Fréttatíminn - 22.12.2014, Page 25
Bakgrunnur
Rögnu Jóns
Foreldrar Rögnu eru Jón Óttar Ragn-
arsson og Margrét Hrafnsdóttir. Jón
Óttar varð landsþekktur þegar hann
stofnaði Stöð 2 árið 1986 en hann
seldi sinn hlut í fyrirtækinu fjórum
árum síðar. Stuttu síðar yfirgaf Jón
Óttar landið til að halda á vit ævin-
týranna í Los Angeles með eiginkonu
sinni Margréti Hrafnsdóttur. Hjónin
hafa nú búið meira og minna í LA í
tuttugu ár þar sem þau starfa nú við
kvikmyndaframleiðslu en þau fluttu
heim í nokkur ár þegar Ragna, einka-
barn þeirra, var unglingur. Óttar og
Margrét hafa selt Herbalife á Íslandi
til fjölda ára og eiga nú hlut í fyrir-
tækinu úti en Margrét hefur sagt að
þau hefðu aldrei farið í kvikmynda-
gerð af þvílíkri stærðargráðu ef ekki
væri fyrir Herbalife því sterkur fjár-
hagslegur bakgrunnur sé nauðsyn-
legur til þess. Þau vinna nú að sjón-
varpsseríunni Dulda Ísland fyrir Stöð
2 auk þess að vinna að mynd í fullri
lengd um ævi Steins Steinars. Það er
saga sem stendur fjölskyldunni nærri
því faðir Jóns Óttars og afi Rögnu,
Einar Ragnar Jónsson (1904-1984)
eða Ragnar í Smára, var einn helsti
bakhjarl Steins Steinars.
Ragnar byrjaði ungur að vinna í
smjörlíkisgerðinni Smára og varð
síðan eigandi hennar. Hann var
mikill áhrifamaður í menningarlífi
borgarinnar, tíður gestur í Unuhúsi
og bakhjarl margra okkar þekktustu
listamanna Hann stofnaði bókaút-
gáfuna Helgafell sem var þekkt
fyrir að greiða höfundum betri laun
en tíðkaðist á þeim tíma en meðal
skálda hjá útgáfunni voru Steinn
Steinarr, Gunnar Gunnarsson, Þór-
bergur Þórðason, Davíð Stefánsson
og Halldór Laxness. Ragnar gaf Al-
þýðusambandi Íslands málverkasafn
sitt árið 1961 og lagði það grunninn
að Listasafni ASÍ. Gjöfin innihélt
meðal annars myndir eftir Kjarval,
Nínu Tryggvadóttur, Gunnlaug
Scheving og Ásgrím Jónsson.
það? Ég hrífst af fólki, sama hvort
það eru stelpur eða strákar. Það sem
skiptir mig mestu máli er manneskj-
an en ekki kynið. Ég passa bara ekki
inn í hefðbundnar kynjaskilgreining-
ar. Ég upplifi minn eigin sannleika,
lifi hann og tala fyrir hann.”
Ekki mín saga í sjónvarpinu
„Ég er náttúrulega utanveltu að
mörgu leyti, er með tvöfalt ríkis-
fang, er tvítyngd, margkynhneigð
og trans. Sagan sem ég sé í sjón-
varpinu er ekki mín saga. En svona
er það bara,” segir Ragna.
„Gamla hugsunin um transkonur
er að konan hafi fæðst í röngum lík-
ama, sem karlmaður, og þurfi þess
vegna að fara í aðgerð til að láta
laga sig. En ég hugsa ekkert endi-
lega þannig. Ég er með líkama og
þó ég sé kannski ekki fullkomlega
sátt við hann þá er ég alls ekkert
viss um að ég vilji breyta honum,
ég er ekkert endilega ósátt við lík-
amann sem ég fæddist í. Það er líka
hægt að vinna með það sem maður
hefur, það eru allskonar leiðir og ég
er bara ekki viss hvort kynleiðrétt-
ing sé rétta leiðin fyrir mig. Fyrir
utan að það er líka alls konar rugl
sem felst í því að þurfa að díla við
það að vera transkona. Bara núna
í vikunni voru tvær transkonur
myrtar í New York og ein af hverj-
um tólf transmanneskjum í Banda-
ríkjunum er drepin, svo að það
er beinlínis lífshættulegt að vera
trans þó það sé auðvitað auðveldara
á Íslandi. Hér hef ég hef hitt fólk
sem telur mig vera geðveika og svo
framvegis en sem betur fer hef ég
aldrei lent í ofbeldi hér heima.“
Orð skipta miklu máli
Eftir að Ragna kom til Íslands
komst hún í kynni við rappsveit-
ina Reykjavíkurdætur og fór að
rappa með þeim. „Ég kynntist
Kolfinnu Nikulásdóttur þegar við
vorum báðar að vinna fyrir Uni-
cef. Mér þótti svo vænt um að hún
kallaði mig Rögnu frá upphafi en
sumir eiga erfitt með það. Þetta
var hressandi og valdeflandi fyrir
mig því allt í einu var þetta ekki
bara ég í mínum heimi, heldur
kom þetta utan frá, og virkaði þess
vegna eins og stuðningur. Svona
lítið orð getur skipt rosalega miklu
máli. Það besta við Reykjavíkur-
dætur var alls ekki að vera í hljóm-
sveit og koma fram á stöðum eins
og Airwaves heldur voru það bara
stelpurnar. Þetta er svo geðveikur
hópur af stelpum sem ég hef elskað
að vera hluti af,“ segir Ragna sem
notar listamannsnafnið Mc Ragna
Rök.
„Ragnarök er eitthvað sem ég
tengi mjög sterkt við, þess vegna er
listamannsnafnið mitt Ragna Rök.
Ragnarök eru heimsendir og tákna
endi en á sama tíma upphaf. Þetta
er eitthvað sem mér finnst tengjast
mínum hugmyndum um kyn og því
hvernig mig langar að rústa öllum
fyrirframgefnum hugmyndum þín-
um um kyn en gefa þeim svo aftur
annarskonar líf.
Skilurðu hvað ég meina,“ spyr
Ragna og allt í einu er hún hætt
að tala og byrjuð að rappa og orðin
bara streyma upp úr henni. Text-
inn er út laginu Elegans sem Ragna
samdi með Kolfinnu og rappaði
með dætrunum. Ég sit bara dol-
fallin og hlusta. „Skilurðu núna
hvað ég meina“ spyr Ragna aftur
og brosir.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
viðtal 25 Helgin 22.-28. desember 2014