Fréttatíminn


Fréttatíminn - 22.12.2014, Blaðsíða 39

Fréttatíminn - 22.12.2014, Blaðsíða 39
Allt sem fer upp kemur aftur niður Frágangur eftir jólin Við elskum jólatré Eftir hátíðirnar þegar jólatréð hefur þjónað sínu hlutverki skulum við koma því í réttan farveg. Mörg sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa sótt jólatrén til íbúa og hægt er að finna upplýsingar um það á heimasíðum þeirra. Aðrir geta nýtt sér það að koma með jólatrén á endurvinnslustöðvar SORPU. Þar er tekið við jólatrjám frá einstaklingum án gjaldtöku, en fyrirtæki, verktakar og stofnanir greiða móttöku- gjöld samkvæmt gjaldskrá stöðvanna fyrir allan úrgang, þ.m.t. jólatré, nema annað sé sérstaklega tekið fram. Jólatré sem koma inn á endurvinnslustöðvarnar eru send til frekari vinnslu, þ.m.t moltugerðar. Bláa tunnan vill allan jólapappír n Allur jólapappír má fara í bláu tunnuna, í bláa grenndargáminn í hverfinu þínu eða í pappírs- gáminn á næstu endurvinnslu- stöð. Undan- skilinn er glans „jólapappír“ úr plasti. n Best er að brjóta pappaumbúðir saman svo þær taki minna pláss og fjarlægja allt plast sem getur leynst inni í þeim. n Plastumbúðum og glans „jóla- pappír“ má skila í græna grenndargáma eða á endur- vinnslustöðvar. n Tilvalið er að geyma það sem heilt er, eins og t.d. skrautborða og jólapappír og nota aftur á næsta ári. Hversu margir pokar eru í stofunni á jóladag, fullir af jólapappír og umbúðum utanaf skemmtilegum gjöfum? Nú er stór hluti höfuðborgarbúa kominn með bláa pappírstunnu þar sem tilvalið er að losa sig við pappírsumbúðir eftir jólin. Ef um mikið magn er að ræða er gott að gera sér ferð á endurvinnslustöð og losa sig við allan úrgang eftir jólahaldið þar. Eftir áramótin er borgin undirlögð af flugeldarusli sem grotnar niður og verður að drullu og sóðaskap. Þó svo að flugeldar séu úr pappa, þá er notaður leir í botninn sem gerir það að verkum að pappinn sem eftir verður er ekki hæfur til endurvinnslu. Þar af leiðandi fer flugeldarusl í almennt sorp, nema ósprungnir flugeldar – þeir fara í spilliefnagáminn á endurvinnslustöðvum SORPU. Einnig er hægt að skila umbúðum og leifum af flugeldum og tertum á endur- vinnslustöðvar. SORPA hefur í gegnum tíðina haft frumkvæði að fjölmörgum verkefnum sem snúa að samfélagslegum jafnt sem umhverfislegum málum. Dæmi um velheppnað verkefni er rekstur Góða hirðisins, þar sem gamlir munir og húsbúnaður fá nýtt líf í höndum nýrra eigenda og ágóðinn rennur til góðgerðamála. Frá upphafi hafa um 190 milljónir runnið til góðgerðamála í gegnum Góða hirðinn og yfir 10.000 tonn af húsbúnaði fengið nýtt líf hjá nýjum eigendum. Þá hefur SORPA verið í samstarfi við Rauða krossinn og fleiri félagasamtök um söfnun á fatnaði, skóm, kertavaxi, dósum og flöskum, þar sem endurnýting og samfélagslegur ávinningur fara saman. Að auka umhverfisvitund og draga úr myndun úrgangs SORPA sinnir öflugu fræðslustarfi og hefur gert frá árinu 1996. Það felst fyrst og fremst í móttöku skólahópa og er tekið á móti um 3000 nemendum á ári, auk annarra hópa, í fræðslu. Í fræðslustarfinu er lögð áhersla á leiðir til að draga úr myndun úrgangs og hvað það þýðir að vera umhverfislega ábyrgir neytendur. Umhverfisáhrif mismunandi úrgangstegunda eru rædd og nemendur fá tækifæri til þess að sjá með eigin augum hvernig vinnslunni er háttað hjá SORPU. Áhersla hefur verið lögð á að neytendur dragi úr umbúða- notkun eftir fremsta megni, t.d. plast- poka, og hefur SORPA meðal annars framleitt og gefið bæði margnota inn- kaupa- og flokkunarpoka um árabil til þess að auðvelda viðskiptavinum sínum að minnka plastpokanotkun. Þá ber að geta þess að blátunnuvæðingin hefur gert um 10 milljónir plastpoka á höfuð- borgasvæðinu óþarfa þar sem pappír og pappi sem í blátunnuna fer þarf ekki að vera í pokum. SamfélagSlegur og umhverfiSlegur ávinningur SORPA er í eigu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu, og þar með íbúa þeirra, og skal rekið án hagn- aðar. Leiðarljósið er að hámarka umhverfislegan ávinning en um leið að finna hagkvæmustu lausnir á meðhöndlun úrgangs þannig að óhóflegur kostnaður lendi ekki á íbúum svæðisins. Almanak SORPU er komið út n ú er hægt að nálgast hið sí-vinsæla almanak SORPU sem öllu jöfnu hangir uppi á 12.000 heimilum, stofnunum og í fyrirtækjum. Hægt er að nálgast al- manakið á starfsstöðvum SORPU, s.s. endurvinnslustöðvum, verslun Góða hirðisins og á skrifstofunni. SORPA hefur gefið út almanakið frá árinu 2002 og er ákveðið þema tekið fyrir á hverju ári sem tengist endurvinnslu eða endurnýtingu á einhvern hátt. Almanakinu er ætl- að að vekja fólk til umhugsunar og sýna fram á að í úrgangi leynast verðmæti sem geta orðið að ein- stökum listaverkum, nýjum vörum eða umbúðum við endurvinnslu. Almanakið í ár er unnið í samstarfi við Hlutverkasetur og urðu verkin til í listasmiðjuviku í september 2014. Hugmyndir verkanna kviknuðu m.a. við skoðun á því sem til fellur á heim- ilum þátttakenda og eftir heimsókn í verslun Góða hirðisins. Þátttakendur listasmiðjunnar komust að því að fegurð hlutanna liggur í upplifun hvers og eins. Feg- urðin getur leynst þar sem hennar er síst að vænta og það er okkar að koma auga á hana og miðla henni áfram til annarra í gegnum verk okkar. Hlutverkasetur tekur á móti ein- staklingum sem vegna sálrænna áfalla eða sjúkdóma geta ekki stundað nám eða atvinnu. Hlut- verkasetur býður upp á hvatningu og stuðning í formi námskeiða, sam- veru, fræðslu og ýmissa viðburða til að einstaklingar öðlist aukið sjálfs- traust. Markmið Hlutverkaseturs eru að auka lífsgæði, veita stuðn- ing, finna og rækta hæfileika fólks, nýta þekkingu og reynslu fólks og veita undirbúning fyrir skóla og/eða vinnumarkað. Í almanakinu er einnig að finna flokkunartöflu SORPU sem nauð- synlegt er að hafa uppi við á hverju heimili. Unnið í samstarfi við SORPU Styrkþegar úr desember úthlutun Góða hirðisins sem voru afhentir 19. desember. Það eru 30-36 flokkunarmöguleikar á endurvinnslustöðvum SORPU. Þú getur nálgast ítarlegar flokkunarleiðbeiningar á sorpa.is. Veldu vistvænan lífsstíl OPIÐ mán–fös 12.30–19.30 Breiðhella opnar 8.00 lau–sun 12.00–18.30 LEGGUR ÞÚ ÞITT AF MÖRKUM? Komdu við á næstu endurvinnslustöð og náðu þér í nýtt dásamlegt dagatal sem inniheldur m.a. flokkunartöflu SORPU fyrir árið 2015. grænn lífsstíll 39 Helgin 22.-28. desember 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.