skal íhuga að hætta notkun Xolair. Milliverkanir við önnur lyf og aörar milliverkanir: Cytochrom P450 ensím, útflæðispumpur og próteinbindandi ferli koma ekki að úthreinsun omalizumabs. Því er lítil hætta á milliverkunum við önnur lyf. Ekki hafa farið fram rannsóknir á milliverkunum Xolair við lyf eða bóluefni. Engin lyQafræðileg ástæða er til að ætla að lyf sem algengt er að séu notuö við astma muni milliverka við omalizumab. í klínískum rannsóknum var algengt að Xolair væri notað samhliða barksterum til innöndunar og inntöku, skammvirkum og langvirkum beta-örvum til innöndunar, lyfjum sem hafa áhrif á leukotrien, teofyllin lyfjum og andhistaminum til inntöku. Ekkert benti til að þessi algengu astmalyf hefðu áhrif á öryggi Xolair. Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um notkun Xolair samhliða sértækri afnæmingarmeðferð („hypo- sensitisation44 meðferð). í klínískri rannsókn þar sem Xolair var gefið samhliða afnæmingarmeðferð reyndist öryggi og verkun Xolair samhliða sértækri afnæmingarmeðferð vera það sama og þegar Xolair er gefið eitt sér. Xolair getur óbeint dregið úr verkun lyQa til meðferðar við sýkingum af völdum orma eða annarra sníkjudýra. Frjósemi, meðganga og brjóstagjöf: Meðganga: Ekki liggja fyrir neinar fullnægjandi upplýsingar um notkun omalizumabs á meðgöngu. Dýrarannsóknir benda hvorki til beinna né óbeinna skaðlegra áhrifa á meðgöngu, fósturvísis-/fósturþroska, fæðingu eða þroska eftir fæðingu. Omalizumab fer yfir fylgju og hugsanleg skaðleg áhrif á fóstur eru óþekkt. Omalizumab hefur verið tengt aldursháðri fækkun blóðflagna hjá öpum af ættbálki prímata og eru ung dýr hlutfallslega næmari fyrir þessu. Xolair ætti ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Brióstagiöf: Ekki er þekkt hvort omalizumab skilst út í brjóstamjólk. Omalizumab skilst út í mjólk apa af ættbálki prímata og ekki er unnt að útiloka hættu fyrir brjóstmylking. Konur eiga ekki að hafa barn á brjósti á meðan þær eru í meðferö með Xolair. Frjósemi: Engar upplýsingar liggja fyrir um áhrif omalizumabs á frjósemi hjá mönnum. I sérhönnuðum forklínískum rannsóknum á frjósemi, þ.m.t rannsóknum á mökun, hefur ekki komið fram skerðing á frjósemi kven- eða karldýra eftir endurtekna allt að 75 mg/kg skammta af omalizumabi. Ennfremur sáust engar eiturverkanir á crfðacfni í öðrum forklínískum rannsóknum á citurvcrkunum á erfðaefni. Áhríf á haTni til aksturs og notkunar véla: Xolair hefur engin eða óveruleg áhrif á hæfni til aksturs cða notkunar véla. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir sem greint var frá í klínískum rannsóknum hjá fullorðnum og unglingum 12 ára og eldri, voru áhrif á stungustað, þ.m.t. sársauki, þroti, roði og kláði á stungustað, sem og höfuðverkur. Algengustu aukaverkanir sem greint var frá í klínískum rannsóknum hjá bömum á aldrinum 6 til <12 ára, og grunur var um að tengdust lyfinu, voru höfuðverkur, hiti og kviðvcrkir í efri hluta kviðar. Aukaverkanirnar voru yfirleitt vægar eða í meðallagi alvarlegar. Svkingar af völdum svkla op sníkiudvra: Sjaldgafar: Hálsbólga. Mjög sjaldgcefar: Sýking af völdum sníkla. Blóð og eitlar: Tiðni ekki þekkt: Sjálfvakin alvarleg blóðflagnafæð. Onæmiskerfi: Mjög sjaldgafar: Bráðaofnæmisviðbrögð, annað alvarlegt ofnæmisástand, myndun mótefria sem vinna gegn meðferðinni (anti-therapeutic antibodies). Tíðni ekki þekkt: Sermissótt, getur falið í sér hita og citlastækkanir. Taugakerfi: Algengar: Höfuðverkur (mjög algengt hjá bömum á aldrinum 6 til <12ára). Sjaldgœfar: Yfirlið, náladofi, syQa, sundl. Æðar: Sjaldgœfar: Stöðubundinn lágþrýstingur, andlitsroði. öndunarfæri. briósthol og miðmæti: Sjaldgœfar: Ofnæmisberkjukrampar, hósti. Mjög sjaldgœfar: Barkakýlisbjúgur. Tiðni ekki þekkt: Ofnæmishnúðagersæðabólga (þ.e. Churg-Strauss heilkenni). Meltingarfæri: Algengar: Kviðverkir í efri hluta kviðar (hjá bömum á aldrinum 6 til <12 ára). Sjaldgœfar: Meltingartruflanir, niðurgangur, ógleði. Húð oc undirhúð: Sjaldgafar: Ljósnæmi, ofsakláði, útbrot, kláði. Mjög sjaldgœfar. Ofsabjúgur. Tiðni ekki þekkt: Hárlos. Stoðkerfi og stoðvefur: Tíðni ekki þekkt: Liðverkir, vöðvaverkir, liðbólga. Almennar aukaverkanir og aukaverkanir á íkomustað: Mjög algengar. Hiti (hjá bömum á aldrinum 6 til <12 ára). Algengar. Áhrif á stungustað svo sem þroti, roði, sársauki,kláði. Sjáldgœfar: Inflúensulíkur sjúkdómur, þroti á handleggjum, þyngdaraukning, þreyta. Illkvnia siúkdómar: Heildartiðni illkynja sjúkdóma sem sáust í klínískum rannsóknum á Xolair hjá fúllorðnum og unglingum 12 ára og eldri, var sambærileg við það sem greint er frá fyrir hið almenna þýði. Ekkert tilvik um illkynja sjúkdóm í tengslum við meðferð með omalizumabi koma fram í klinískum rannsóknum hjá bömum á aldrinum 6 til <12 ára. Eitt tilvik um illkynja sjúkdóm kom fram hjá viðmiðunarhópnum. Segarek í slagæðum: í klínískum samanburðarrannsóknum og yfirstandandi áhorfsrannsókn, kom fram tölulegt ójafnvægi hvað varðar fjölda tilvika segareks í slagæðum. Segarek í slagæðum tók til heilablóðfalls, tímabundinnar blóðrásartruflunar í heila, hjartadreps, hvikular hjartaangar og dauða vegna hjarta- og æðasjúkdóma (þar með talið dauða af óþekktum orsökum). Tíðni segareks í slagæðum hjá sjúklingum í klínísku samanburðarrannsóknunum var 6,29 hjá sjúklingum sem fengu Xolair (17/2.703 sjúklingaár) og 3,42 hjá sjúklingum í samanburðarhópi (6/1.755 sjúklingaár). í tölfræðilegri fjölþáttagreiningu, Cox líkani fyrir hlutfallslcga áhættu (Cox proportional hazard model), var Xolair ekki tengt við hættu á segareki í slagæðum (áhættuhlutfall 1,86; 95% öryggismörk 0,73-4,72). í áhorfsrannsókninni var hlutfall segareks í slagæðum 5,59 (79/14.140 sjúklingaár) hjá sjúklingum sem fengu Xolair og 3,71 (31/8.366 sjúklingaár) hjá sjúklingum í samanburðarhópi. í fjölbreytugreiningu þar sem leiðrétt er fyrir hættu á hjarta- og æðasjúkdómum við upphaf rannsóknar var Xolair ekki tengt hættu á segareki í slagæðum (áhættuhlutfall 1,11; 95% öryggismörk 0,70-1,76). Blóðflögur: í klínískum rannsóknum var fjöldi blóðflagna hjá nokkrum sjúklingum undir neðri mörkum eðlilegra gilda. í engu tilviki tengdust þessar breytingar blæðingum eða minnkuðum blóðrauða. Ekki hefur verið greint frá neinu mynstri þrálátrar fækkunar blóðflagna hjá mönnum (sjúklingum eldri cn 6 ára), líkt og sést hefur hjá öpum af ættbálki prímata þrátt fyrir að greint hafi verið frá einstökum tilvikum um sjálfvakna blóðflagnafæð eftir markaðssetningu lyfsins. Svkingar af völdum sníkla: Hjá sjúklingum í langvarandi og mikilli hættu á ormasýkingu sýndi klínísk samanburðarrannsókn með lyfleysu lítið eitt aukna tíðni sýkinga þegar omalizumab var notað, en þetta var ekki tölfræðilega marktækt. Engar breytingar urðu á framgangi sjúkdómsins, alvarleika hans og svörun við meðferð við sýkingunni. Ofskömmtun: Stærsti skammtur Xolair sem þolist hefur ekki verið ákvarðaður. Allt að 4.000 mg stakir skammtar hafa verið gefnir sjúklingum í bláæð án vísbendinga um skammtatakmarkandi eiturverkanir. Stærsti uppsafnaður skammtur sem gefinn hefur verið sjúklingum var 44.000 mg á 20 vikum og þessi skammtur hafði ekki í för með sér nein óæskileg bráð áhrif. Ef grunur er um ofskömmtun skal hafa eflirlit með sjúklingnum með tilliti til óeðlilegra einkenna. Leita skal læknisaðstoðar og viðeigandi meðferð hafin. Markaðsleyfishafi: Novartis Europharm Limited, Wimblehurst Road, Horsham, West Sussex, RH12 5 AB, Bretland. Umboðsaðili á íslandi: Vistor hf., Hörgatúni 2, 210 Garðabær.Sími: 535-7000. Textinn var síðast samþykktur 25. maí 2012. Ath. tcxtinn er styttur. Sjá nánar undir Lyfjaupplýsingar á vef Lyfjastofnunar: www.lyfjastofnun.is Pakkningastærð: 1 áf. spr. Afgreiöslutilhögun (afgrciðsluflokkun): Lyföseðilsskylt, sérfræðingsmerkt, sjúkrahúslyf. Verð (samþykkt hámarksverð i sept. 2012): 69.189 kr. Greiðsluþátttaka sjúkratrygginga: SÍ tekur ekki þátt í lyfjakostnaði LÆKNAblaöið 2012/98 499

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.